Fréttablaðið - 31.01.2013, Qupperneq 40
KYNNING − AUGLÝSINGApótek FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 20132
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 Umsjónarmenn auglýsinga: Elsa Jensdóttir, elsaj@365.is, s. 512-5427 Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal.
Meðal þess sem safngestir geta skoðað eru heil-steyptar innréttingar úr
Lyfjabúðinni Iðunni sem fyrsti
kvenlyfjafræðingur á Íslandi,
Jóhanna Magnúsdóttir, opn-
aði árið 1928. Hún lét sérhanna
innrétting arnar á sínum tíma og
smíða í Danmörku.
Í safninu eru einnig hlutir úr
innréttingum annarra apóteka,
svo sem gamla Ingólfsapóteki,
Hafnarfjarðarapóteki og apótek-
inu í Vestmannaeyjum. Öll þessi
apótek voru innréttuð á glæsi-
legan hátt með virðulegum inn-
réttingum. Að auki eru ýmsir
hlutir, áhöld og tæki til sýnis sem
notuð voru í apótekum og við
lyfjaframleiðslu fyrri ára. Lyfja-
framleiðslu var hætt í íslenskum
apótekum árið 1985 en um sama
leyti var ákveðið að setja á stofn
lyfjafræðisafn. Í safninu má sjá
muni og minjar úr íslenskum
apótekum frá upphafi þessarar
aldar fram til okkar daga og skoða
hvernig lyfjagerð var háttað enn
lengra aftur í tímann.
Það voru ekki einungis lyf sem
framleidd voru í apótekunum
heldur alls kyns efni önnur, meðal
annars fyrir gull- og silfursmiði,
framkallarar fyrir ljósmyndara,
hárlakk, alls kyns krydd og krydd-
blöndur, matarsódi og lyftiduft,
fatalitir og bón svo fátt eitt sé nefnt.
Lyfjafræðisafnið er sjálfseignar-
stofnun í tengslum við Lyfja-
fræðingafélag Íslands. Safnið er
í gömlu fjósi sem tilheyrði Nes-
stofu. Stærstan þátt í uppbygginu
safnsins eiga Ingibjörg Böðvars-
dóttir, Áslaug Hafliðadóttir, Axel
Sigurðsson, Kristín Einarsdóttir
og Sverrir Magnússon.
Í Nesstofu, sem er skammt
frá Lyfjafræðisafninu, var fyrsta
apótek á Íslandi en innrétting þess
hefur verið endurgerð. Lækninga-
minjasafn er staðsett í Nesstofu og
þar má kynnast sögu fyrsta land-
læknisins, Bjarna Pálssonar. Á
safnasvæðinu er auk þess urta-
garður þar sem ýmsar lækninga-
jurtir eru ræktaðar.
Söfnin eru lokuð yfir vetrar-
mánuðina en hópar geta pantað
tíma til skoðunar.
Gömlu lyfjabúðirnar fá nýtt líf
Lyfjafræðisafn hefur verið starfrækt við Neströð á Seltjarnarnesi, rétt við Nesstofu, frá því í október 1994. Þar eru margir áhugaverðir
munir og innréttingar úr sögu lyfjaverslana á Íslandi.
Fleira var selt í apótekum fortíðarinnar
en lyf.
Margir muna eftir þessum gamla búðar-
kassa.
Fallegar innréttingar úr Lyfjabúðinni Iðunni eru uppsettar í Lyfjafræðisafninu. MYNDIR/ANTON
Ég hef fundið rosalega mikinn mun á því hvað ég er mikið hressari þegar ég vakna á morgnana. Auk þess finn ég
að ónæmiskerfið er mun sterkara enda hef
ég ekkert orðið veik í vetur, ekki einu sinni
fengið kvefpest,“ segir Ragnhildur Rósa
Guðmundsdóttir, sem spil-
ar handbolta með meistara-
deild Vals ásamt því að vera í
íslenska kvennalandsliðinu.
