Fréttatíminn


Fréttatíminn - 22.06.2012, Síða 70

Fréttatíminn - 22.06.2012, Síða 70
Þ að breytir engu fyrir mig hvort ég er með skrifstofu á Nörrebro eða við Klapparstíg,“ segir skemmtistaðaeigandinn Dóra Take- fusa. Dóra hefur um árabil rekið skemmtistaðinn Jo- lene í Kaupmannahöfn en síðasta árið hefur hún fjarstýrt staðnum héðan úr Reykjavík. „Það er voðalega lítið mál, ég held fundi í gegnum Skype og panta og borga alla reikninga á netinu. Svo flakka ég töluvert á milli, ætli ég sé ekki um það bil fjóra daga í mánuði í Kaupmannahöfn,“ segir Dóra. Skemmtanaveldi Dóru stækkar um helming á næstunni þegar hún opnar nýjan stað í miðborg Reykjavíkur. Staðurinn verður í Hafnarstræti þar sem írski barinn Dubliners var áður. „Við erum að fara að byggja staðinn upp á svipuðu konsepti og Jolene svo það kom aldrei neitt annað til greina en að hann héti Dolly,“ segir Dóra og hlær. Dóra segir þó að Dolly verði aldrei eins og syst- urstaðurinn enda er sá síðarnefndi í gömlu slátur- húsi í iðnaðarhverfi en sá væntanlegi í eldgömlu timburhúsi. Dóra hefur fengið góðan liðsstyrk því Óli Hjörtur Ólafsson, velþekktur stuðbolti úr skemmtanalífinu sem rak eitt sinn Q bar, mun reka staðinn með henni. „Hann er bugaður af reynslu í þessum bransa,“ segir Dóra sem lofar spennandi stað: „Þó fólk verði að sveifla sér og dansa uppi á borðum um helgar mun það samt alveg geta haft það huggulegt þarna á virkum dögum.“ -hdm  Djammið SySturStaður jolene opnar í HafnarStræti Dóra Takefusa opnar Dolly S hania Twain er ein allra vinsælasta söng-kona heims og vakti á sínum tíma veru-lega athygli með plötunni The Woman in Me árið 1995 og sló síðan hressilega í gegn 1997 með plötunni Come On Over. Engin tón- listarkona, óháð tónlistarstefnum, hefur selt plötur í sama upplagi og Twain gerði með henni. Platan hefur selst í ríflega 40 milljón eintökum um víða veröld og er í níunda sæti á lista yfir mest seldu breiðskífur í Bandaríkj- unum. Fjórða plata Twain, Up!, kom út árið 2002 og hefur selst í 20 milljónum eintaka. Ísleifur B. Þórhallsson, tónleikahaldari með meiru, vildi spurður ekki staðfesta að hann hafi verið í fylgd Twain í gærdag og sagði ekk- ert nema „no comment.“ Eftir því sem Frétta- tíminn kemst næst er Twain hingað komin í frí ásamt eiginmanni sínum, svisslendingnum Frédéric Thiébaud, og að Íslandsferðin hafi staðið til um nokkurt skeið. Frédéric Thié- baud og Twain gengu í hjónbaband á nýárs- dag í fyrra en Twain á ellefu ára son frá fyrra hjónabandi. Thiébaud er stjórnandi hjá súkk- ulaðirisanum Nestlé. Fjölmargir aðdáendur söngkonunnar hljóta þó að geta gert sér einhverjar vonir um að hún heillist svo af landi og þjóð að hún muni leggja leið sína hingað síðar og slá þá upp tónleik- um. Eins og rakið er framar í blaðinu í dag, á síðu 28, er Ísland komið vandlega á ferðakort frægra og dáðra útlendinga en ekki liggur fyr- ir hvað fékk Twain til þess að taka sér frí á Ís- landi en mögulega hefur hróður landsins bor- ist henni til eyrna í gegnum tónlistarfólk sem troðið hefur upp á Íslandi. Þannig gerðu til dæmis meðlimir hljómsveitarinnar The Eag- les góðan róm að landinu eftir að þeir spiluðu í Laugardalshöll í fyrra en þá sagði stallbróðir hennar í kántríinu, Timothy B. Schmit bassa- leikari sveitarinnar, á Twitter-síðu sinni indælt að vera á Íslandi sem væri „hreint, tært, kalt og fallegt.