Fréttablaðið - 12.12.2012, Page 46

Fréttablaðið - 12.12.2012, Page 46
12. desember 2012 MIÐVIKUDAGUR| MENNING | 30 Ragnheiður Harpa Leifsdóttir útskrifaðist af fræða- og fram- kvæmdasviði L istaháskóla Íslands vorið 2011. Útskriftar- verkefni hennar, Dagskrá um eld- ingar, vakti athygli erlendra hátíð- arhaldara þegar það var sýnd á sviðslistahátíðinni LÓKAL sama ár og báðu þeir hana að semja nýtt verk. Afraksturinn er Hyldýpi, sem frumsýnt verður í Petersen- svítunni í Gamla bíói á föstudag, en áður hefur verkið verið sýnt í Danmörku og á sviðslistahátíðinni Baltic Circle í Helsinki. Ragnheiður Harpa lýsir sýning- unni sem sjónrænu ljóði og kveðst hafa fengið hugmyndina frá ömmu sinni. „Hún býr til dagskrá um hugðarefni sín, til dæmis sagna- kvöld um kvenpersónur þar sem hún býður vinum og fjölskyldu inn í stofu og flytur dagskrána sem samanstendur af söng, texta og ljóðum.“ Sýningin er byggð upp á svip- aðan hátt og Dagskrá um eldingar en Ragnheiður Harpa segist hafa heillast af einfaldleika formsins og viljað þróa það lengra og „fara lengra út í myrkrið“. Þaðan er titill sýningarinnar sprottinn. „Hann hefur ýmsar tengingar,“ segir Ragnheiður Harpa, „getur vísað til hyldýpis sjávarins eða hyl- dýpis sálarinnar, þar sem enginn veit hvað kann að leynast. Við spil- um dálítið vísvitandi inn á þetta og þess vegna er sýningin síbreytileg, lokaatriðið er til dæmis aldrei eins því hver áhorfandi upplifir í raun sína eigin sýningu.“ Rýmið leikur líka hlutverk og segir Ragnheiður ólíkt að leika í tiltölulega stórum samkomusal eins og í Finnlandi, þar sem marg- ir áhorfendur komast fyrir, og litlu rými á borð við Petersen-svítuna. „Hún er eiginlega fullkom- inn staður fyrir þetta verk, því það skapast svo mikil nánd.“ Hyl- dýpi verður sýnt fjórum sinnum í Gamla bíói, á föstudag, sunnudag, mánudag og þriðjudag, og verður sýnt á Akureyri í janúar. Síbreytilegt Hyldýpi Hópurinn Sublimi frumsýnir sviðsverkið Hyldýpi eft ir Ragnheiði Hörpu Leifs- dóttur í Gamla bíói á föstudag. Verkið er síbreytilegt og lagar sig að aðstæðum. Á R N A S Y N IR util if. is MIKIÐ ÚRVAL SPORTBAKPOKAR FRÁ 4.990 kr. MARGIR LITIR. BÆKUR ★★★★ ★ Steinskrípin Gunnar Theodór Egg- ertsson VAKA HELGAFELL 2012 Árið 2008 hlaut Gunn- ar Theodór Eggertsson Íslensku barnabóka- verðlaunin fyrir fyrstu bók sína, Steindýr- in, sem sagði ævintýri þriggja barna sem álpast í hulduheima eftir að dýrin í þorpinu byrja að breytast í steinstyttur. Til að leysa dýrin og heiminn allan úr álögum vekja börnin ævafornt skrímsli úr dvala. Þessi ákvörð- un á eftir að reynast afdrifarík, eins og lesendur kynnast í fram- haldssögunni sem kemur út þessi jólin, Steinskrípunum. „Landið var litlaust og kalt svo langt sem augað eygði.