Fréttablaðið - 24.01.2013, Síða 20
24. janúar 2013 FIMMTUDAGUR| SKOÐUN | 20
Skilja má á Stíg Helga-
syni, blaðamanni á Frétta-
blaðinu, í skrifum á mið-
vikudag að honum finnist
skjóta skökku við að ég ætli
mér að taka málsferð hælis-
umsókna til skoðunar því
nákvæmlega það hafi ég
áður sagst vilja gera þegar
ég setti á laggirnar starfs-
hóp um málefni útlend-
inga utan EES í júlí 2011.
En aldrei sé góð vísa of oft
kveðin!
Það er reyndar alveg rétt að
endurskoðun á verkferlum í stofn-
unum hins opinbera á að vera
stöðug og sífellt endurtekin eins
og góðar vísur. Það er hins vegar
misskilningur hjá blaðamanni
Fréttablaðsins að yfirlýsingar
mínar frá því í júlí 2011 hafi ekki
skilað árangri og verið orðin tóm.
Fjarri lagi.
Á vinnsluborði Alþingis liggur
nefnilega frumvarp með heild-
stæðri endurskoðun á málefn-
um útlendinga utan EES-svæð-
isins, meðal annars um
skilyrði og verklag við
komu fólks til landsins
undir mismunandi for-
merkjum. Ný útlend-
ingalöggjöf er bráðnauðsynleg
því núverandi lög eru um margt
óskýr og óaðgengileg auk þess
að margt þarf að færa í réttlæt-
isátt. Það er reynt að gera í nýju
frumvarpi til útlendingalaga
sem sumir fréttamenn á Frétta-
blaðinu hafa sýnt verðskuldaðan
áhuga. Hins vegar blasir sú stað-
reynd við að fjöldi hælisleitenda
hefur margfaldast frá því sem
var á sama tíma í fyrra og máls-
meðferðartími lengist. Verklagið
þarfnast því skoðunar, núna.
➜ Ný útlendingalög-
gjöf er bráðnauðsyn-
leg því núverandi
lög eru um margt
óskýr …
Þorsteinn Pálsson, fv.
sjávarútvegsráðherra,
ritar grein í Frétta-
blaðið 12. janúar sl. þar
sem hann barmar sér
yfir „ráðagerðum um að
vinda ofan af þeim þjóð-
hagslega ávinningi sem
markaðslausnir í sjávar-
útvegi hafa skilað“.
Í lögum um stjórn fisk-
veiða segir að „[n]ytja-
stofnar á Íslandsmiðum
eru sameign íslensku
þjóðarinnar“. Sjávarútvegsráð-
herrann fyrrverandi og forysta
Sjálfstæðisflokksins hafa ætíð
talið þetta ákvæði vera merking-
arlaust hjal, sem þjónar þeim til-
gangi einum að skreyta ræður á
sjómannadögum, en í raun séu
nytjastofnarnir ævarandi eign
núverandi handhafa kvótans og
því sé óeðlilegt að kvótaeigend-
ur greiði nokkuð til þjóðarinnar
fyrir afnot af nytjastofnunum.
Kvótaeigendur urðu til sem
stétt við upphaflega gjafaút-
hlutun kvótans á 9. áratug síð-
ustu aldar, þegar almenningur
á Íslandi var sviptur þeim rétti,
sem hann hafði notið til a.m.k.
1100 ára, að gera út til fiskveiða,
en sá réttur færður til þess
fámenna hóps sem á örstuttu
þriggja ára augnabliki í Íslands-
sögunni gerði út skip – sem og
afkomenda þeirra.
Ákvæðið um sameign þjóðar-
innar kom inn í lög um
stjórn fiskveiða árið 1990.
Síðan þá hefur a.m.k.
helmingur flokka sem
sæti hafa átt á Alþingi
talið að ákvæðið þýddi
það sem það segir, það er
eign þjóðarinnar á fiskn-
um og þar með réttarins
til auðlindarentunnar. Þá
hefur meirihluti svarenda
í öllum skoðanakönnunum
sem undirritaður man og
snerta fiskveiðimál verið
á sama máli, sem endurspeglað-
ist í afgerandi fylgi kjósenda við
auðlindaákvæðið í kosningunum
um stjórnarskrárdrögin.
Hálfkák og pottasull
Á árunum 1991 til 2009 fór Sjálf-
stæðisflokkurinn með völdin í
sjávarútvegsráðuneytinu og not-
aði þau völd í mismunandi sam-
steypustjórnum til þess að standa
vörð um hagsmuni kvótaeigenda.
