Fréttablaðið - 31.01.2013, Side 21
FIMMTUDAGUR 31. janúar 2013 | SKOÐUN | 21
Í DAG
Þorbjörg Helga
Vigfúsdóttir
borgarfulltrúi
Forysta Kennarasambands
Íslands lýsti því yfir í fjöl-
miðlum í síðustu viku að hún
vildi skilgreina kennarastarfið
upp á nýtt. Sú yfirlýsing býður
upp á einstakt tækifæri því þar
með virðast kennarar og sveita-
stjórnarmenn sammála um að
tími sé kominn til að núverandi
kerfi verði endurmetið í heild
sinni. Fram að þessu hafa báðir
aðilar sett fram ólíkar kröfur um
breytingar sem enda iðulega sem
breyting eða sem viðbót við eldri
samning. Samningurinn sem nú
er í gildi er því orðinn mjög ítar-
legur og inniheldur of margar
hindranir að mati margra, bæði
innan kennarastéttar og utan.
Það er kominn tími til að hugsa
hlutina upp á nýtt svo að skóla-
starf og kennarar fái að blómstra.
Í umræðu um laun kennara
eru landsmenn sammála um að
greiða eigi vel fyrir þetta mikil-
væga starf. Við höfum öll verið
nemendur og vitum að kennari
getur haft grundvallaráhrif á
gildi einstaklings til framtíðar.
Það skiptir okkur öll miklu máli
að öflugir og hugmyndaríkir ein-
staklingar velji að starfa sem
kennarar.
Almennt eru Íslendingar sátt-
ir við grunnskólakerfi lands-
ins. Ísland stendur sig þó ekkert
sérstaklega vel þegar árangur
nemenda og brottfall er skoðað í
erlendum samanburði, t.d. miðað
við lönd innan OECD. Í saman-
burði við önnur lönd borgum við
kennurum frekar lág laun en
kennararnir okkar kenna talsvert
færri kennslustundir að meðaltali.
Lítill breytileiki er á milli skóla
landsins og tiltölulega lítill hópur
nemenda er með mjög lágar eða
mjög háar einkunnir.
Auknar kröfur
Íslenskir kennarar segja álagið
á sér mjög mikið og kröfurnar
þannig að ekki sé unnt að uppfylla
þær allar. Þetta er að mörgu leyti
rétt. Foreldrar kalla eftir sífellt
ítarlegri upplýsingum. Sveitar-
stjórnarmenn og ráðuneyti biðja
um innra og ytra mat á árangri.
Óskað er eftir að kennarar sinni
betur stuðningi við börn með
sérþarfir, bjóði upp á fleiri iðn-
kúrsa, þverfaglega kennslu, ein-
staklingsmiðað nám, tölvukennslu
og svo má lengi telja. Þessu til
viðbótar hafa skólar tekist á við
talsverðan niður skurð sem hefur
haft í för með sér að kennarar
ganga í fleiri störf og verkefni en
áður og hafa m.a. ekki getað sinnt
lágmarksstarfsþróun undanfarin
misseri.
Flóknir samningar
Það er vel skiljanlegt að kennarar
upplifi mikið álag og því er að
vissu leyti eðlilegt að þeir hafi
leitast við að setja inn í kjara-
samninga nákvæmari skil-
greiningar á þeim verkefnum
sem þeir eiga raunverulega að
inna af hendi.
Umræðan um núverandi
launaramma kennara hefur um
nokkurt skeið verið á þá leið að
samningurinn sé flókinn og til-
finningin sú að hann hindri
framþróun og sveigjanleika í
skólastarfi með fjölmörgum og
flóknum klásúlum um kennslu-
skyldu, undirbúningstíma og
kennsluafslætti.
Áherslan í samningnum gerir
síður ráð fyrir ólíkum skóla-
áherslum, formum eða nýjung-
um. Vegna þess hversu niður-
njörvaður samningurinn er um
hin ýmsu smáatriði virkar hann
sem takmarkandi afl við skipu-
lag skólastarfs. Lög og kjara-
samningar í bland hafa einnig
þau áhrif að skólastjórar hafa
of lítið um verkefni og skyldur
starfsmanna sinna að segja. Það
er ólíklegra að skólastjóri, eins
og stjórnandi venjulegs fyrir-
tækis, geti innleitt stefnu viðkom-
andi skóla nema hann geti stýrt
betur tíma og verkefnum starfs-
manna sinna.