“ Svo hefst nýja skáldsaga Gunnars. Hrollur fer um lesendur við upp- haf bókar, þegar piltur vaknar skyndilega til lífsins og starir í kringum sig og sér ekkert nema steina. Jörðin er köld og grá, hvergi sjást fuglar á flugi eða dýr á kreiki og vindurinn ýlfrar um klettana. Bergur, reykvísk- ur drengur í heimsókn í sveit- inni, ráfar um grágrýtið þar til hann finnur afa sinn og ömmu steinrunnin í steingerðum bæ. Þegar skelfilegt skrímsli með þrjá kjafta og fimm augu á stilk- um og óteljandi slímuga anga ræðst á Berg kemur dularfull ung stúlka honum til bjargar og drepur skrímslið með vígalegu sverði. Hlín er barnabarn Erlu sem lék eitt aðalhlutverkið í fyrri bókinni. Hlín er alin upp í stein- gerðum heimi. Áður en hún fæddist voru skelfileg álög lögð yfir veröldina. Heimurinn allur, fólkið, dýrin og náttúran urðu að steini og aðeins örfáir menn komust undan með því að leita skjóls neðanjarðar, í byggðum huldufólks. Hlín hefur gengið yfir steinrunnið hafið frá meginlandinu alla leið til Íslands og leitar þar ömmu sinnar Erlu. Í hafurteski sínu er hún með bók sem ber með sér lausnina hvernig leysa megi veröldina úr álög- um og sigrast á stein- skrípunum. Það er ekki oft sem ævintýrasögur koma mér á óvart, en Gunn- ari tókst það svo sannarlega hér. Bókin er mun betri en Stein- dýrin, þéttari og betur skrifuð. Söguþráðurinn er fléttaður úr minnum úr íslenskum þjóðsög- um, erlendum hrollvekjum, fram- tíðarsögum, geimverutryllum og galdrasögum 17. aldarinnar, og afraksturinn er alveg einstak- lega skemmtilegur. Ævintýrið um Berg, Hlín og steinskrípin er bæði kunnuglegt og afskaplega frumlegt. Siðferðislegar spurningar vakna við lestur bókarinnar, spurningar um tengsl manns- ins við náttúruna, um tengsl iðn- vædds samfélags við dýrin sem við slátrum til að halda í okkur lífi. Bergur elst upp í grasi gró- inni veröld, en siðferðislega séð er hann steingervingur í sam- anburði við Hlín sem elst upp í steinrunnum heimi. Hlín ber svo mikla virðingu fyrir lífinu að hún sýnir jafnvel steinskríp- unum hluttekningu. Ég hefði viljað að Gunnar hefði gengið lengra með sið- ferðislegar vangaveltur sínar í bókinni. Hann vekur upp stórar spurningar um stöðu mannsins í náttúrunni, en reynir ekki að svara þeim. Bókinni lýkur mjög skyndilega og lesendur sitja eftir agndofa … og já, spenntir að lesa bækur Gunnars í framtíðinni. Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir NIÐURSTAÐA: Stórskemmtileg, spennandi, frumleg og hrollvekjandi saga sem vekur upp siðferðislegar spurningar um tengsl mannsins við náttúruna. Lífið við endalok heimsins HYLDJÚPT Ragnheiður Harpa Leifsdóttir ásamt Helene Ingu Stankiewicz, sem flytur tónlistina í verkinu ásamt Þórði Hermannssyni. Um 300 kaupendur danssýninga hvaðanæva úr heiminum hafa boðað komu sína á Icehot, kaup- stefnu fyrir norræna danslist, sem hefst í Helsinki í Finnlandi í dag. Alls verður 21 dansverk eftir marga af þekktustu danshópum Norðurlanda sýnt á hátíðinni. Eitt íslenskt verk verður sýnt á hátíð- inni, Soft Target eftir Margréti Söru Guðjónsdóttur. Dansmessan er haldin á vegum Leiklistarsambands Íslands, Dans- hallerne í Danmörku, Dansens Hus Noregi, Dansens Hus Svíþjóð og Dans Info Finland. Icehot var hald- in fyrst í Svíþjóð 2010 og er mark- miðið að halda hátíðina annað hvert ár. Stefnt er að því að hátíðin verði haldin hér á landi 2018. Norræn dansmessa Kaupstefnan Icehot hefst í Helsinki í dag. SOFT TARGET Verk Margrétar Söru er eitt af 21 dansverki sem sýnt verður á dansmessunni.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.