Fréttatíminn - 22.06.2012, Síða 46
38 golf Helgin 22.-24. júní 2012
Ingvi Hrafn er „Boogie-man“
Golf Úttekt á Hamarsvelli í Borgarnesi
s ól skein í heiði og fuglarnir sungu þegar golfspekingar Fréttatímans stigu út úr
blaðamannabílnum á hlaði Hamars-
vallarins í Borgarnesi. Sannkallað
golfæði hefur ríkt á Íslandi undan-
farin ár og er þar ekkert lát á; fyrir-
tæki og sveitarfélög hafa áttað sig á
þessu fyrir löngu sem og þeir sem
starfa að ferðaþjónustu gera sér
fulla grein fyrir þessu - allir vilja
tengjast golfíþróttinni. Fyrsti mað-
urinn sem við rákumst á, þarna í
hlaðinu, var sjálfur Kjartan Ragn-
arsson leikstjóri. Kjartan hefur
unnið frumkvöðlastarf með Land-
námssetrinu í Borgarnesi. Og kom
nokkuð á óvart að sjá þennan mikla
menningarinnar mann með golf-
settið, einbeittan á svip á leiðinni til
að taka hring.
„Kjartan kemur hér á hverjum
degi, hann og hans kona,“ segir
Jóhannes framkvæmdastjóri
Hamarsvallarins sem telur þetta
fara vel saman; menningartengda
ferðaþjónustu og svo golf. Til stóð
að plata hinn litríka sjónvarpsstjóra
Ingva Hrafn í að lóðsa Frétta-
tímamenn um völlinn en hann
var önnum kafinn við að taka upp
Hrafnaþing á ÍNN og ræða við sína
Heimastjórn um kolómögulega rík-
isstjórn. En það var ekki í kot vísað
að fara um völlinn í fylgd Jóhann-
esar sem hefur verið framkvæmda-
stjóri Hamarsvallar allt frá árinu
2007, þegar vellinum var breytt í
18 holu golfvöll. Jóhannes og hans
menn búa svo vel að völlurinn
sjálfur er eins og risastórt auglýs-
ingaskilti þar sem hann blasir við
frá þjóðveginum þeim sem eru að
fara norður eða koma þaðan. Ekki
þarf að efa að margur golfgeggjar-
inn hefur nagað sig í handarbökin
að vera að fara eitthvert annað en
nákvæmlega þangað á blíðviðris-
dögum.
Afslöppuð stemning
Það sem fyrst vekur eftirtekt er
hversu rólegt og notalegt and-
rúmsloft er á vellinum. Eitt helsta
einkenni vallarins er golfskálinn
sjálfur, reisulegt hús sem áður var
sveitabær, Hamar, og Jóhannes
segir að mikið sé lagt uppúr að þar
sé heimilisleg stemmning; þar geta
golfarar fengið sér heimilislega
máltíð. Þar er gistirými fyrir átján
manns en að auki er við völlinn eina
golfhótel landsins, Hótel Hamar
þar sem er eru þrjátíu herbergi
- draumur golfarans. Og þangað
förum við til að fá golfbíl áður en
lagt er af stað.
Það vekur strax eftirtekt hversu
allt er snyrtilegt á vellinum, og
segir Jóhannes að hann hafi
ætíð lagt sérstaka áherslu á það.
Segir að sé þessu vel við haldið sé
umgengnin í takti við það. Og allt
verður auðveldara. Við teigana er
kort af hverri braut á reisulegum
stuðlabergsstólpum, gjöf Sparisjóðs
Borgnesinga á sínum tíma til golf-
klúbbsins. Eins og Ingvi Hrafn
segir er Hamarsvöllurinn skógar-
völlur og þar hefur verið plantað
gríðarlega mikið af trjám. Völlurinn
er þannig þröngur víða og eins gott
að halda sig á brautinni ef menn
ætla að ná góðu skori.
Skógarvöllur
Það kemur á daginn að Jóhannes
er enginn aukvisi með kylfurnar,
segist reyndar ekki í æfingu en á
þrátt fyrir það tvö pútt fyrir erni.
