Fréttatíminn


Fréttatíminn - 01.04.2011, Síða 13

Fréttatíminn - 01.04.2011, Síða 13
um laga eins og allir aðrir. En eins og staðan er núna eru engin sérstök ákvæði í lögum um nafn- og mynd- birtingar gagnvart börnum. Manni finnst að fjölmiðlar þurfi að beita þessu valdi af hófsemi; gæta þess aðallega að hagur barnanna sé ávallt í fyrirrúmi þegar verið er að fjalla um mál sem þau varðar.“ Þá ertu að tala um börn yngri en 18 ára? „Já, við miðum alltaf við að þeir sem eru undir átján ára séu börn samkvæmt lögum.“ Á nýafstöðnu málþingi varpaði Heiða Björg þeirri spurningu fram hvort réttlætanlegt væri að foreldrar færu í fjölmiðlaviðtöl til að ræða mál- efni barna sinna. „Stundum finnst manni gengið nærri rétti barns til friðhelgi einka- lífs. Þarna var verið að fjalla um mál- efni barnanna, ekki bara málefni for- eldranna. Þegar búið er að upplýsa um nöfn foreldranna er í raun búið að auðkenna börnin. Það verður að stíga mjög varlega til jarðar þegar verið er að birta nafn og mynd þar sem um er að ræða einkamálefni barna.“ Einhverjir myndu segja á móti að bann við nafn- og myndbirtingu jafn- gilti þöggun. „Það er alls ekki viðhorf Barna- verndarstofu að þagga beri niður umræðu um barnaverndarmál, hvort sem um er að ræða barnaverndar- mál í heild sinni eða tiltekin mál. Það er nauðsynlegt að fjölmiðlar standi vörð um það sem er að gerast á hverj- um tíma og barnavernd er þar ekki undanskilin. Hins vegar má velta fyrir sér hvort umfjöllun um málin kalli alltaf á að persónulegar upplýs- ingar séu birtar eða hvort hægt er að fjalla um tiltekin mál án þess að birta nöfn eða myndir. Barnaverndarstofa leggur áherslu á að skilja á milli um- ræðu um málið annars vegar og ein- staklinginn hins vegar,“ segir Heiða Björg. Svala Ólafsdóttir segir fróðlegt að sjá hvort tillaga Barnaverndar- stofu um bann við nafn- og mynd- birtingu í barnaverndarlögum nái fram að ganga. „Augu manna eru að opnast æ meira fyrir því að það verði að vernda börn sem lenda á afbrotabrautinni, að ég tali nú ekki um börn sem fremja alvarleg afbrot. Þetta er oftast framhald af lífi sem hefur yfirleitt verið dapurlegt og einkennst af vanrækslu og persónu- legum erfiðleikum. Við erum að við- halda þessari sjálfsmynd og þeirri upplifun barnanna á tilverunni að hún sé einskis virði. Ég tel að okk- ur beri skylda til að gera það sem við getum til að vernda þessa ungu borgara þannig að þeir eigi einhverja möguleika síðar meir.