Fréttatíminn - 22.06.2012, Blaðsíða 60
Helgin 22.-24. júní 201252 tíska
5
dagar
dress
„Undanfarið hef ég verið að kaupa fötin
mín erlendis,“ segir tónlistamaðurinn
og plötusnúðurinn Logi Pedro Stef-
ánsson sem fagnar tuttugu ára afmæli
sínu seinna á árinu. „Ég er meira fyrir
að kaupa færri flíkur og dýrari heldur
en fleiri og ódýrari. Þær endast mun
lengur og svo eru minni líkur að maður
klæðist eins og næsti maður.
Rapptónlistin veitir mér innblástur
þegar kemur að klæðavali enda alltaf
mikið að gerast í þeim heimi. Svo fletti
ég stundum í tímaritum eins og
Complex þar sem maður grefur upp
einhverja gullmola um tísku.“
tíska
Kolbrún
Pálsdóttir
skrifar
Verðmiðinn fer
eftir notagildinu
Afríkuferðin er loksins almennilega hafin eftir
að hafa ferðast með aldargamalli lest alla leið
frá Tansaníu til Zambíu, tæpa 2500 kílómetra.
Á leiðinni, fyrsta kvöldið, varð ég fyrir því óláni
að vera rænd. Lítill krakki hafði klifrað upp í
lestargluggann og stolið einni af þremur töskum
sem lágu á gólfinu á meðan ég svaf. Afríkubarnið
hafði greinilega valið eina tösku af handahófi og
því miður valið þá sem hafði að geyma minnstu
verðmætin.
Bakpokinn minn var svartur og lítill og fremur
ómerkilegur. Krakkinn hafði greinlega heillast
meira af honum en dýru, fínu Louis Vuitton-tösk-
unni sem konan sem deildi lestarklefa með mér
geymdi einnig á gólfinu. Þessi dýra taska hafði
að geyma allskonar fína muni eins og splunku-
nýjan iPad, rándýra Canon-myndavél, snjallsíma
og fleiri tæki og tól sem ég kann ekki að nefna.
Þarna var krakkinn óheppinn.
En þetta er þó einhvern veginn svo dæmigert fyr-
ir Afríku. Ekki gat krakkinn séð hvaða taska af
þessum þremur byggi yfir mestu verðmætunum.
Fólk hér setur ekki dýrari verðmiða á merkjavör-
ur. Þær vörur sem verslanir fá frá Vesturlöndum
eru verðmerktar eftir notagildi; hvort flíkin henti
vel fyrir næturkulda, regn eða sólríka dagia. Ekki
hvernig þær líta út hvað þá að það skipti máli hver
hannaði þær. Notagildið er í fyrirrúmi.
Þriðjudagur
Skór: Vans
Buxur: Rauða
kross búðin
Bolur: Primark
Peysa: Spúútnik
Jakki: Keyptur í
Portúgal
Rapptónlistin veitir innblástur
Greiðsla sem hentar hvaða tilefni sem er
Leiðist að
mála sig
Hin nítján ára Selena Gomez
segir að besta ráðið sem förð-
unarfræðingurinn hennar hefur
gefið henni sé að sleppa allri
andlitsförðun á sumrin. Þau tvö
hafa unnið saman allar götur frá
því Selena var þrettán ára og
segist hún nota sólarvörnina
óspart á hverjum degi í staðinn
fyrir að mála sig. „Ég hef ekki
mikinn áhuga á förðun. Ég reyni að
komast hjá því að mála mig og er það
yfirleitt bara vinnutengt þegar ég þarf
þess. Ef ég mætti ráða myndi ég helst
sleppa því alltaf,“ lét Selena hafa eftir
sér í viðtali við tímaritið WWD.
Skrifar bók um
heilbrigt líferni
Föstudagur
Skór: Herrafataverslun
Kormáks og Skjaldar
Buxur: H&M
Peysa: H&M
Jakki: Keyptur í
Portúgal
Fimmtudagur
Skór: Footlocker
Buxur: H&M
Bolur: Urban Outfitters
Jakki: Paul Smith
Miðvikudagur
Skór: Herrafata-
verslun Kormáks og
Skjaldar
Buxur: Rauða kross
búðin
Skyrta: Spúútnik
Jakki: Panda
Sportswear
Mánudagur
Skór: Footlocker
Skyrta: Woodwood
Jakki: Hugo Boss
Buxur: Rauða kross búðin
Leikkonan Cameron Diaz tilkynnti í vikunni
að ný bók sé væntanleg frá henni síðar á
þessu ári. Bókin er ætluð ungum konum sem
leitast við að lifa heilbrigðu líferni. Undanfarna
mánuði hefur leikkonan verið töluvert í sviðs-
ljósinu vegna breyttra lífshátta og kviknaði
hugmyndin að bókinni út frá þeim mikla
áhuga sem fjölmiðlar sýndu því.
Cameron Diaz mun skrifa bæði
um sína persónulegu reynslu þar
sem hún segir frá því hvernig
hún leggur æfingar upp og
matardagbók sem hún hélt en
auk þess fylgja athugasemdir
frá frægum einkaþjálfurum í
Hollywood.
Ljóskurnar Ashley
Tisdale og Julianne
Hough mættu
báðar, með eins dags
millibili, prúðbúnar á
rauða dregilinn með
sömu hárgreiðslu.
Við glæsilegu síð-
kjólana vöfðu þær
hárinu upp í háan og
úfinn snúð sem setti
skemmtilegt ójafn-
vægi á heildarútlitið.
Þessi greiðsla er farin
að sjást æ oftar, bæði
á rauða dreglinum
og úti á götum úti
í Hollywood, enda
greiðsla sem hentar
nærri hvaða tilefni
sem er.