Fréttatíminn - 22.06.2012, Qupperneq 32
Óðinn Jónsson, fréttastjóri RÚV, sendi
Fréttatímanum eftirfarandi athugs-
asemd:
„Ágæti ritstjóri
Í síðasta tölublaði Fréttatímans er grein
um það hvernig lýsendur og sérfræðingar
standa sig í umfjöllun RÚV um EM í fót-
bolta. Gott og vel. Ekki er hægt að gera
athugasemd um það að fjölmiðill taki
þetta vinsæla efni til skoðunar. Það hlýtur
þó að vera lágmarkskrafa að það sé gert
af sanngirni og hófsemi – og þó einkum
og sér í lagi að dómar séu felldir af nafn-
greindum einstaklingum. Þetta fer alvar-
lega úrskeiðis í Fréttatímanum. Þar eru
meiðandi ummæli látin falla, án þess að
nafngreindur einstaklingur beri ábyrgð á þeim. Það
dugar auðvitað engan veginn að gera 10 nafngreinda
álitsgjafa ábyrga fyrir einstökum ummælum. Þá bætir
ekki úr skák að á lista álitsgjafa eru menn sem starfa
fyrir keppinauta RÚV og geta því á engan hátt talist
hlutlægir álitsgjafar. Furðu vekur að blað sem býður
sér sjálft inn á heimili fólks skuli standa
fyrir atvinnurógi og einelti sem þessu
gagnvart nafngreindum einstaklingi,
Adolf Inga Erlingssyni, sem hefur meira
en 20 ára reynslu sem íþróttafréttamaður.
Menn mega auðvitað hafa sína skoðun á
störfum hans og hæfileikum, en að ráðast
í skjóli nafnleyndar að æru hans á opin-
berum vettvangi er óþolandi. Fréttatím-
inn kemst að þeirri niðurstöðu að Adolf
Ingi sé versti lýsandinn, og lætur m.a.
þessi ummæli falla:
„Það má kæfa hann mín vegna.“
„Þátttaka hans hlýtur að vera eitthvað
grín.“
„Dolli er verstur. Þarf eitthvað að ræða
það?“
Það á engin manneskja skilið að sitja undir svona
meiðandi dómum um sína persónu, hvað þá börn
og aðrir aðstandendur viðkomandi. Ég fer fram á
að ritstjóri Fréttatímans biðjist afsökunar á þessum
skrifum í næsta tölublaði.
Með kveðju.“
Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjóri: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is Framkvæmdastjóri:
Teitur Jónasson teitur@frettatiminn.is . Auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson valdimar@frettatiminn.is. Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í
82.000 eintökum í Landsprenti.
K
Kaupmáttur Bandaríkjadollars hefur rýrnað
um 90 prósent á liðnum hundrað árum og
Kanadadollar hefur rýrnað enn meir. Und-
anfarin 50 ár hefur verðbólga í ensku pundi
samtals numið 2554 prósent en margir
gjaldmiðlar hafa rýrnað hraðar. Í þeim hópi
er íslenska krónan, eins og Frosti Sigurjóns-
son rekstrarhagfræðingur bendir á í nýju
hefti Þjóðmála þar sem hann talar um það
þekkta vandamál sem rýrnun
gjaldmiðla er, en orsökin felst
jafnan í of hröðum vexti pen-
ingamagns í umferð.
Saga íslensku krónunnar,
frá því að hún var skilin frá
þeirri dönsku stuttu eftir
að Ísland fékk fullveldi, er
ekki glæsileg þegar horft er
á hversu mikil virðisrýrnun
hennar hefur verið og því
ekki furða að ýmsir velti fyrir sér hvort ekki
kunni að vera betra að leggja hana niður
og taka upp annan gjaldmiðil, einhliða eða
í tengslum við aðild Íslands að Evrópu-
sambandinu. Spurningin er hins vegar sú
hvort krónan sé rót vandans eða óstöðugt
gengi hennar fremur birtingarmynd dýpri
vanda. Ef svo er, munu gjaldmiðilsskipti
draga úr vandanum eða gera það erfiðara
og dýrara fyrir samfélagið að takast á við
vandann? Þessu veltir Erlendur Magnússon
framkvæmdastjóri fyrir sér í sama hefti
tímaritsins og spyr, að vonum, hvort ekki sé
vænlegra að ráðast að rót vandans og gera
krónuna með þeim hætti stöðugri og verð-
lagsþróun hérlendis meira í samræmi við
verðlagsþróun í öðrum vestrænum löndum.