Jóhannes játar aðspurður að hann
hafi á sínum tíma verið keppnis-
maður í íþróttinni og þá er ekki
spurt um forgjöf. Sérlegir golfspek-
ingar Fréttatímans - blaðamaður
og ljósmyndari – göslast á eftir,
halda vitaskuld engan veginn í við
framkvæmdastjórann en þó gengur
allt vonum framar í einstakri veður-
blíðunni; engar kylfur eru brotnar
að hætti Ingva Hrafns áður en hann
varð þessi þroskaði golfspilari sem
hann nú er orðinn. (Sjá „Heimavöll-
urinn minn“.) Undan fáu er hægt að
kvarta, völlurinn er bráðskemmti-
legur og Jóhannes útskýrir fyrir
blaðamönnum ýmsar breytingar
sem hann er með í pípunum. Mikil
hugsun býr að baki hönnun golf-
valla, landslagsarkítektúr. Þeir í
Borgarnesi eru hvergi nærri hættir.
Og víðernin og glæsilegt útsýnið
blasa við hvert sem litið er. Plássið
virðist ótakmarkað en hönnun átján
holu vallarins byggir á þeim gamla
níu holu velli ekki þannig að bætt
hafi verið níu holum við heldur er
sá gamli undirliggjandi bæði á fyrri
níu sem og seinni. Þegar þangað er
komið, að 10. teig, en haldið er frá
golfskálanum í norðurátt, en áður
stefndu menn í átt til Reykjavíkur,
segir Jóhannes að honum þyki sá
hluti vallarins skemmtilegri. Það
var og.
Einstakar vatnshindranir
Ein holan tekur við af annarri og á
seinni níu er að finna þá holu sem
er mörgum golfaranum hugleikin,
hún nálgast óðum, sú 16. sem er
úti í eyju. Vatnakerfið í átt að Hvítá
er einstakt og segist Jóhannes
geta stjórnað yfirborði vatns með
aðferðum sem eru handan skiln-
ings blaðamanns. En þarna er sem
sagt að finna ógnvekjandi vatna-
hindranir; einkum við holu 16 og
segir Jóhannes að þegar líða tekur
á sumarið sé vatnið beinlínis hvítt,
þá vegna fjölda golfkúla sem liggja
í vatninu. „Hún hefur tekið toll af
ýmsum,“ segir Ingvi Hrafn um
þessa tilteknu holu sem er að verða
einskonar einkennishola vallarins,
ásamt vitanlega Langárbrautinni:
„Menn með þrjá í forgjöf hafa átt í
stökustu erfiðleikum með hana og
þar er stutt úr birdie yfir í fimm-
faldan boogie,“ segir sjónvarps-
stjórinn sem furðar sig á því að allir
þrír, Fréttatímamenn og Jóhannes
hafi komist klakklaust í gegnum
þessa hindrun; pöruðu allir eins og
fínir menn. Kannski er það ekki síst
vegna þess hversu kátir menn luku
hring og vildu helst ekki fara þegar
að því kom. Það má sannarlega
mæla með Hamarsvellinum, sem er
býr yfir kostum beggja; sveitarvöll-
ur en samt klassa-golfvöllur.
Jakob Bjarnar Grétarsson
jakob@frettatiminn.is
Golfparadís í Borgarnesi
Golfsérfræðingar Fréttatímans tóku Hamarsvöllinn í Borgarnesi út í fádæma veðurblíðu nýlega. Þeir
nutu leiðsagnar framkvæmdastjóra vallarins, Jóhannesar Ármannssonar, sem sannarlega má vera
stoltur af sínum velli og því góða starfi sem þar hefur verið unnið.
Jóhannes Ármannsson. Les flötina og ekki í fyrsta skipti. Ljósmynd/Hari.
HEimAvöllurinn minn Hamarsvöllurinn í Borgarnesi
„Ég er „boogie-man“ og mjög sáttur við
það. Þá áttu séns á „birdie“ og kastar ekki
kylfu þó þú farir á tvöföldum „boogie“. Ís-
lenska forgjöfin mín er 16,1. Sú ameríska
er 22. Kemur til af því að fyrir þremur
sumrum átti ég þrjá svakalega hringi,
uppá 43 punkta og lækkaði úr 19 niður í
15. Svo hef ég ekki spilað mikið og maður
hækkar bara um núll komma einn í hvert
skipti,“ segir Ingvi Hrafn Jónsson.
