Fréttablaðið


Fréttablaðið - 31.01.2013, Qupperneq 72

Fréttablaðið - 31.01.2013, Qupperneq 72
31. janúar 2013 FIMMTUDAGUR| SPORT | 56 ÍÞRÓTTIR 21 afreksíþróttamaður fékk í gær úthlutun úr Afrekssjóði ÍSÍ fyrir árið 2013, þar af fengu fimm A-styrk. Framlag ríkissjóðs í Afrekssjóðinn hefur hækkað í 55 milljónir króna en var áður 34,7 milljónir króna. Að auki er Afreks- sjóður ÍSÍ fjármagnaður með hlut- deild íþróttahreyfingarinnar í tekjum Íslenskrar getspár. Gera má ráð fyrir að það sé um það bil til jafns við framlag ríkissjóðs. Stjórn Afrekssjóðs ÍSÍ ákvað því að hækka svokallaða A- og B- styrki um 40 þúsund krónur og C- styrk um 20 þúsund krónur. Alls eru fimmtán einstaklingar á slík- um styrkjum en sex á eingreiðslu- styrk úr sjóðnum. Afrekssjóðurinn úthlutar sam- tals tæplega 72 milljónum króna og þá mun Styrktarsjóður ungra og framúrskarandi efnilegra íþrótta- manna úthluta tíu milljónum í ár. Þeir íþróttamenn sem fá styrk úr sjóðnum geta notað hann fyrst og fremst til að fá endurgreiddan útlagðan kostnað vegna þátttöku þeirra á mótum og undirbúningi vegna þeirra. Styrkurinn er því ekki ætlaður til daglegrar fram- færslu íþróttafólksins. „Styrktarupphæðir hækka nú í fyrsta sinn um langt skeið,“ sagði Ólafur Rafnsson, forseti ÍSÍ, á blaðamannafundi í Laugardalnum í gær. „Þetta hljómar ekki eins og háar fjárhæðir og eru það heldur ekki. Þær eru aðeins ætlaðar til að sjá fyrir grunnkostnaði og er ekki hægt að flokka þetta sem laun.“ Einnig var ákveðið að breyta áherslum í styrkveitingu og nota hluta framlagsins til að efla þjón- ustu fagteymis og fræðslu fyrir sérsamböndin og íþróttamenn þeirra. Þannig fara tæpar 64 milljónir beint í afreksstarfið en átta milljónir til eflingar fræðslu- og fagteymisvinnu. Þá er einnig ætlað að efla svokallaðar mæl- ingar fyrir íþróttamenn, sem eru meðal annars ætlaðar til að fyrir- byggja meiðsli og ranga þjálfun. Þá var gerð sú breyting að fækka styrkjum til einstaklinga og auka framlag til sérsambanda, sem hafa því úr meiru að ráða til að fjármagna einstök verk- efni fyrir sitt íþróttafólk. Örn Andrésson, formaður Afreks- sjóðsins, segir að með þessu geti úthlutunin náð til fleiri íþrótta- manna, sem ekki fá sérstaka ein- staklingsstyrki. „Hvernig það verður útfært kemur ljós hjá hverju sér sambandi fyrir sig. Þetta er þó gert með unga og efnilega íþróttamenn í huga og er til dæmis ætlað til að efla fræðslu og ýmis áhersluatriði tengd því,“ sagði Örn og bætti við að það hefði verið vilji sjóðsins að gera enn róttækari breytingar. „Því miður gefur þessi hækkun ekki tilefni til þess,“ sagði hann. Í gær var einnig tilkynnt að Ólympíusamhjálpin myndi veita nítján milljónir í styrkveitingar þetta árið. Það er sambærilegur styrkur og verið hefur síðast- liðin ár. Styrkþegar eru fyrst og fremst þeir sem stefna á þátttöku á Vetrar ólympíuleikunum í Sochi eftir rúmt ár en fimm skíðamenn fá úthlutað úr sjóðnum nú, þó svo að enn fleiri stefni að því að ná lág- mörkum fyrir leikana. eirikur@frettabladid.is Þetta hljómar ekki eins og háar fjárhæðir og eru það ekki heldur. Ólafur Rafnsson, forseti ÍSÍ. 14,9% Heildarút- hlutun Afreks- sjóðs, 72 milljónir, dugar fyrir litlum hluta af heildarkostnaði við afreksstarf sérsamband- anna, 482 m. kr. Styrkveitingar efl dar hjá ÍSÍ Úthlutað var í gær úr Afrekssjóði ÍSÍ og Styrktarsjóði ungra og framúrskarandi efnilegra íþróttamanna fyrir árið 2013. Styrkirnir til afreksíþróttamanna hækka auk þess sem áherslum var breytt í styrkveitingunni. 81 MILLJÓN TIL AFREKSTARFS Ólafur Rafnsson, forseti ÍSÍ, fer yfir styrkveitingar úr Afrekssjóði ÍSÍ þetta árið. Sitjandi eru Örn Andrésson, formaður Afrekssjóðs ÍSÍ, og Líney Rut Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri ÍSÍ. