Fréttablaðið - 31.01.2013, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 31.01.2013, Blaðsíða 26
31. janúar 2013 FIMMTUDAGUR| SKOÐUN | 26 CARAT • Haukur gullsmiður Smáralind • www.carat.is • sími 577 7740 TILBOÐSDAGAR Í 40% afsláttur af öllum skartgripum Fimmtudag — mánudags Mjög margir Íslendingar fluttu brott af landinu á síðasta ári en á móti fluttu margir útlend ingar til landsins. Brottfluttir íbúar voru 319 umfram aðflutta árið 2012. Alls fluttu 936 Íslendingar frá landinu umfram heim- komna (0,3% Íslend- inga), en á móti fluttu 617 erlendir ríkisborg- arar til landsins umfram brottflutta (2,9% af fjölda þeirra). Þessir 936 brottfluttu Íslendingar bættust við þá 5.480 sem fluttu brott umfram aðflutta árin 2009-2011 þannig að í heild fluttu 6.416 íslenskir ríkis- borgarar frá landinu umfram aðflutta árin 2009-2012. Flutningsjöfnuður Íslendinga hefur yfirleitt verið neikvæð- ur undanfarna áratugi og var árið 2012 vel yfir meðaltali þess tímabils. Á árinu var nettó brott- flutningur Íslendinga sjá sjötti mesti síðustu tvo áratugi. Upplýsingar um menntun að- og brottfluttra liggja ekki fyrir, en líkur standa til þess að frá Íslandi flytjist að mestu leyti sér- menntað vinnuafl og að til lands- ins komi fólk í miklum mæli án framhalds- eða starfsmenntunar og auð- vitað íslenskukunnáttu. Flest bendir því til þess að neikvæður flutnings- jöfnuður íslenskrar ríkis- borgara og jákvæður flutningsjöfnuður útlend- inga lækki menntunarstig íbúa landsins og dragi úr framboði sérhæfðs starfs- fólks á vinnumarkaði. Ótímabær gleði Tölur Hagstofunnar um búferlaflutninga á fjórða árs- fjórðungi síðastliðins árs urðu forsætisráðherra ánægjuefni eins og mátti lesa í grein hennar í Fréttablaðinu 26. janúar: „Í síðustu viku birtist enn einn ánægjulegur vitnisburður þess að við séum farin að sjá til lands. Í fyrsta sinn frá hruni er fjöldi þeirra sem flytjast til landsins mun meiri en þeirra sem flytja frá landinu og í fyrsta sinn frá hruni fluttu fleiri íslenskir ríkis- borgarar til landsins en frá því. Má telja það til ánægjulegustu merkja um bata íslenska hag- kerfisins… “. Gleði ráðherrans fólst í því að á fjórða ársfjórðungi síðastliðins árs fluttu 625 fleiri til landsins en frá því, þar af voru 620 erlendir ríkisborgarar. Tölur áranna 2010- 2012 sýna að brottflutningur Íslendinga er mestur á öðrum og þriðja ársfjórðungi hvers árs og langminnstur á þeim fjórða. Þannig nam nettó brottflutningur Íslendinga á öðrum og þriðja árs- fjórðungi áranna 2011 og 2012 á bilinu 80-90% af brottflutningi áranna í heild og á fjórða árs- fjórðungi nam hann einungis 1% af nettóflutningum hvort árið. Skýringin á þessu mynstri má m.a. rekja til þess að íslenskar fjölskyldur tímasetja brott- flutning af landinu með tilliti til skólagöngu barnanna og flytja því brott á sumrin. Það eru því rangar ályktanir sem forsætis- ráðherra dregur að einhver tíma- móta viðsnúningur hafi átt sér stað á fjórða ársfjórðungi síðast- liðins árs. Betri mynd af stöðu búferla- flutninganna fæst því með því að skoða árin í heild. Í þeim kemur ekki fram neinn tímamóta við- snúningur heldur að nettó brott- flutningur íslenskra ríkisborgara af landinu var enn mjög mikill á síðasta ári. Minnkandi atvinnuleysi? Árið 2009 var meðalfjöldi atvinnulausra 13.400 (8,0% atvinnuleysi) en 9.500 (6,8% atvinnuleysi) á síðasta ári, sam- kvæmt Vinnumálastofnun, og fækkaði því um 3.900 á tíma- bilinu. Brottfluttir umfram aðflutta á aldursbilinu 16-74 ára árin 2010-2012 voru 3.200. Samkvæmt vinnumarkaðskönnun Hagstofunnar er atvinnuþátttaka í þeim aldurhópi 80% og því má ætla að brottflutt vinnuafl hafi numið 2.700 manns árin 2010- 2012. Eru þá ekki meðtaldir þeir 4.300 íbúar sem fluttu brott árið 2009 en án þess hefði atvinnu- leysi það ár orðið 2% meira en raunin var það ár. Fjöldi þeirra sem tóku þátt í