Fréttatíminn - 22.06.2012, Page 48
40 matur og vín Helgin 22.-24. júní 2012
OREO
BANANA
SÚKKULAÐIKAKA
Sími: 561 1433
Innihald: Súkkulaðibotnar, súkkulaðimousse, bláberja
sulta
, ba
nan
ar
og
O
re
ok
ex
.
Opnunartími:
mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30
laugar- og sunnudaga 8.00 -16.00
P
R
E
N
T
U
N
.IS
Götóttur bakki til
að grilla grænmeti
– meðal annars.
Úrbeinað og
álpappírslaust
Það vita allir sem hafa reynt að kjöt bragðast sérstaklega vel þegar það er grillað. Þetta þarf nátt-
úrlega ekki að segja nokkrum manni. Litlar sneiðar af kjöti er einfalt að elda og stærri bita eins og
lambalæri er alls ekki eins flókið að grilla og margir vilja af láta.
S é lærið úrbeinað fer svo ennþá minna fyrir því þannig að það er um að gera að æfa úrbein-
ingartæknina. Og... álpappír er
ónauðsynlegt hjálpartæki og þarf
ekki að fara saman með grillaðri
stórsteik. Athugið það.
Svona er farið að: Finnið uppá-
halds kryddjurtir fjölskyldunnar og
hvort þær eru þurrkaðar eða fersk-
ar fer einfaldlega eftir smekk. Ef
ferskar er best að saxa smátt fyrst.
Jurtunum er svo blandað saman við
örlítið af kryddi, enn eftir smekk og
blöndunni nuddað vandlega á lær-
ið. Góð blanda á lamb er rósmarín
og timían ásamt með kóríander-og
paprikudufti og ef það er örlítið af
túrmerek í húsinu er um að gera
að splæsa smá af því líka. Nuddið
lærinu upp úr kryddjurtunum með
svona um það bil hálftíma klukku-
stundar fyrirvara. Hitið grillið vel
og loka kjötinu á öllum hliðum.
Piprið vel og myljið smotteríi af
grófu salti yfir. Þá er að slökkva svo
undir kjötinu en hafa kveikt annar-
staðar í grillinu og á með lokið. Já,
það verður að vera lok. Haldið hit-
anum í um það bil 170 gráðum.
Inni í grillinu! Gott er að hafa við
hendina blöndu af olíu eða smjöri
og smá sojasósu sem notuð er til að
pensla bitann af og til. Ekki samt
vera að opna og loka of oft. Þá hverf-
ur allur hitinn út í svala sumarnótt-
ina. Elda svo þangað til hitamælir-
inn segir stopp – hingað og ekki
lengra.
Rautt 55 gráður
Medium 60 gráður
Fulleldað 65 gráður
Grill
Réttu tækin og tólin
Hlutir sem gott er að eiga og hafa við hendina
og aðrir sem ekki er hægt að vera án.
Lítill stálpottur
og einnota
álbakkar til þess
að setja BBQ
sósur, tilfallandi
vökva í og jafn
vel spæni til
reykinga.
Góðar
tangir,
helst svona
mekkanísk-
ar, eru eitt
nauðsyn-
legasta
grilltólið.
Gott er að
hafa einn
klassískan
tvífork við
höndina.
Spaðar. Einn
venjulegur og
gott að eiga
annan langan í
sérverkefni svo
sem fiskflök.
Grillbursti.
Það verður að
halda grind-
unum hreinum,
annars festist
allt.
Grillspjót.
Helst að eiga
bæði einnota
úr spýtu og
fjölnota úr
málmi.
Hitaþolinn
hanska er oft
nauðsynlegt
að hafa við
hendina.
Panna úr pott-
járni. Það er
hvimleitt að
missa litla
humarhala milli
grind anna. Það er
hægt að taka
handfangið af
þessum svo það
hitni ekki.
Grind fyrir fisk
sem er sér-
staklega laus í
sér og líka fyrir
roðlausan fisk.
Penslarnir eiga
að vera tveir og
annar með hár úr
hitaþolnu sílikoni.
Hitamælir er bráðnauð-
synlegur. Flunkunýr,
stafrænn og þráðlaus
er draumurinn en svona
gamaldags með skífu
er fínn.
67% ... kvenna á höfuðborgarsvæðinu lesa Fréttatímann*
*konur 25 – 80 ára
á höfuðborgarsvæðinu.
Capacent okt.-des. 2011