“ Heiðdís Lilja Magnúsdóttir hlm@frettatiminn.is VERKFRÆÐI OG NÁTTÚRU­ VÍSINDI Í ÖNDVEGI Í APRÍL Aðgangur er ókeypis á alla viðburði. FETUM VÍSINDAVEGINN – Opið hús hjá Raunvísindadeild Laugardagur 2. apríl, kl. 13–16. Raunvísindastofnun, Tæknigarður, VR­I, VR­II og VR­III. AFL NÁTTÚRUNNAR (force of nature) – Fjarfundur með David Suzuki frá Háskóla Bresku Kólumbíu Mánudagur 4. apríl, kl. 17 í stofu 132 í Öskju. NEMENDUR RAUNVÍSINDADEILDAR BJÓÐA FRAMHALDSSKÓLANEMUM Í HEIMSÓKN Þriðjudagur 5. apríl, kl. 16–19 í stofu 261 í VR­II. MALDI MASSA GREINING Á PEPTÍÐUM OG PRÓTEINUM – Fyrirlestur Per Andrén Fimmtudagur 7. apríl, kl. 12­13 í Hátíðasal HÍ – Aðalbyggingu HÍ. JARÐFRÆÐI REyKJANESS OG FUGLALÍF – Rútuferð Laugardagur 9. apríl og sunnudagur 10. apríl, brottför frá Öskju kl. 10. JARÐFRÆÐISTRÆTÓ Sunnudagur 10. apríl, brottför frá Öskju kl. 10. LANDFRÆÐI Á HJÓLUM – Rýnt í borgar lands lagið Sunnudagur 10. apríl, brottför frá Öskju kl. 14. GRÆNA KORTIÐ OG UMHVERFISVÆN FERÐA MENNSKA – Fyrirlestur Mánudagur 11. apríl, kl. 12.30–13.10 í stofu 132 í Öskju. NÝTT ÍSLAND – Taktu þátt í landfræði legri tilraun Mánudagur 11. apríl, kl. 17–19 í stofu 132 í Öskju. RANNSÓKNIR FRAMHALDSNEMA Þriðjudagur 12. apríl, kl. 16–19 í stofu 132 í Öskju. NÁTTÚRULEGT ÓNÆMI VIRKJAÐ GEGN SÝKL UM – Fyrirlestur um sameinda líffræði Miðvikudagur 13. apríl, kl. 12.30–13.10 í sal 132 í Öskju. MÁLÞING UM FRAMTÍÐ ALMENNINGS­ SAMGANGNA Miðvikudagur 13. apríl, kl. 14.30–17 í Fundarsal Þjóðminjasafnsins. RANNSÓKNIR Á LÍFRÍKI ÍSLANDS Miðvikudagur 13. apríl, kl. 16.30–18 í sal 132 í Öskju. KVIKUINNSKOT Í NEÐRI HLUTA JARЭ SKORP UNNAR VIÐ UPPTyPPINGA Fimmtudagur 14. apríl, kl. 12.30–13.10 í sal 132 í Öskju. EINS ÁRS GOSAFMÆLI EyJAFJALLA­ JÖK ULS – Fyrirlestur og kvikmynda sýning Fimmtudagur 14. apríl, kl. 17–19 í stofu 132 í Öskju og í miðju rými. FyRIRLESTUR UM RANNSÓKNIR Í FERÐAMÁLUM Föstudagur 15. apríl, kl. 12.30–13.20 í stofu 131 í Öskju. VORRÁÐSTEFNA JARÐFRÆÐAFÉLAGS ÍSLANDS Föstudagur 15. apríl, kl. 9–18 í stofu 132 í Öskju. VERK­ OG TÖLVUNARFRÆÐIDAGUR UNGA FÓLKSINS – Grunnskóla nemum boðið í heimsókn Mánudagur 18. apríl, kl. 14–17 í VR­II og VR­III. ORKURÁÐSTEFNAN – Jarðhiti í brenni depli í samvinnu við GEORG Þriðjudagur 19. apríl, kl. 13.15–17.00 í stofu HT 102 í Háskólatorgi. STAÐA VERKFRÆÐINGA Í VISTFRÆÐILEGUM HEIMI – Ráðstefna í samvinnu við VFÍ Miðvikudagur 27. apríl, kl. 14.30­ 17.00 í stofu 132 í Öskju. OFURTÖLVURÁÐSTEFNA TÖLVUNARFRÆÐINNAR Fimmtudagur 28. apríl, kl. 13.00–17.00 í Endurmenntun við Dunhaga. ALÞJÓÐLEG RÁÐSTEFNA UM JARЭ SKJÁLFTA ÁHRIF (ISSEE­2011) Föstudagur 29. apríl, kl. 9–17 í sal 132 í Öskju. PIPA R\TBW A • SÍA Nánari upplýsingar um einstaka við burði má finna á www.hi.is/vidburdir Bröns alla laugardaga og sunnudaga Aðalstræti 2 | 101 Reykjavík | Sími: 517 4300 | www.geysirbistrobar.is Verð aðeins 1.795 með kaffi eða te Meira á næstu opnu

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.