En með þeirri óbilgjörnu hags-
munagæslu og virðingarleysi við
lagabókstafinn missti flokkurinn
líka frumkvæðið til þess að leiða
sjávarútvegsmálin til farsælla
lykta á grundvelli markaðslög-
mála.
Nú er við völd minnihlutastjórn
Samfylkingar og VG. Samfylk-
ingin hefur a.m.k. opinberlega
verið boðberi markaðslausna í
sjávarútvegi með svokallaðri
fyrningarleið og síðar uppboðs-
leið. Slíkar gagnsæjar markaðs-
lausnir virðast hins vegar vera
eitur í beinum VG sem illu heilli
hafa farið með sjávarútvegsmál-
in í þeirri stjórn. Því virðist fórn-
arkostnaðurinn við að þokast í átt
að sanngjarnari úthlutun auð-
lindarentunnar hafa orðið óskilj-
anlegt hálfkák og pottasull, sem
hefur tekið sorglega litlum fram-
förum frá upphaflegu skemmdar-
verki Jóns Bjarnasonar á málstað
þeirra sem telja nytjastofna vera
sameign þjóðarinnar.
Þorsteinn Pálsson og Sjálf-
stæðisflokkurinn geta því ekki
fríað sig ábyrgð á því hversu illa
sé komið í sjávarútvegsmálum;
þeir gerðu lausn Jóns Bjarna-
sonar með síðari breytingum
að einu færu leiðinni til réttlæt-
is. Vel útfærð og gagnsæ inn-
heimta á auðlindarentu, byggð á
markaðslausnum og í samræmi
við mannréttindasáttmála Sam-
einuðu þjóðanna, er langskyn-
samlegasta tekjuöflunarúrræði
ríkissjóðs og gæti greitt götu
lækkunar almennra skatta á fólk
og fyrirtæki í landinu.
Undir kögunarhóli
Orð og efndir
SJÁVAR-
ÚTVEGUR
Haukur
Eggertsson
verkfræðingur
➜ Síðan þá hefur a.m.k.
helmingur fl okka sem sæti
hafa átt á Alþingi talið að
ákvæðið þýddi það sem það
segir, það er eign þjóðar-
innar á fi sknum
INNANRÍKIS-
MÁL
Ögmundur
Jónasson
innanríkisráðherra
Þetta sagði ég í Silfri
Egils 28. október sl. og
sló í borðið. Við vorum
að ræða skuldbreytt lán
íbúðaeigenda, sem hafa
hækkað um 450 millj-
arða frá hruni vegna
verðtryggingarinnar.
Verðtrygging var sett á
með lögum og hana er
sannarlega eins hægt
að afnema með lögum.
Á síðasta ári hækkuðu
lánin um nálægt 60 millj-
arða og enn hækka þau.
Gengistryggð lán hafa
verið dæmd ólögleg, en
fjármálastofnanir komist
upp með að framfylgja
ekki lögunum, en gefa þó von um
lækkun lána um 34%. Hvenær?
Munurinn í dag milli þeirra
sem höfðu efni á að taka gengis-
tryggt íbúðarlán að upphæð um
20 milljónir og þeirra sem höfðu
ekki efni á því og tóku verð-
tryggt lán, er um 10 milljóna
króna hærri skuld hins síðar-
nefnda, miðað við lok greiðslu
á lánunum. Er svona mismunun
á meðferð stökkbreyttra skulda
boðleg í siðuðu þjóðfélagi?
Verðtryggðu húsnæðislánin
Þau eru að hrifsa heimilin af
einstaklingum, þannig að talið
er í dag, að um 60% heimila séu
í raun eignir fjármálastofnana.
Fram hefur komið að neikvæð
staða þeirra sem eru á aldrin-
um 22-42 ára sé mínus 82 millj-
arðar króna. Þetta er sá hópur,
sem á að knýja hagkerfið áfram
með eftirspurn sinni á næstu
árum og um leið að útvega rík-
inu skatttekjur til að sjá hinum
eldri farborða. Heil kynslóð er
í þessum sporum. Þessi kyn-
slóð var skilin eftir, meðan
þeir sem höfðu aðstöðu og upp-
lýsingar í ársbyrjun 2008 fóru
að koma fé sínu undan. Og allt
frá hruni höfum við fylgst með
afskriftum hjá stórum fyrir-
tækjum og einstaklingum með
mikil umsvif, líklega um 500
milljarða. Fimm þúsund heimili
eru í vanskilum hjá Íbúðalána-
sjóði að upphæð frá hruni um sjö
og hálfur milljarður og líklega
er sá sjóður gjaldþrota. Lög-
varin framkvæmd fjármála-
stofnana er ekki spurning um að
greiða verðtryggt lán sem var
tekið, heldur að mínu mati ólög-
mæt eignaupptaka á heimilum
og eignum. Er þetta þjóðfélagið
sem við viljum búa í?
