Fréttatíminn - 22.06.2012, Síða 14
Í HAND
HÆGUM
UMBÚÐ
UM
NÝJUN
G
Þræddir, bræddir, snæddir. Í salatið, í nestisboxið, á ostapinnann
og út í heita rétti. Það eru nánast engin takmörk fyrir möguleikum
ostakubbanna.
H
V
ÍT
A
H
Ú
SI
Ð
/
S
ÍA
K
ona nokkur er nú
komin hátt í þrjá mán-
uði á leið með fimmb-
ura og er það í fyrsta
sinn sem það gerist
hér á landi, að sögn Huldu Hjartar-
dóttur, yfirlæknis á kvennadeild
Landspítalans: Aldrei áður hefur
það gerst hér á landi að kona hafi
orðið barnshafandi af fimmburum
en fjórburar fæddust hér á landi
árið 1998 þá er fjórar stúlkur komu
í heiminn.
Konan vill ekki láta nafn síns get-
ið því hún og eiginmaður hennar
standa nú frammi fyrir þeirri erfiðu
ákvörðun hvort þau eigi að fara
að ráðleggingum lækna og fækka
fóstrunum. Þau vilja fá næði til að
taka þá erfiðu ákvörðun en féllust
á að segja lesendum Fréttatímans
sögu sína, enda hér um einstæðan
viðburð er að ræða. Um er að ræða
hjón á þrítugsaldri, búsett í Reykja-
vík en þau eru einmitt að leita sér
að húsnæði um þessar mundir.
Á von á fimmburum
Hjón í Reykjavík standa frammi fyrir afar erfiðri ákvörðun sem er hvort þau eigi, samkvæmt læknis-
ráði, að fækka fóstrum um þrjú niður í tvö! Konan gengur sem sagt með fimmbura og er þetta í fyrsta
skipti sem slík gerist á Íslandi. Sigríður Dögg Auðunsdóttir ræddi við hina verðandi móður.
Konan varð barnshafandi fyrir til-
stuðlan tæknisæðingar með aðstoð lækna
í Art Medica. Um er að ræða fimm egg
sem frjóvguðust en að sögn Guðmundar
Arasonar, frjósemislæknis á Art Medica,
er afar sjaldgæft á heimsvísu að slíkt ger-
ist og einsdæmi hér á landi, eins og áður
sagði. Tæknisæðing fer þannig fram að
konunni er gefið hormón til að örva vöxt
og þroska eggbúa. Síðan er sæðisfrumur
settar upp í leghol konunnar með örfínum
plastlegg.
Héldu að eggin væru tvö
Að sögn konunnar voru gerðar rann-
sóknir áður en tæknisæðingin fór fram
sem leiddu í ljós að tvö egg hefðu losnað.
Læknarnir sögðust hafa séð tvö önnur
egg sem væru ekki þroskuð. Áttu hjónin,
sem og læknarnir, því von á því að ef með-
ferðin tækist vel myndu hjónin í mesta
lagi geta vonast eftir tvíburum. Síðar
kom í ljós að eggin voru að minnsta kosti
fimm.
„Við urðum að sjálfsögðu mjög ánægð
þegar í ljós kom að meðferðin heppnaðist
og þungunarprófið var jákvætt,“ segir
konan í samtali við Fréttatímann. Ekki
var gleðin minni í fyrstu sónarskoðun
hjá Art Medica þegar tvö fóstur sáust.
„Maðurinn minn fullyrti reyndar við mig
eftir skoðunina að hann hefði séð þriðja
fóstrið, en þegar ég kom í aðra sónarskoð-
unina og sagði hjúkrunarfræðingnum frá
því sagði hún að það væri mjög algeng
missýn,“ segir konan.
Hún hafði farið ein í aðra sónarskoðun
því eiginmaður hennar var ekki á land-
inu. „Vinur okkar keyrði mig, en beið úti
í bíl á meðan. Ég sagði við hann í gríni,
áður en ég fór inn, að nú myndum við
fá að vita hvort börnin væru tvö eða þrjú –
eða kannski fjögur. Mér fannst það mjög
fyndið. Það var hins vegar ekki fyndið að sjá
svipinn á hjúkrunarfræðingnum þegar hún
horfði á skjáinn á meðan á sónarskoðuninni
stóð. „Þetta er ekki gott,“ sagði hún og mér
krossbrá. Hún sagði mér síðan að hún sæi
ekki betur en að fóstrin væru fimm og ég
fékk algjört áfall,“ segir konan. „Áfallið var
eiginlega mest vegna þess að ég hélt að ég
myndi þurfa að láta eyða þeim öllum því á
þeim tímapunkti vissi ég ekki hvað hægt
væri að gera í stöðunni. Síðan var útskýrt
fyrir mér að það besta í stöðunni væri að
láta fækka fóstrunum í tvö,“ segir hún.
„Þegar ég kom út í bíl og sagði vini okkar
frá þessu hélt hann náttúrulega að ég væri
að grínast. Hann áttaði sig fljótlega á því
að svo var ekki, þegar ég brast í grát. Ég
hringdi svo í manninn minn strax og ég
gat og sagði honum að við ættum ekki
von á tveimur börnum heldur fimm og að
læknarnir vildu að við fækkuðum þeim
í tvö. Hans fyrstu viðbrögð voru að við
skyldum reyna að eiga þau öll. En við erum
að velta þessu öllu fyrir okkur í samráði við
læknana,“ segir hún.
Erfið ákvörðun
Konan leggur ríka áherslu á að hún áfell-
ist ekki læknana á Art Medica. „Þetta er
engum að kenna. Þetta bara gerðist og nú
verðum við bara að sjá hvernig þetta fer,“
segir hún. Guðmundur hjá Art Medica segir
að fimmburameðganga sé ein af auka-
verkununum meðferðarinnar en ákaflega
Hún sagði
mér síðan
að hún
sæi ekki
betur en
að fóstrin
væru
fimm og
ég fékk al-
gjört áfall.
Sigríður Dögg
Auðunsdóttir
sigridur@ frettatiminn.is
Framhald á næstu opnu
Hjón í Reykjavík eiga von á fimmburum.
Konan fékk áfall þegar henni voru færð
tíðindin, enda hélt hún að hún þyrfti að láta
eyða öllum fóstrunum. Ljósmynd/Hari
14 viðtal Helgin 22.-24. júní 2012