Fréttatíminn


Fréttatíminn - 22.06.2012, Side 22

Fréttatíminn - 22.06.2012, Side 22
22 úttekt Helgin 22.-24. júní 2012 Lín Design Laugavegi 176 Sími 533 2220 www.lindesign.is Kíktu á gjafatilboðin lindesign.is Einstakar búðargjafir Áprentað merki fyrirtækis eða eigin hönnun 500 stk á aðeins 120.000 án vsk. Höfuðklútar fyrir öll tækifæri! Sími: 533-1510 elin@markadslausnir.is Hlutlausi fræðimaðurinn Ari Trausti Guðmundsson aritrausti.is Ari Trausti lagði upp með þá ímynd sem hann hafði þegar áskapað sér sjálfstæði, hlutlausi, ópólitíski fræði- maðurinn. Hann er í þriðja sæti, með umtalsvert minna fylgi en Ólafur og Þóra, og sleppur þar af leiðandi við neikvæða athygli. Sumir halda því jafnvel fram að hann hafi alltaf vitað að hann yrði aldrei forseti þó svo að hann telji sig hafa það fram að færa sem þarf til. Hans sterkasta vopn er hve mælskur hann er og hefur hann jafnframt náð að gagnrýna sitjandi forseta á trúverðugan hátt. Ari Trausti hefur farið að fordæmi sitandi forseta og fengið tengdason sinn til liðs við sig í baráttunni, Rúnar Þór Guðbrandsson. Hann hefur ekki lagt áherslu á að fá fagmenn með sér í baráttuna heldur treystir á stuðning vina og vandamanna. Mannréttinda- prófessorinn Herdís Þorgeirsdóttir herdis.is Herdís lagði upp með sömu ímynd og hún hafði haft enda nokkuð þekkt úr þjóðmálaumræðunni þar sem hún hefur komið fram sem gagnrýnn prófessor í lögum sem leggur áherslu á mannrétt- indi. Hún hefur hins vegar alltaf verið í hlutverki gagnrýnanda og greinanda og aldrei þurft að svara fyrir neitt er varðar hana sjálfa. Hún býr yfir mörgum þeim eiginleikum sem nefndir eru hér að framan, er vel menntuð, ágætlega kynnt og nokkra lífsreynslu. Hún fór því of seint af stað að mati sérfræðinga, og hefði átt að hefja undirbúning að framboði sínu fyrir tveimur árum með því að koma fram við opinber tækifæri og þess háttar. Í herráði Herdísar eru Dögg Pálsdóttir lögmaður, mynd- listarhjónin Hulda Hákon og Jón Óskar, kvikmyndagerðarkonan Elísabet Rónaldsdóttir, Guðrún Ásmundsdóttir leikkona, Sigur- laug Ragnarsdóttir, systir Ómars Ragnarssonar, Jörgína Elínbjörg Jónsdóttir, systkini Herdísar, Þor- steinn og Sigríður, Jakobína Ingunn Ólafsdóttir stjórnsýslufræðingur, Nathan Kolbeinsson, formaður ungra jafnaðarmanna í Reykjavík, Jón Þór Ólafsson, Kristín Ómars- dóttir og Guðný Oddsdóttir. Með augum útlendingsins Hannes Bjarnason jaforseti.is Hannes lagði upp með þá ímynd að vera sá sem sér samfélagið með augum þess sem stendur fyrir utan enda hefur hann búið í Noregi í 14 ár. Hann hefur reynt að nýta sér það sem styrk og bent á það í viðtölum og umræðuþáttum að hann hafi fylgst með því úr fjarlægð sem hér hefur gerst. Auk þess bendir hann á að hann sé af þeim sökum ótengdur hagsmuna- öflum hér á landi. Í herráði hans sitja vinir og skyldmenni, Ragnar Bjarnason íþróttakennari, sem er búsettur í Danmörku, er bróðir Hannesar og einnig Rúnar Birgir Gíslason og Sveinn Arnar Sæmundsson á Akranesi. Þjóðkjörni fulltrúinn Ólafur Ragnar Grímsson olafurogdorrit.is Ólafur Ragnar lagði upp þá ímynd með að vera hinn þjóðkjörni fulltrúi sem veitir ríkisstjórn- inni aðhald og viðnám og sækir atkvæði til þeirra sem eru and- stæðingar óvinsællar ríkisstjórnar. Ólafur talar einnig fyrir hönd ákveðinna atvinnugreina, svo sem sjávarútvegsins, stóriðju og bænda. Hann gerir út á það sem hann kallar óvissutíma og leggur á það áherslu að nauðsynlegt sé að vera með vanan mann í brúnni