vinnumarkaðsúrræðum hjá Vinnumálastofnun á síðasta ári var um 1.200, en þeir telj- ast ekki til atvinnulausra nú en gerðu það árin 2009-2010. Svo vill til að fækkun atvinnulausra er jafn mikil og samtala brott- flutts vinnuafls og þátttakenda í vinnumarkaðsúrræðum. Það er nöturleg niðurstaða að helsti árangurinn í atvinnumálum, þ.e. minnkandi atvinnuleysi, fel- ist í brottflutningi Íslendinga og breyttri tölfræði. Minnkandi atvinnuleysi skýrist af landfl ótta og breyttri tölfræði Með sameiningu stofn- ana og niðurskurði í heilbrigðis þjónustu hefur möguleikum hjúkrunar- fræðinga á að velja sér vinnustað fækkað mjög. Ekki síst í því ljósi eru upp- sagnir tæplega 300 þeirra á LSH mjög alvarlegar og ljóst að mikil óánægja býr þar að baki. Um er að ræða hóp hjúkrunarfræð- inga sem hefur að jafnaði fjögurra ára háskólanám að baki. Þar að auki hafa margir í þessum hópi aflað sér sérfræðimenntunar, til dæmis á sviði svæfinga- eða skurðstofuhjúkrunar eða aflað sér meistaragráðu frá háskóla innan- lands eða erlendis. Rök heilbrigðisyfirvalda Rök fyrir vondri launasetningu hjúkrunarfræðinga í samanburði við aðrar stéttir með jafnlangt háskólanám hafa yfirleitt verið þau að stéttin sé stór og þar af leiðandi erfitt að launa hana vel og að svo sé vaktavinna hluti af starfi hjúkrunarfræðinga og hana beri að líta á sem möguleika til að hækka tekjur. Sjálfir líta hjúkrunar fræðingar flestir þann- ig á að byrði sé af nætur- og helg- arvinnu og kalla þennan „tekjumöguleika“ vakta- byrði. Þar hefur hins vegar orðið sú breyting á að sífellt fleiri sjúklingar fá þjónustu á dag- og göngudeildum og hefur því vinnutími hjúkrunar- fræðinga færst meira til dagvinnu en áður var. Hvað varðar stærð stéttarinnar þá eru allir sem koma að uppsögn- um hjúkrunarfræðinga á LSH nú sammála um að við þurfum á þessum hjúkrunarfræðingum að halda, við viljum njóta starfs- krafta þeirra, gerum kröfu um þekkingu þeirra og reynslu þegar mest á reynir hjá okkur sjálfum. Pólitísk hræðsla En hvert stefnir þessi stétt þar sem meðalaldurinn nálgast að vera 50 ár? Það er ljóst að ný liðun í stéttinni er langt frá því að vera nægjanleg, hvort sem miðað er við núverandi verkefni eða þá miklu áskorun sem fjölgun aldraðra og langveikra er fyrir okkur hjúkrunar fræðinga. Að mínu mati þarf að taka pólitíska ákvörðun um framtíð hjúkrunarþjónustu á Íslandi og það fyrr en seinna. Eiga hjúkrunarfræðingar að veita þá þjónustu sem þeir nú veita eða aðrir með minni menntun? Ég treysti mér til að fullyrða að verði það raunin hefði slíkt í för með sér verri árangur heilbrigðiskerfisins. Verri árangur heilbrigðis kerfisins þýðir lengri biðlista, lengri við- bragðstíma, og fleiri mistök sem mátt hefði koma í veg fyrir. Hjúkrun var færð á háskólastig á Íslandi af mikilli framsýni þar sem óteljandi rannsóknir sýna að góð fræðileg þekking er undirstaða árangurs og framfara. Nú stöndum við hins vegar frammi fyrir þeirri spurningu hvort Íslendingar for- gangsraði þannig að ungt fólk sjái sér fært eða yfirleitt langi að læra hjúkrunarfræði og stunda hjúkrun á Íslandi. Þangað til stend- ur erlendur vinnumarkaður okkur opinn því íslenskir hjúkrunarfræð- ingar eru mjög vel menntuð stétt og eftirsóttir til starfa á Norður- löndum og í Bandaríkjunum. Hvernig hjúkrun vilt þú? Ég hef aldrei farið dult með það, að vera Evrópu- sinni. Ég er í hópi þeirra sem vilja að Íslendingar ljúki aðildarviðræðum við Evrópusambandið og síðan verði málið lagt fyrir þjóðina í allsherjar- atkvæðagreiðslu. Þetta eru mín viðhorf, enda þótt ég hafi auðvitað þann var- nagla á, hvort samningar við EBS séu ásættanlegir fyrir land og þjóð, þegar þar að kemur. Þetta held ég að sé almenn afstaða fylgismanna aðildar- viðræðna. Þeir vilja sjá hvað er í pakkanum, áður en þeir gera upp sinn hug. Það er ábyrg og meðvituð afstaða að útiloka ekki aðild