Fréttatíminn - 22.06.2012, Page 20
Nýjung!
D-vítamínbætt
LÉttmJÓLK
Landsmóðirin gegn forsetanum
Ólafur Ragnar Grímsson kann þetta, segja sérfræðingar í ímyndarmálum. Hann hefur reynsluna og
nýtir sér hana. Þóra ætlaði að verða hin bjarta landsmóðir en kemur því ekki nægilega vel til skila.
Sigríður Dögg Auðunsdóttir ræddi við sérfræðinga í ímyndarmálum um þá ímynd sem forsetafram-
bjóðendurnir hefðu lagt upp með og kannaði einnig hverjir standa þeim að baki.
E
nginn fer einn í forsetafram-
boð. Framboð til forseta Ís-
lands krefst mikillar vinnu,
gríðarlegrar skipulagningar
og úthalds. Forsetaframbjóð-
andinn ferðast um land allt og hittir fólk
og því þarf að skipuleggja fundi, vekja á
þeim athygli og sjá til þess að allt gangi
þar snurðulaust. Ekki minna máli skiptir
hvað frambjóðandinn segir á fundinum
og hvernig hann kemur fyrir. Það þarf
að falla að þeirri ímynd sem forsetafram-
bjóðandinn leggur upp með í upphafi og
aðdraganda kosningabaráttunnar. Ímynd-
in þarf jafnframt að falla vel að þeirri pers-
ónu sem býður sig fram svo hún sé sann-
færandi og virki vel á kjósendur.
Fréttatíminn leitaði til nokkurra sér-
fræðinga í ímyndarmálum og fékk þá til
að leggja mat á það hvaða ímynd hver
frambjóðandi hefði lagt upp með og
hvernig honum væri að takast að fylgja
henni eftir.
Góður forsetakandídat þarf að hafa
yfir að búa nokkrum mikilvægum eigin-
leikum. Hann þarf að vera vel menntað-
ur, vel mæltur á erlenda tungu og hann
þarf að geta fótað sig hvar sem er, inn-
anlands sem utan. Hann þarf ennfrem-
ur að vera lífsreyndur og hafa þurft að
takast á við erfiðleika sem hafa mótað
hann og þroskað. Góður forsetakandí-
dat þarf að hafa framtíðarsýn og geta
miðlað henni með sannfærandi hætti.
Hann þarf jafnframt að hafa útgeislun
og sterkan persónuleika, það sem
nefnt hefur verið kjörþokki.
Að mati þeirra sérfræðinga sem
Fréttatíminn ræddi við er Ólafur
Ragnar Grímsson sá forsetafram-
bjóðendanna sex sem býr yfir flestum
þeirra eiginleika sem nefndir eru hér
að ofan. Endurspeglast það jafnframt
í nýjustu skoðanakönnunum á fylgi
frambjóðendanna. Þar eru tveir lang-
efstir Ólafur Ragnar Grímsson og
Þóra Arnórsdóttir en Ari Trausti Guð-
mundsson fylgir þar á eftir. Hinir þrír
eru með umtalsvert minna fylgi, Her-
dís Þorgeirsdóttir, Hannes Bjarnason
og Andrea Ólafsdóttir. Enn er þó rúm
vika til stefnu og eins og reyndar kon-
ur segja: vika er langur tími í pólitík.
Sigríður Dögg
Auðunsdóttir
sigridur@ frettatiminn.is
Enn er þó
rúm vika
til stefnu
og eins og
reyndar
konur
segja: vika
er langur
tími í
pólitík.
20 úttekt Helgin 22.-24. júní 2012
Framhald á næstu opnu