Fréttablaðið - 31.01.2013, Síða 10

Fréttablaðið - 31.01.2013, Síða 10
31. janúar 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 10 E N N E M M / S ÍA / N M 5 6 3 7 0 * M ið a ð v ið b la n d a ð a n a ks tu r ð v ið b la n d a ð a n a ks tu r BL Sævarhöfða 2 110 Reykjavík 525 8000 Bílahúsið / Reykjanesbæ / 421 8808 – Bílasalan Bílás / Akranesi / 431 2622 – Bílasala Akureyrar / Akureyri / 461 2533 – Bílaverkstæði Austurlands / Egilsstöðum / 470 5070 SHIFT_ SHIFT_ Í E N N E M M / S ÍA / N M 5 6 3 7 0 * M ið a ð SUBARU XV – 4x4 Bensín, sjálfskiptur. Verð 5.590 þús. kr. Eyðsla: 4,2 l/100 km* Eyðsla: 6,6 l/100 km* RENAULT MEGANE II SPORT TOURER 1.5 dísil, sjálfskiptur. Verð 3.890 þús. kr. NISSAN QASHQAI – 4x4 Dísil, beinskiptur. Verð 5.090 þús. kr. NISSAN JUKE Bensín, sjálfskiptur. Verð 4.090 þús. kr. Eyðsla: 4,6 l/100 km* Eyðsla: 6,3 l/100 km* ELDSNEYTI MINNA NÝIR SPARNEYTNIR BÍLAR FER 1.428 KM Á EINUM TANKI M.v. blandaðan ak stur VINSÆLASTI SPORTJEPPINN Samkv. Umferðars tofu 2012 KEMUR Á ÓVART! Líka þegar þú pró far SPARNEYTINN SUBARU Ný vél, aukinn ben sínsparnaður Virðing RéttlætiVR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | S. 510 1700 | F. 510 1717 | WWW.VR.IS VR KRINGLUNNI 7 103 REYKJAVÍK S. 510 1700 F. 510 1717 WWW.VR.IS VR óskar eftir orlofshúsum VR óskar eftir vönduðum sumarhúsum eða orlofsíbúðum á leigu til framleigu fyrir félagsmenn sína. Leitað er eftir húsnæði á landsbyggðinni. Eftirfarandi upplýsingar þurfa að fylgja: Lýsing á eign og því sem henni fylgir, ástand hennar, staðsetning, stærð, aldur og fjöldi svefnplássa. Auk þess skal fylgja lýsing á möguleikum til útivistar og afþreyingar í næsta umhverfi. Æskilegt er að myndir og lýsing á umhverfi fylgi einnig með. Áhugasamir sendi upplýsingar á vr@vr.is, fyrir 15. febrúar nk. EVRÓPUMÁL Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins leggur til að sambandið herði á framkvæmd EES-samningsins með það að mark- miði að tryggja að EFTA-ríkin þrjú, sem eru hluti af honum, innleiði þau lög sem sambandinu þykja heyra undir samning inn. Þetta kemur fram í vinnuskjali framkvæmda- stjórnarinnar þar sem mat er lagt á framkvæmd EES. Skjalið er nú til meðferðar hjá vinnuhópi ráðherra- ráðs ESB sem ákveður næstu skref. Gjörbreyttar aðstæður Niðurstaða skjalsins, sem hefur verið í vinnslu frá desember 2010, er sú að EES-samstarfið hafi almennt gengið vel en ýmislegt megi þó bæta í framkvæmd þess. Í skalinu er rifjað upp að ESB sé gjörbreytt stofnun frá því sem hún var. Frá 1994 hafa fleiri mála- flokkar komið undir svið ESB, auk þess sem aðildarríkjum hefur fjölgað úr tólf í 27, sem flækir mjög ákvarðana töku ESB. Því hafi EFTA- ríkin afar takmarkað svigrúm til að ná fram sérlausnum við lög sem heyra undir EES. Á að nýta þvingunarúrræði? Framkvæmdastjórnin átelur EFTA- ríkin fyrir það hversu mörg lög og tilskipanir ESB eigi enn eftir að inn- leiða. Þó að EFTA-ríkin hafi hert á upptöku ESB-laga í EES á síðasta ári stóðu á fimmta