Breytilegt starfsumhverfi kenn-
ara og almenn skólaþróun krefst
þess að launakerfi kennara sé
sveigjanlegra en nú er. Við þurf-
um skipulag og launaramma sem
virkar hvetjandi fyrir kraftmikla
kennara og umbunar þeim sem
leggja sig sérstaklega fram við að
bæta umhverfi og árangur barns-
ins. Kerfi sem tryggir að allir sem
koma að skólastarfinu rói í sömu
átt.
Opna upp á gátt
Það má taka heilshugar undir
með formanni félags grunnskóla-
kennara um að það sé kominn
tími til að skilgreina starf kenn-
ara upp á nýtt. Það er örugglega
fljótlegasta leiðin, og hugsanlega
eina leiðin, til að markmiðum
samningsaðila verði náð. Það
er ólíklegt að starf grunnskóla-
kennarans breytist fyrr en
við leysum skólastarfið undan
fjötrum kjarasamninga og niður-
njörvaðrar stundatöflu. Forsenda
þess að hægt sé að breyta skóla-
starfinu er að opna samningana
upp á gátt. Kröfur um breytingar,
fleiri verkefni og aukinn árang-
ur munu ekki minnka og því er
afar ólíklegt að stagbætur við nú-
verandi kjarasamning skili til-
ætluðum árangri um minna álag
og aukin gæði kennslu. Einnig
þurfa skólastjórar að hafa meira
að segja um störf kennara sinna
svo hægt sé að ná fram því besta
í skólastarfinu. Í framhaldinu
mun starf kennarans breytast.
Slíkar breytingar eru ekki ein-
göngu óhjákvæmilegar heldur
nauðsynlegar fyrir framþróun
íslensks skólastarf
Tækifæri til
uppstokkunar
Almennt eru
Íslendingar sáttir
við grunnskólakerfi lands-
ins. Ísland stendur sig þó
ekkert sérstaklega vel þegar
árangur nemenda og brott-
fall er skoðað í erlendum
samanburði, t.d. miðað við
lönd innan OECD.
Bílakjarnanum • Eirhöfða 11 • Sími 551 7171 • notadir.bernhard.is
Opnunartími
Mánudaga - föstudaga milli kl. 10:00 og 18:00
Laugardaga milli kl. 12:00 og 16:00
LIFESTYLE
SÍÐUSTU EINTÖKIN
2012 ÚTLIT
2.0i bensínvél
- einnig fáanlegur með 2.2i dísilvél
Sjálfskiptur
Fjórhjóladrifinn
18“ álfelgur
Alcantara leðurinnrétting
Leðurklætt stýri
Rafstýrðir, upphitaðir og
aðdraganlegir hliðarspeglar
Rúðuþurrkur að framan með regnskynjara
Þokuljós að framan
Litað gler í aftari hliðarrúðum og afturrúðu
Skriðstillir (Cruise Control)
Tvöföld tölvustýrð loftkæling
Fjarlægðarskynjarar að framan og aftan
Hljómflutningstæki með geislaspilara og
RDS útvarpi ásamt 6 hátölurum
Aðgerðarhnappar fyrir hljómtæki í stýri
AUX, USB og iPod tengi
Hiti í sætum
Hemlalæsivörn (ABS)
Stöðugleikabúnaður (VSA)
Stöðugleikabúnaður fyrir tengivagn (TSA)
Tvöfaldir SRS loftpúðar að framan
Tvöfaldir SRS hliðarloftpúðar
Tvöfaldar SRS loftpúðagardínur
og margt fleira.
Einungis örfáir bílar í boði
Skráðir 2013, ókeyrðir og næsta skoðun 2017
Tökum notaða bíla upp í og allt að 75% fjármögnun í boði
tilboðsverð kr. 5.690.000
afsláttur kr. 700.000
listaverð kr. 6.390.000
Er líf eft ir Icesave?
Núna hefur íslenska þjóðin snurfusað bókhaldið nokkuð hjá ríkissjóði
en þrátt fyrir það er nokkuð langt í land. Af útgjöldum ríkissjóðs fara um
20% í vexti vegna skulda sem til komu vegna bankahrunsins. Endursemja
verður um skuldir landsins til að hér sé búandi fyrir almenning. Afnema
verðtrygging una, leiðrétta lán skuldugra heimila. Koma bleika fílnum úr
smjörinu í ísskápnum, þ.e. lífeyrissjóðunum. Breyta sköttum svo almenn-
ingur geti tekið á hjólum atvinnulífsins. Afgreiða snjóhengjuna landinu til
gagns, það gengur bara betur næst, verðum við að segja við fjárfesta, sorry.
http://blog.pressan.is/gunnarsa/
Gunnar Skúli Ármannsson
AF NETINU