á slíkum tímum. Ólafur Ragnar hefur augljós- lega stúderað frambjóðendur víða um heim sem náð hafa árangri og hagar sér eins og þeir. Hann tekur til að mynda í höndina á öllum þeim sem hann getur og kemur fram við hvert tækifæri. Framboð hans hefur staðið yfir í langan tíma, í raun í mörg ár, og hefur hann þar með forskot á aðra fram- bjóðendur sem erfitt er að brúa. Hann er vel undirbúinn hvar sem hann kemur og er með tilbúin svör við öllu. Veikleikar hans hafa verið kortlagðir og mótsvör undirbúin, svo sem gagnvart þeirri gagnrýni að hann hafi setið of lengi, að hann hafi þjónað útrásarvíkingum og að hann sé of fjarlægur fólkinu. Í herráði Ólafs sitja dætur hans, Tinna og Dalla, og tengdasonur- inn Karl Pétur Jónsson, eiginmaður Tinnu. Kosningabaráttunni stýrir Ólafía B. Rafnsdóttir. Svo er því haldið fram að lögmaðurinn Sigurður G. Guðjónsson sé þar einnig en hann er þá sá eini af upp- runalegu herráði Ólafs Ragnars frá árinu 1996 þegar hann var kjörinn forseti í fyrsta sinn. Bjarta landsmóðirin Þóra Arnórsdóttir thoraarnors.is Þóra lagði upp með þá ímynd að verða forseti á borð við Vigdísi Finnbogadóttur. Ímyndin sem hún leitaðist við að ná var að vera hin bjarta landsmóðir sem veitir öllum öryggi og fólki líður vel með. Hún spilar á sameiningatáknið og ætlaði sér að koma inn í baráttuna eins og ferskur blær líkt og Vigdís gerði á sínum tíma. Henni virðist þó ekki takast að koma þessari ímynd til skila og hefði, að sögn eins sérfræðings, betur varið tíma í að stúdera það hvernig Vigdís kom fram, skoðað myndbönd með henni og hlustað á hana. Þóra er vinsæl sjónvarpskona sem fólk er hrifið af. Hins vegar virðist sem hún hafi ekki það sem þarf til að þjóðin sameinist um hana sem forseta, ef marka má skoðanakannanir. Þó má benda á að Þóra er með álíka mikið fylgi nú og Vigdís þegar hún náði kjöri sem forseti árið 1980 þegar atkvæðin dreifðust jafnar á frambjóðendur en nú virðist vera raunin. Þóra er með mikinn og stóran hóp stuðningsfólks á bak við sig. Í herráði hennar situr eigin- maðurinn Svavar Halldórsson, Friðjón R. Friðjónsson, fyrrum aðstoðarmaður Bjarna Benedikts- sonar, formanns Sjálfstæðis- flokksins, Hreinn Hreinsson, Ingvar Sverrisson, Gaukur Úlfarsson, sem er maðurinn á bak við Silvíu Nótt og Jón Gnarr borgarstjóra, Sigrún Þorgeirsdóttir kosningastjóri og Guðrún Pétursdóttir, fyrrum forsetaframbjóðandi. Aðrir nánir ráðgjafar eru sjónvarpskonurnar Inga Lind Karlsdóttir og Svanhildur Hólm Valsdóttir og fjölmiðakonan Katrín Bessadóttir, sambýliskona Helga Seljan, fréttamanns á RÚV. Einnig má nefna Andrés Jónsson almannatengil og Ásdísi Ólafs- dóttur, vinkonu Þóru. Afsprengi bús- áhalda byltingar Andrea J. Ólafsdóttir andreaolafs.is Andrea lagði upp með þá ímynd að vera málsvari lýðræðisins enda hefur hún barist fyrir hags- munum almennings sem formaður Hagsmunasamtaka heimilanna um skeið. Hún er nokkurs konar afsprengi búsáhaldabyltingarinnar og ætlar sér meðal annars að halda þjóðfund um hlutverk forsetans nái hún kjöri. Í herráði hennar sitja vinir og fjölskylda auk fólks sem tók þátt í búsáhaldabyltingunni. Einn ráðgjafa hennar er Þórður Björn Sigurðsson, fyrrum formaður Hagsmunasamtaka heimilanna og núverandi starfsmaður þingflokks Hreyfingarinnar. Framundan er lokahnykkurinn í baráttunni um Bessastaði en kosningar fara fram laugardaginn 30. júní. Sex frambjóðendur keppa um atkvæði þjóðarinnar.

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.