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI A-styrkur– 200.000 kr. á mánuði Hverjir fá styrkinn: Þeir sem eiga raunhæfa möguleika á að komast í hóp átta bestu á heimsvísu í sinni grein. ➜ Auðunn Jónsson, kraftlyftingar ➜ Ásdís Hjálmsdóttir, frjálsíþróttir ➜ Ásgeir Sigurgeirsson, skotíþróttir ➜ Eygló Ósk Gústafsdóttir, sund ➜ Jón Margeir Sverrisson, íþróttir fatlaðra B-styrkur– 120.000 kr. á mánuði Hverjir fá styrkinn: Þeir sem eiga raunhæfa möguleika á að komst í hóp 20 bestu á heimsvísu í sinni grein. ➜ Hrafnhildur Lúthersdóttir, sund C-styrkur– 60.000 kr. á mánuði Hverjir fá styrkinn: Þeir sem eiga raunhæfa möguleika á að komst í hóp 40 bestu á heimsvísu í sinni grein. ➜ Anton Sveinn McKee, sund ➜ Einar Daði Lárusson, frjálsíþróttir ➜ Helgi Sveinsson, íþróttir fatlaðra ➜ Kári Steinn Karlsson, frjálsíþróttir ➜ Óðinn Björn Þorsteinsson, frjálsíþróttir ➜ Þormóður Árni Jónsson, júdó ➜ Aðalheiður Rósa Harðardóttir, karate ➜ María Guðsteinsdóttir, kraftlyftingar ➜ Júlían J.K. Jóhannsson, kraftlyft- ingar Styrkir Afrekssjóðs ÍSÍ fyrir árið 2013 ÍÞRÓTTIR Þrátt fyrir aukið framlag ríkis- sjóðs í Afrekssjóð ÍSÍ á íslenskt afreks- íþróttafólk enn langt í land í baráttu sinni fyrir bættum kjörum. Þetta kom fram á blaðamannafundi ÍSÍ í gær en þá var til- kynnt um úthlutanir úr Afrekssjóðnum. Það afreksfólk sem ákveður að helga sig íþrótt sinni í þeirri viðleitni að ná sem lengst á heimsvísu, verður sjálft að sjá fyrir framfærslu sinni. Eins og síðustu ár er framlag úr Afrekssjóði ÍSÍ nánast eingöngu ætlað til að endurgreiða útlagð- an kostnað vegna keppnis- og æfinga- ferðalaga. Fram kom á fundinum í gær að núverandi styrkveitingar dygðu ekki einu sinni til þess í langflestum tilvikum. Þegar ferlinum lýkur blasir því ekki annað við fyrir íþróttafólkið en að byrja á núllpunkti – og líklega skuldugt þar að auki. Áunnin réttindi, til dæmis hvað varðar lífeyri og fæðingarorlof, eru engin. Líney Rut Halldórsdóttir, fram- kvæmdastjóri ÍSÍ, segir að núverandi fjárhagur íþróttahreyfingarinnar bjóði ekki upp á breytingar í þessum efnum. „Það er enn fjarlægur draumur að geta boðið afreksfólki okkar upp á að geta stundað íþrótt sína án þess að hafa áhyggjur af slíkum málum. Núverandi framlag býður ekki upp á það,“ sagði Líney. Ólafur Rafnsson, forseti ÍSÍ, segir for- ystu íþróttahreyfingarinnar meðvitaða um vandann. „Við höfum fjallað um þetta og tekið málið upp með ríkisvaldinu með reglulegu millibili. Ég hef farið víða og rætt við kollega í Evrópu þar sem þessum málum er öðruvísi farið.“ Þeir sem sátu fyrir svörum á fund- inum í gær voru spurðir hvort þeir bæru sig saman við aðra málaflokka, til dæmis listamannalaun sem hafa verið til umræðu í þjóðfélaginu að undanförnu. „Við höfum ekki viljað stilla þessu upp sem andstæðum,“ sagði Ólafur. „En ég neita því ekki að það væri óskandi að okkar afreksfólk væri stutt með sam- bærilegum hætti, án þess að taka neitt frá öðrum. Mér er ljóst að það er vitlaust gefið á Íslandi.“ - esá Formaður ÍSÍ segir vitlaust gefi ð á Íslandi Afreksfólk í íþróttum þarf að sjá sér sjálft fyrir framfærslu og ávinnur sér engin réttindi á íþróttaferlinum. Ekkert verður af því að Einar Daði Lárusson taki þátt í fjölþrautarmóti í Tallinn um helgina en ÍR-ingurinn hafði fengið boð um að taka þátt í sjöþrautakeppni mótsins. „Við vorum búnir að plana það að fara að keppa í Tallinn en ég er það tæpur í hásininni að við ákváðum að hætta við það því við vildum ekki taka neina áhættu. Hásinar- meiðsli eru slæm en þetta er ekki svo alvarlegt eins og er. Við nennum ekki að lenda í því að þetta verði