að Evrópusambandinu fyrir fram, eins og ástandið er hér á landi um þessar mundir. Þetta hefur lítið eða ekkert með mig sjálfan að gera, úr því sem komið er, hálfáttræðan manninn. Ég er að hugsa um framtíðina, börnin mín og komandi kynslóðir. Nú hef ég enga ástæðu til að gera lítið úr skoðunum þeirra, sem eru andsnúnir aðildar viðræðum. Ég efast ekki um að þeir hafi þá sannfæringu að aðild að ESB sé röng stefna. En mér með öllu óskiljanlegt hvers vegna þeir haga málflutningi sínum á þann hátt sem gert er. Sá málflutningur gengur því miður út á það, að röksemdir aðildar séu eingöngu innan tóm slagorð. Aðferðin sé sú, segja þeir, að „pikka upp línuna, éta þau upp og jarma, hvert eftir öðru, fáránleg, órökstudd slag- orð sem helst minna á rollurnar í Animal Farm“. Hvort sem það er á Evrópuvakt- inni, Morgunblaðinu, AMX eða ÍNN, þá er sífellt og stöðugt verið að atyrða það fólk og þau samtök, sem vilja fara samningaleiðina til enda. Fólk er sakað um landráð og undirmál, svik við fullveldið. Eða eitthvað þaðan af verra. Snjóhengja Hvers vegna eru til stjórnmála- menn og kjósendur á Íslandi, sem vilja ljúka aðildarviðræðum? Um þessar mundir, eins og gerst hefur í áratugi, hefur íslenska krónan fallið jafnt og þétt og leitt til rýrnunar kaupmáttar hins almenna launþega. Um þessar mundir eins og svo oft áður hefur verðtrygging krónunnar bitnað á skuldugum fjölskyldum sem engu gátu ráðið um bankahrun og fjár- málakreppu. Um þessar mundir standa menn ráðþrota gagnvart snjóhengju, sem vofir yfir vegna inneigna erlendra fjárfesta, sem vilja ná peningunum sínum út úr frosnu fjármálakerfi. Um þess- ar mundir fækkar þeim erlendu aðilum, sem hafa áhuga á að fjár- festa í okkar litla landi, af því óvissan er svo mikil. Um þessar mundir, eins og reyndar allt mitt líf, erum við með gjaldmiðil sem er hvergi í heiminum gjaldgengur. Þetta er staðan á Íslandi í dag og það eru ómaklegar ásakanir að ein leiðin út úr þessum ógöngum, kannske sú einasta, sé sprott- in af auðmýkt gagnvart Evrópu eða þetta sé atlaga að fullveld- inu. Á viðreisnarárunum gengu Íslendingar í EFTA, tollabanda- lag Evrópuríkja. Á síðasta áratug liðinnar aldar gengu Íslendingar í Evrópska efnahagssvæðið. Í fram- haldinu ákváðum við að taka upp Schengen-samkomulagið. Allt hefur þetta verið gert án þess að Íslendingar hafi misst forræði á sínum málum. Við höfum kallað þessa samninga yfir okkur og lifað með þeim, án þess að farga full- veldi og sjálfstæði, hvort heldur að mati þjóðar eða þings. Það er lágkúrulegur málstaður að gera öðrum upp svik og landráð eða annarleg óþjóðleg viðhorf, þótt sitt sýnist hverjum. Við erum öll heiðarlegir Íslendingar, sem vilja að Íslandi vegni vel. Það hefur enginn efni á því að uppnefna sam- landa sína, með því að líkja þeim við jarmandi rollur í Animal Farm. Hættum þessu ómerkilega orða- skaki og tölum saman af raunsæi og virðingu. Um jarmandi rollur í Animal FarmKJARAMÁL Ragnheiður Gunnarsdóttir hjúkrunarfræðingur ➜ Að mínu mati þarf að taka pólitíska ákvörðun um framtíð hjúkrunarþjónustu á Íslandi og það fyrr en seinna. EVRÓPUMÁL Ellert B. Schram ellilífeyrisþegi ➜ Hvort sem það er á Evrópuvaktinni, Morgunblaðinu, AMX eða ÍNN, þá er sífellt og stöðugt verið að atyrða það fólk og þau samtök, sem vilja fara samningaleiðina til enda. ATVINNA Hannes G. Sigurðsson aðstoðarfram- kvæmdastjóri Samtaka atvinnu- lífsins ➜ Flutningsjöfnuður Íslendinga hefur yfi rleitt verið neikvæður undanfarna áratugi og var árið 2012 vel yfi r meðaltali þess tímabils. Á árinu var nettó brott- fl utningur Íslendinga sá sjötti mesti síðustu tvo áratugi. fjöldi % af vinnuafli Fækkun atvinnulausra 2009-2012 -3.900 -2,3% Brottflutningur vinnuafls 2010-2012 2.700 1,6% Fjöldi í vinnumarkaðsúrræðum 2012 1.200 0,7% Samtals 0 0,0% Tölfræðin
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.