hundrað þeirra út af í október síðastliðnum. Þá er það mat framkvæmdastjórnarinn- ar að EFTA-ríki hafi í auknum mæli tafið upptöku reglna og þau velji jafnvel úr þær sem þeim þóknist en heykist á innleiðingu þeirra sem þeim finnist ófýsilegri. Því er þeirri spurningu varpað til ráðherraráðsins hvort nýta eigi þau úrræði sem EES-samningurinn kveði á um til að þrýsta á að löggjöf verði innleidd innan tímamarka. Meðal þeirra úrræða er ákvæði um að loka tímabundið á einstaka viðauka samningsins til að knýja á um viðbrögð ef EFTA-ríkin innleiða ekki lög eða reglur sem heyra undir viðkomandi viðauka EES. ESB hefur aldrei gripið til þessara úrræða, en nokkur yfir- standandi mál milli Íslands og ESB gætu mögulega farið þá leið ef ekki næst saman. Þar á meðal nýjar reglur ESB um fjármála- eftirlit. Samkvæmt sérfræðiáliti samræmist upptaka þeirra ekki stjórnarskrá og því standa nú yfir viðræður milli Íslands og ESB um málamiðlun. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins hefur lítið þokast í samkomulags átt, en þó hefur ekki komið til tals annað en að halda við- ræðum áfram. Litlar líkur á endurskoðun EES Íslenskum stjórnvöldum er kunnugt um skjalið umrædda. Heimildir Fréttablaðsins herma að þar á bæ sjái menn hlutina ekki með sömu augum og framkvæmdastjórnin en um þessar mundir sé verið að vinna að athugasemdum sem verð- ur komið á framfæri. Skjalið mun eflaust taka breytingum áður en lokaskýrsla verður gefin út, en hún mun liggja fyrir seinna á árinu. Hugmyndir um endurskoðun EES, hvort sem er að hluta til eða í heild, hafa komið upp stöku sinnum síðustu ár, en eftir úttekt norskra stjórnvalda í fyrra komust þau mál í hámæli þar í landi. Jens Stolten- berg forsætisráðherra hefur þó tekið af öll tvímæli um að EES- samningurinn verður ekki tekinn til endurskoðunar undir hans stjórn. Heimildir Fréttablaðsins herma að auk þess séu litlar líkur á að ESB eða íslensk yfirvöld þrýsti á slíkt við núverandi aðstæður, enda sé óljóst hvar endurskoðunarferlið muni enda og hvort það verði nokkrum að skapi. thorgils@frettabladid.is Viðurlögin í EES- samningi verði nýtt Framkvæmdastjórn ESB leggur til í vinnuskjali að sambandið nýti sér þau ákvæði sem eru til staðar í EES-samningum til að þrýsta á að EFTA-ríkin taki tímanlega upp viðeigandi Evrópureglur. Ráðherraráð sambandsins á eftir að afgreiða skjalið. Í vinnuskjalinu er velt upp ýmsum möguleikum varðandi framtíð EES- samstarfsins, meðal annars ef til þess kæmi að Ísland gengi í ESB. Sviss gæti mögulega ákveðið að sækja um aðild að EES að því ógleymdu að hugmyndir hafa verið uppi um að San Marínó, Andorra og Mónakó fengu jafnvel inni, þá að fenginni aðild að EFTA. Allar slíkar breytingar myndu kalla á viðamikla endurskoðun samningsins. Framtíð EES RÆTT UM EES Framkvæmdastjórn ESB hefur margt að athuga við það hvernig ESB- löggjöf er innleidd í EES-samninginn. Hér er mynd frá fundi ráðherraráðs EES. MYND/EFTA

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.