Á sama tíma og leiðtogar G-20 hópsins
funda um það með hvaða ráðum megi
bjarga evrusvæðinu og koma í veg fyrir upp-
lausn hljóta menn að velta þessu fyrir sér í
ljósi þess ástands sem ríkir meðal margra
þeirra Evrópuþjóða sem tekið hafa upp sam-
eiginlegan gjaldmiðil. Þær standa frammi
fyrir miklum efnahagslegum, pólitískum
og samfélagslegum vanda sem enn sér ekki
fyrir endann á, vanda sem reynist erfitt að
leysa án þjóðargjaldmiðils, eins og Erlend-
ur bendir á í grein sinni. Það að íslenska
krónan hafi ekki reynst vel þýði ekki að upp-
taka erlends gjaldmiðils muni reynast betur.
Vænlegra sé því að beina kröftunum fremur
að því að leiðrétta það sem við höfum
gert rangt fram til þessa og gert krónuna,
þjóðargjaldmiðil okkar, að betri gjaldmiðli
til framtíðar.
Í gegnum tíðina eru tvær meginástæður
fyrir sveiflum í gengi krónunnar og hlut-
fallslega hárrar verðbólgu umfram það sem
gerist í öðrum löndum, eins og Erlendur
bendir á, annars vegar ytri áföll sem raska
viðskiptakjörum og hins vegar agaleysi Ís-
lendinga í efnhagsmálum. Við hin ytri áföll
ráðum við ekki og verðum að bregðast við
afleiðingum þeirra en taka má á agaleysinu.
Birtingarmynd þess er meðal annars ör út-
gjaldaaukning hins opinbera sem oft er fjár-
mögnuð með lántökum eða tímabundinni
tekjuaukningu á þenslutímum. Sveitarfélög
hafa ekki síður verið óábyrg en ríkið. Of
ör útlánavöxtur banka og annarra útlána-
stofnana er annað dæmi agaleysis þar sem
mótaðilar útlánastofnana í óhófslántökum
eru fyrirtæki og heimili. Í þriðja lagi er
þekkt fyrirbrigði hérlendis, óhóflegir kjara-
samningar. „Vilji menn,“ segir Erlendur,
„stöðugt gengi og verðbólgu í takti við
það sem gerist í nágrannalöndum okkar
verða launahækkanir að takmarkast við
framleiðniaukningu og alþjóðaverðbólgu –
það skiptir engu hvað gjaldmiðillinn heitir,
undan þessu skilyrði verður ekki vikist.“
Temji Íslendingar sér slíkan efnahags-
aga þarf, að mati greinarhöfundar, ekki að
skipta gjaldmiðlinum út til þess að ná fram
stöðugleika. Að þeim orðum hljótum við
að gefa gaum. Verðgildi krónunnar myndi
eftir sem áður sveiflast hóflega á móti gengi
annarra gjaldmiðla. Slíkar breytingar eru
eðlilegar í þróuðu hagkerfi en hið mikilvæg-
asta yrði eftir, krónan sem öryggisventill
við skyndileg ytri áföll sem flýtti aðlögun og
dreifði kostnaði af áföllunum nokkuð jafnt
yfir samfélagið.
Króna eða upptaka erlends gjaldmiðils
Ráðast þarf að rót vandans
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
Óðinn Jónsson,
fréttastjóri RÚV
Lýsendur og knattspyrnusérfræðingar
Frammistaða sé metin
af sanngirni og hófsemi
Árétting
Þeir sem gegna áberandi störfum, eins og lýsendur og sérfræðingar EM-keppni í knattspyrnu í sjónvarpi,
þurfa að sæta því að skiptar skoðanir eru á frammistöðu þeirra. Eftir þeim skoðunum var leitað í hópi nafn-
greindra álitsgjafa Fréttatímans. Þar settu þeir fram lof og last, meðal annars á Adolf Inga Erlingssyni
íþróttafréttamanni, sem var í senn talinn versti lýsandinn og sá besti. Við þarf hann að una. Fyrstu ummælin
af þremur sem fréttastjóri RÚV tilgreinir eru hins vegar ósmekkleg. Í slíkum samantektum tala menn gjarna
tæpitungulaust, eins og vera ber, en ummæli eiga ekki að vera meiðandi. - ritstj.
H E LGA R BL A Ð
FERÐIR
SÉRBLAÐ
107 ÞÚSUND LESENDUR*
* capacent lestur í maí 2012 12 til 80 ára.
Í Fréttatímanum í næstu viku verður
allað um ferðalög frá ýmsum
sjónarhornum. Ef þú ert að bjóða ferðir
eða þjónustu og vilt koma því á framfæri
í kraftmiklum miðli hafðu samband.
Fréttatíminn kemur út í um 82.000
eintökum, er dreift um allt land og
er eitt mest lesna blað landsins.
Hafðu samband við Baldvin í síma 531 3311
eða á baldvin@frettatiminn.is
Þú nærð til markhópsins þíns
hjá okkur
32 viðhorf Helgin 22.-24. júní 2012