Fréttatíminn - 22.06.2012, Síða 36
4 garðar Helgin 22.-24. júní 2012
hveragerði sýning um helgina
Harðgerð tré og runnar fyrir garða og skógrækt
Úrval dekurplantna:
| Alparósir
| Klifurplöntur
| Rósir
| Sígrænir runnar
| Ávaxtatré
| Berjarunnar
Sími 483 4840 | GSM 698 4840
Heimasíða: www.natthagi.is
Netfang: natthagi@centrum.is
Ólafur Njálsson garðyrkjusérfræðingur
Opið kl. 10:00 - 19:00 frá sumardeginum fyrsta og fram á haust.
©
P
ál
l J
ök
ul
l 2
01
2
h elgina 22. - 24. júní 2012 verður Garðyrkju- og blómasýningin „Blóm
í bæ“ haldin í fjórða sinn í
Hveragerði. Fyrri sýningar hafa
notið mikillar hylli og þúsundir
gesta hafa sótt hátíðina heim
og notið þess sem í boði hefur
verið. Blómaskreytar, garð-
yrkjufræðingar og áhugafólk
um garðyrkju sjá að venju um
skreytingar á sýningunni, en
í ár er þema sýningarinnar
„sirkus“ og munu skreytingar
bera dám af því.
Garðyrkjufélagið hefur frá
upphafi átt formlega aðild að
sýningunni og GÍ-félagar hafa
tekið þátt í að skreyta sýningar-
svæðið. Að venju verður félagið
með fallegan kynningarbás
miðsvæðis við lystigarðinn, á
móti íþróttahúsinu. Að þessu
sinni mun félagið einnig vera
með bókasölu, þar sem í boði
verður fjöldi bóka um gróður og
garða á góðu tilboði, auk papp-
írs-pottaranna vinsælu. Fyrir þá
sem áhuga hafa á að ganga í fé-
lagið, verður lukkupottur þessa
helgi og þeir sem eru heppnir fá
glaðning með félagsskírteininu.
Gróðurunnendur er hvattir til
að leggja leið sína í Hveragerði
um helgina, þar ættu allir ald-
urshópar að finna eitthvað við
sitt hæfi. Leikir og leiktæki eru
í boði fyrir þá yngstu, glaðlegar
og fjölbreytilegar blómaskreyt-
ingar út um allan bæ og blóma-
sirkustjald í íþróttahúsinu, svo
eitthvað sé nefnt. Auk þess hafa
Hvergerðingar opna garða sína
og bjóða gestum upp á garða-
súpu; sjá nánar í dagskrá sýn-
ingarinnar. Enginn aðgangs-
eyrir er inn á sýningarsvæðið,
aðgangur er öllum opinn og
sjálfsagt að drífa sig á vit blóm-
legra sirkus ævintýra og gera
helgina eftirminnilega.
Valborg Einarsdóttir,
framkvæmdastjóri Garðyrkjufélags Íslands
Garðyrkjufélagið á
sýningunni Blóm í bæ
Hesturinn var ein skreyting félaga í GÍ á Blóm í bæ 2011.
H E LGA R BL A Ð
FERÐIR
SÉRBLAÐ
107 ÞÚSUND LESENDUR*
* capacent lestur í maí 2012 12 til 80 ára.
Í Fréttatímanum í næstu viku verður
allað um ferðalög frá ýmsum
sjónarhornum. Ef þú ert að bjóða ferðir
eða þjónustu og vilt koma því á framfæri
í kraftmiklum miðli hafðu samband.
Fréttatíminn kemur út í um 82.000
eintökum, er dreift um allt land og
er eitt mest lesna blað landsins.
Hafðu samband við Baldvin í síma 531 3311
eða á baldvin@frettatiminn.is
Þú nærð til markhópsins þíns
hjá okkur