Hún hefur í nokkra mánuði
tekið inn Wellwoman Sport.
Liðsfélagi hennar, Þorgerður
Anna Atladóttir tekur í sama
streng. „Ég finn mikinn mun á
mér um eftirmiðdaginn, eftir
vinnu var ég oft mjög þreytt
og langaði helst að leggja mig
en nú finnst mér ég ekki þurfa
þess,“ segir hún og bætir við
að henni finnist hún líka mun
ferskari á æfingu. „Ég er mikið
meira til í að fara á æfinguna og er á fullu
allan tímann.“
Wellwoman Sport and f itness er
sérhannað vítamín fyrir konur og er hluti
af V ITABIOTICS-vítamínlínunni frá
Icepharma sem inniheldur vítamín og
bætiefni sérsniðin fyrir mismunandi þarf-
ir einstaklinga á öllum aldri. Wellwoman
Sport var þróað sérstaklega fyrir konur sem
stunda miklar æfingar og vilja skara fram
úr á sviði íþrótta og líkamsræktar en mætir
einnig þörfum hinnar nútímalegu konu
sem stundar vinnu og almenna hreyfingu.
Rag nhildur seg ist f ljót lega hafa
fundið mun á sér eftir að hún hóf að taka
Wellwoman Sport. „Ég fann
mun á mér eftir viku eða
tvær. Þá varð ég mikið
hressari og hafði miklu
meiri orku yfir daginn.
Þegar maður er að vinna
allan daginn og fer svo
beint á æfingu munar
það miklu,“ segir hún en
Ragnhildur og Þorgerð-
ur fara á æfingu fjórum
sinnum í viku og spila
iðulega leik á laugardegi.
Þær þurfa því á orkunni
að halda.
Flestir íþróttamenn
sem stunda stífar æfingar
taka inn aukalega fæðubótarefni af ein-
hverju tagi. Þær Ragnhildur og Þorgerð-
ur segjast ekki þurfa neitt meira en
Wellwoman Sport ef frá er talið D-víta-
mín sem allir ættu að taka. „Þá er líka
gott að vita að Wellwoman er sykur-
laust og saltlaust. Maður veit að gæðin
eru í lagi,“ segir Ragnhildur.
Dagskammtur af Wellwoman Sport
er ein tafla á dag sem tekin er með aðal-
máltíðinni. Þær stöllur taka hana
með hádegismatnum sem veit-
ir þeim orku yfir daginn. Tafl-
an inniheldur 25 næringarefni.
„Meðal annars guarana og grænt
te sem hefur örvandi áhrif og er
orkugefandi,“ upplýsir Ragn-
hildur en meðal annarra
efna má nefna Q-10 og L-
karnitín auk betakarótíns.
Þó Wellwoman Sport sé
sniðið að þörfum íþrótta-
kvenna mæla þær Ragn-
hildur og Þorgerður með
því fyrir allar konur á
aldrinum 20 til 50 ára sem
stunda einhverja hreyf-
ingu.
Í vítamínlínunni frá
Vitabiotics ætti hver og
einn að finna vítamín
við sitt hæfi en í línunni
eru einnig sérhæfð vítam-
ín fyrir börn, unglinga og
karla á öllum aldri. Vítamínin
frá Vitabiotics fást í apótekum
og stórmörkuðum.
Landsliðskonur mæla með
sérhönnuðum vítamínum
Handboltakonurnar Þorgerður Anna Atladóttir og Ragnhildur Rósa Guðmundsdóttir mæla með Wellwoman Sport-vítamíni fyrir
allar konur sem stunda hreyfingu. Ekki síst þær sem stunda miklar æfingar og vilja skara fram úr. Þær finna mikinn mun á sér eftir
að þær fóru að taka inn vítamínin og segjast orkuríkari og hressari.
Handboltakonurnar Ragnhildur Rósa Guð-
mundsdóttir og Þorgerður Anna Atladóttir eru
ánægðar með Wellwoman Sport-vítamínin.