Stofnanirnar
Þær hafa þegar verið
settar fram með ærnum
kostnaði til að láta ein-
staklinga skrifa bónar-
bréf og fara aftur og
aftur í viðtöl og standa
í biðröðum í leit að
úrlausnum.
Afskriftir fjármála-
stofnana hjá þeim „stóru“ stans-
laust í tæp fjögur ár halda áfram
á kostnað heimilanna, sem á að
ganga að, meðan nokkuð er þar
að hafa. Ekkert virðist breyt-
ast í þessari aðför. Heimilin
eiga að borga nýjar skuldir með
auknum álögum og úrræðaleysi,
– Sparisjóðs Keflavíkur, Sjóvár,
VBS, eignasafns Dróma og fleiri
fyrirtækja að upphæð um 100
milljarða.
Já, þetta er þjóðfélagið.
Lífeyrissjóðirnir
Þeir eiga eignir upp á yfir 2.000
milljarða og eru með rekstrar-
kostnað á ári upp á fimm millj-
arða. Þeir verða að koma að
samningsborði um breytta með-
höndlun á þessum fjármunum.
Þeir geta ekki spilað með sitt
fjármagn eins og áður í kaupum
hlutafjár í fyrirtækjum, í von
um skjótfenginn gróða á mark-
aði. Við þekkjum það úr Rann-
sóknarskýrslunni að fé lífeyris-
sjóðanna bar uppi allar bólurnar,
enda var tap þeirra að núvirði
um 500 milljarðar.
Fjárfesting lífeyrissjóðanna
yrði aðeins leyfð með kaupum á
skuldabréfum með ríkisábyrgð
á vöxtum Seðlabankans og með
erlendri fjárfestingu að leyfðu
ákveðnu hámarki, t.d. 30% heild-
areignar. Innstreymi í lífeyris-
sjóðina er nú á ársgrundvelli
um 117 milljarðar, en útgreiðsla
um 67 milljarðar. Að tryggja 50
milljarða króna innkomu á þessu
ári – ávöxtun – er ábyrgðarhluti,
sérstaklega þar sem 12% lífeyr-
issjóðsgreiðslna eru lögfest og
þar af leiðandi ekkert annað en
viðbótarskattur á þá þjóð, sem
greiðir hæstu skatta í Evrópu.
Já, í hvers konar þjóðfélagi
erum við?
Í hvers konar
þjóðfélagi
erum við?
➜ Þeir eiga eignir
upp á yfi r 2.000
milljarða og eru
með rekstrarkostnað
á ári upp á fi mm
milljarða.
FJÁRMÁL
Halldór
Gunnarsson
bóndi og fyrrver-
andi sóknarprestur
í Holti, sem óskar
eft ir stuðningi í
1.-3. sæti í prófk jöri
Sjálfstæðisfl okksins
26. janúar
Húsið opnar kl 19:00 og borðhald hefst kl. 20:00 með alíslenskum þorramat frá þorrakóngnum
í Múlakaffi og flottum réttum fyrir þá sem
ekki þora í þorrann.
Hinn íturvaxni og óþekkti
Örn Árnason stýrir veislunni.
Skemmtiatriði og happdrætti
RISA-sveitin SÁLIN HANS JÓNS MÍNS
sér um fjörið fram á nótt.
Miðaverð:
Matur og ball 7.500 kr.
Ball 3.250 kr.
Húsið opnar fyrir ballgesti kl. 23:00
Miðasala hefst 3. janúar í Hagkaup Spönginni
Allar nánari upplýsingar í síma 845-8206
Þekkir einhver þennan mann
?
Ekki missa af balli ársins!
Þorrahlaðborð Múlakaffis-V
eislurétta
Súrmeti Nýmeti
Heitir réttir
uppstúf og kartöflu
m
og steiktum hrísgrjó
num
transerað í sal