eitthvað alvarlegt því þá tekur það svo langan tíma,“ sagði Einar Daði. Einar Daði stimplaði sig inn í tugþrautarheiminn á síðasta ári þar sem hann bætti sig mikið og náði meðal annars bestu þraut allra Norðurlandabúa. International Combined Events Meeting er árlegt boðsmót og það er mikill heiður fyrir Einar Daða að vera boðið á svo sterkt mót. „Það þýðir ekki að hugsa til skamms tíma. Ég gæti kýlt á einhverja þraut en myndi kannski rústa á mér löppinni í leiðinni,“ segir Einar Daði og bætir við: „Það hefði verið hrikalega gaman að fara á þetta mót. Bæði er þetta ótrúlega sterkt mót og svo hef ég heyrt að það sé gaman að koma til Eistlands. Eistarnir kunna bæði að meta Íslendinga og fjölþrautarmenn,“ segir Einar Daði. Hann sér jafnframt með þessu mögu- leikann á því að komast á EM í Gautaborg renna frá sér en þeir sextán með besta árangurinn á innanhússtíma- bilinu komast þangað. „Ég hugsa að það verði ekkert núna. Ég hefði þurft að ná sjöþraut inn,“ segir Einar Daði. Einar Daði hætti við þátttöku á sterku móti í Tallinn Fram og Valur mætast klukkan 19.30 í kvöld í Framhúsinu í toppslag N1-deildar kvenna í handbolta. Í huga margra er leikur kvöldsins í Safamýrinni óopinber úrslitaleikur um deildar- meistaratitilinn. Liðin eru jöfn að stigum á toppi deildarinnar en Valskonur eru með betri innbyrðis stöðu eftir 33-28 sigur í fyrri leik liðanna á dögunum. Fram kemst á toppinn með sigri en þarf hins vegar sex marka sigur til þess að standa betur í innbyrðis leikjum liðanna. Liðin hafa mæst tvisvar sinnum á einum mánuði. Fram vann 29-24 sigur í úrslitaleik Flugfélags Íslands deildarbikarsins í Laugardals- höllinni í lok desember en Valskonur hefndu með fimm marka sigri í deildinni fimmtán dögum síðar. Toppsætið undir í Safamýri oryggi.is Sími 570 2400 Verðmætaskápar í miklu úrvali ÚRSLIT ENSKA ÚRVALSDEILDIN ARSENAL-LIVERPOOL 2-2 0-1 Luis Suarez (4.), 0-2 Jordan Henderson (60.), 1-2 Olivier Giroud (64.), 2-2 Theo Walcott (67.) NORWICH-TOTTENHAM 1-1 1-0 Wesley Hoolahan (31.), 1-1 Gareth Bale (80.). EVERTON-WBA 2-1 1-0 Leighton Baines (29.), 2-0 Leighton Baines, víti (45.+2), 2-1 Shane Long (65.) MAN. UTD-SOUTHAMPTON 2-1 0-1 Jay Rodriguez (3.), 1-1 Wayne Rooney (7.), 2-1 Wayne Rooney (27.) READING-CHELSEA 2-2 0-1 Juan Mata (45.+1), 0-2 Frank Lampard (66.), 1-2 Adam le Fondre (86.), 2-2 Adam le Fondre (90.+5) FULHAM-WEST HAM 3-1 1-0 Dimitar Berbatov (11.), 1-1 Kevin Nolan (47.), 2-1 Hugo Rodallega (48.), 3-1 Joey O‘Brien, sjm (90.+1) Staðan Man. Utd 24 19 2 3 59:31 59 Man. City 24 15 7 2 45:19 52 Chelsea 24 13 7 4 49:24 46 Tottenham 24 12 6 6 41:29 42 Everton 24 10 11 3 37:27 41 Arsenal 24 10 8 6 48:29 38 Liverpool 24 9 8 7 42:30 35 Swansea 24 8 10 6 34:27 34 W.B.A. 24 10 4 10 34:34 34 Stoke 24 6 12 6 24:29 30 Sunderland 24 7 8 9 27:31 29 Fulham 24 7 7 10 36:41 28 West Ham 24 7 6 11 27:36 27 Norwich 24 6 9 9 25:40 27 Newcastle 24 6 6 12 30:42 24 Southampt. 24 5 8 11 31:42 23 Wigan 24 5 5 14 27:45 20 Aston Villa 24 4 8 12 20:46 20 Reading 24 4 8 12 30:45 20 Q.P.R. 24 2 10 12 18:37 16 HANDBOLTI Norska landsliðs- konan Heidi Löke og félagar hennar í ungverska stórliðinu Györ þurfa nú að spila í pilsum samkvæmt fyrirmælum frá yfir- mönnum félagsins, en liðið er líklegt til stórafreka í Meistara- deildinni í vor. „Ég er ekki á móti því að spila í pilsi en þetta er nú samt ekki alveg ég. Ég spila í pilsi ef ég þarf þess og það verður bara gaman að prófa þetta,“ sagði Heidi Löke við Verdens Gang. Liðsmenn Györ eru þegar búnar að spila einn leik í pilsunum en þær hafa enn ekki æft í nýja keppnisbúningnum. - óój Handboltalið í pilsum SPORT
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.