“ Twain er annáluð grænmetisæta og mun áreiðanlega kynna sér vandlega íslenskt heilsufæði en árið 2001 útnefndu PETA hana kynþokkafyllstu lifandi grænmetisætuna en það var í fyrsta sinn sem þeim titli var útdeilt. toti@frettatiminn.is  KántrípoppDrottning í afSlöppun á íSlanDi Shania Twain læddi sér til landsins Gestir og gangandi á Nordica hótelinu við Suðurlandsbraut ráku upp stór augu á fimmtudag þegar þeir sáu hinni feykivinsælu kanadísku kántrísöngkonu Shania Twain bregða fyrir. Söng- konan sást á spjalli við tónleikahaldarann Ísleif B. Þórhallsson sem hafði aðspurður um hvort Twain væri á Íslandi á hans vegum þetta eitt að segja: „No comment.“ Cruise keypti úlpur Hollywoodstjarnan Tom Cruise dvelst nú hér á landi við tökur á stórmyndinni Oblivion. Leikarinn góðkunni heldur sig norður í landi og ku vera mjög áhuga- samur um land og þjóð. Eftir að hafa umgengist Íslendinga á tökustaðnum hreifst Cruise mjög af klæðaburði þeirra. Cruise var sérstaklega hrifinn af úlpum frá 66°norður og lét sig ekki muna um að kaupa tvær slíkar til að klæðast við tökurnar. Frá bleikri pressu til RÚV Blaðakonan Malín Brand, sem lét um skeið til sín taka á vefjunum Bleikt.is og Pressan.is, hefur snúið sér að verkefnum sem sumir ætla að séu meira krefjandi. Hún var ráðin í sumarafleysingar á fréttastofu Ríkisútvarpsins fyrir mánuði og líkar vistin í Efstaleitinu svo vel að hún vonast til þess að geta haldið þar áfram eftir að sumri hallar. Ómþýð rödd Malínar hljómar nú á öldum ljósvakans auk þess sem hún stekkur af og til í sjónvarpsfréttir, eins og gengur og gerist á sameinaðri fréttastof- unni. Þá tekur hún einnig vaktir á vefnum Ruv.is og þá dansa fingur hennar um lyklaborðið í góðri æfingu eftir þjálfunina á Pressunni en þar starfaði hún við hlið Steingríms Sævarrs Ólafssonar og yfirgaf skútuna þegar hann sagði starfi sínu lausu fyrir nokkru. Erró-verkin rokseljast Sölusýning á grafíkverkum úr einkasafni Errós opnaði með nokkrum látum og ljóst að fjölmargir sáu sér leik á borði að eignast Erró-verk en myndirnar á sýn- ingunni eru á verðbilinu 100-200 þúsund krónur. Verkin seldust hratt og örugg- lega og fáar eru eftir óseldar. Sýningin er haldin af því tilefni að listamaðurinn verður áttræður í næsta mánuði. Verkin eru til sýnis í Brekkugerði 19 og sýningin er opin frá 12-17 og stendur til 2. júlí. Engin tónlistar- kona, óháð tónlistar- stefnum, hefur selt plötur í sama upplagi og Twain gerði með Come On Over. Hjónakornin Shania Twain og Frédéric Thiébaud ætla að slappa af fjarri frægðarinnar glaumi á Íslandi. Dóra Takefusa opnar skemmtistaðinn Dolly í Hafnarstræti innan tíðar. Ljósmynd/Hari 62 dægurmál Helgin 22.-24. júní 2012

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.