Ingvi Hrafn er sannarlega enginn ný-
græðingur í golfinu. Hann lærði íþróttina
þegar hann var við nám í Madison, Wis-
consin í Bandaríkjunum, árið 1967. Hann
gengst fúslega við því að hann hafi átt
erfitt með að hemja skapsmunina ef golf-
kúlan vildi ekki fara þangað sem henni var
ætlað. „Framan af átti ég erfitt með skapið
en nú er ég gamall og yfirvegaður, þrosk-
aður golfspilari, enda að verða sjötugur.“
Sjónvarpsstjórinn litríki upplýsir að
hann ætli einmitt að halda uppá stóraf-
mælið 27. júlí með opnu golfmóti á Ham-
arsvellinum, en það verður jafnframt opið
mót ÍNN - sjónvarsstöðvar Ingva Hrafns.
Aðspurður hvort menn séu ekkert í því
að staupa sig úti á velli segir Ingvi Hrafn
það af og frá. Sú sé liðin tíð: „Nema í ein-
hverjum djókmótum. Ef Tiger Woods
myndi fá sér einn tvöfaldan Jack Daníels
þá myndi hann spila eins og hálfviti.“
En, að heimavelli Ingva. „Ég er gríðar-
lega stoltur af því að vera meðlimur í þess-
um klúbbi, með þeim mönnum og konum
sem hafa unnið það þrekvirki að koma
Hamarsvellinum í fremstu röð. Þetta er
háklassavöllur og nú er við sjóndeildar-
hring að geta haldið þar
landsmót,“ segir Ingvi en þarna, í Golf-
klúbbi Borgarness, hefur hann verið hart-
nær í tuttugu ár. „Þetta voru níu holur. En
þröngur hópur manna, um 30-50 manns
hafa haft veg og vanda af öllu. Sumir farn-
ir yfir móðuna miklu og aðrir ungir sem
nú eru miðaldra, en á tíu árum hefur þetta
byggst úr því að vera níu holu sveitarvöll-
ur í átján holu völl. Þetta er í raun fyrsti
skógarvöllurinn á Íslandi enda höfum
við gróðursett þarna fimm til tíu þúsund
plöntur. Við höfum verið gríðarlega passa-
samir með reksturinn, sem alltaf hefur
skilað hagnaði og þegið lágmarks styrki.“
Jakob
Bjarnar
Grétarson
jakob@
frettatiminn.is
Heilsueldhúsið
heilsurettir.is
ingvi Hrafn. Átti framan af golfferli erfitt með að
hemja skapsmunina, braut kylfur og gerði allt sem
menn eiga ekki að gera, en nú er hann yfirvegaður
og þroskaður spilari. Ljósmynd/Hari
Brugðið á leik. Kókdósin
risastóra er ekki óumdeild
og eitt sinn ætlaði ónefndur
maður að granda henni.
Ljósmynd/Hari
risastóra golfkókdósin
Eftirtekt vekur að á golfvellinum í Borgarnesi getur að líta risastóra kókdós, sem og
reyndar risastórann Ópal-pakka og fleira í þeim dúr. „Honum á reyndar að breyta í
Tópas. En, þetta er gamli súrheysturninn,“ segir Jóhannes Ármannsson framkvæmda-
stjóri þar sem við erum staddir á 13. teig. Jóhannes
segir þetta ágæta innspýtingu í rekstrinum, en
viðkomandi fyrirtæki greiða árlega gjald fyrir. Þessi
risaskúlptúr minnir helst á popplistaverk eftir Andy
Warhol en er sannarlega ekki óumdeilur enda blasir
dósin við af þjóðveginum. „Getur verið að við eigum
eftir að venjast kókdollunni við Borgarnes? Getur
verið að eftir nokkur ár fari okkur að þykja vænt um
gömlu góðu kókdósina að Hamri? Ég held ekki,“ skrif-
aði til dæmis Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra
á heimasíðu sína árið 2003. Jóhannes segir svo frá að
á sínum tíma hafi maður verið gripinn af lögreglu en
sá hafði þann einlæga og yfirlýsta ásetning að granda
kókdósinni miklu með öllum tiltækum ráðum, en
þá var þetta stærsta kókdós í Evrópu, ef ekki öllum
heiminum. Manninum tókst ekki að koma kókdósinni,
fyrrum súrheysturni, fyrir kattarnef og blasir hann
nú við mönnum til yndisauka eða armæðu – eftir
atvikum. - jbg
67% ... kvenna á höfuðborgarsvæðinu lesa Fréttatímann*
*konur 25 – 80 ára
á höfuðborgarsvæðinu.
Capacent okt.-des. 2011