Fréttatíminn - 22.06.2012, Side 41
EKTA ÍSLENSKT SUMAR
Tímans þungi niður
Haraldur
Jónasson
hari@
frettatiminn.is
HELGARPISTILL
É
Ég fékk sendingu á Facebook um daginn, þess efnis
að tuttugu ár væru liðin frá útskrift úr grunnskóla.
Þetta gat nú ekki staðist því mér finnst ég ekki degi
eldri en tuttugu og sjö. Þetta gekk illa upp en reynd-
ist við nánari athugun á rökum reist og ég virðist,
saklaus, orðinn að gamlingja. Kominn í hóp fólks
sem getur vitnað í hluti sem gerðust fyrir tugum
ára. Vera mín í þessari grúppu er mér hins vegar
alls ekkert gleðiefni.
Ég er nefnilega „glasið er hálf tómt-maður“ og er
bara ekkert að komast yfir þetta með aldurinn. Finn
ekki gleðina í því að eldast og lít á fólk sem segir
það æðislegt að fá fleiri ár í reynslubankann með
undrunarsvip.
Þetta byrjaði allt rétt upp úr tvítugu. Þá voru
ekki aðrar kvaðir á manni en þær að reyna að mæta
sæmilega í skólann og finna peninga fyrir bensíni
á hvurja þá bíltík sem ég fékk að keyra. Það var um
þetta leyti sem ég áttaði mig á því að þegar foreldrar
mínir voru á sama aldri voru þau að eignast börn
og stofna heimili. Sum sé fullir ábyrgðar og gagn-
legir einstaklingar í þjóðfélaginu að gera það sem
fullorðið fólk á að gera. Nokkuð sem ég forðaðist að
leiða huga að. Eins og gefur að skilja hefur leiðin
fyrir mann sem mig legið niður á við eftir hvern
afmælisdag.
Þegar nú er komið við sögu er ég að óðum að
nálgast þann aldur sem amma var á þegar hún varð
fyrst amma. Þetta er sem sagt að verða búið! Nú
mætti ætla að ég sé fjörgamall með annan fótinn
í gröfinni en svo er reyndar ekki. Ég er ekki
einu sinni orðinn fertugur en, guð minn
góður, hvað ætli gerist í hausnum á
mér við þau tímamót? En þau færast
auðvitað óumflýjanlega nær með degi
hverjum.
Þennan óþroska
minn má rekja til þess að ég byrjaði ekki að eignast
börn fyrr en um þrítugt og held því barnaafmæli á
meðan margir jafnaldrar eru nýbúnir að splæsa í
fermingarveislu og það styttist jafn vel í bílpróf hjá
börnum þeirra bráðþroskuðustu.
Ég er reyndar þeirrar skoðunar að í grunninn
breytist fólk sáralítið að loknu skyldunámi. Þar hafi
flest þau persónueinkenni komið fram sem á annað
borð koma fram. Ég þori að veðja að áhugamál
flestra eru nokkurn veginn þau sömu. Kannski með
smá tilfæringum sem aðallega felast í því að geta nú
löglega keyrt mótorhjól og bíla auk þess að áfengi er
hægt að kaupa af ríkinu í stað þess að kaupa sér sull
hjá sprúttsölum.
Óþroskinn er þannig ekkert að eldast af mér, nú
tveggja barna föðurnum, enda veit ég ekkert betra
en að leika mér á fjallahjólum, hanga í Playstation,
elda eitthverja óhollustu og gefa mér alveg rosalega
langan tíma í það; nú eða horfa á imbakassann uppi í
sófa og hundsa allt og alla. Ég bara næ ekki nokkru
sambandi við þennan ábyrgðafulla einstakling sem
samfélagið ætlast til að ég sé. Get eiginlega ekki
beðið eftir því að börnin verði að fúlum unglingum
sem sofa allan daginn, spila tölvuleikina mína fram
á nótt og yrði ekki á mig. Vandamál mitt er að þá
verð ég sennilega á pari við margan langafa frá fyrri
tíð.
Te
ik
ni
ng
/H
ar
i
TAKE
AW
AY T
ILBO
Ð
56
2
38
38
SUÐURLANDSBRAUT 12 | LAUGAVEGUR 81 BRAGAGATA 38a
16”PIZZ
A
24
95.- með tveim
ur ále
ggju
m
& 12” MA
RGA
RITA
/
HVÍT
LAUK
SBRA
UÐ
2
16”PIZZ
A
34
95.-
af m
atseð
li
& 16” MA
RGA
RITA
/
HVÍT
LAUK
SBRA
UÐ
3
16”PIZZ
A
18
95.-með tveim
ur ále
ggju
m
1
Helgin 22.-24. júní 2012 viðhorf 41