Fréttatíminn - 01.04.2011, Blaðsíða 30
Helgin 1.-3. apríl
Lúxusnámskeið Nordicaspa
er hannað til að koma þér
af stað á mjög árangursríkan
og einfaldan hátt.
Fimm tímar í viku – Brennsla og styrkur
3 öflugir brennslutímar
2 styrktartímar í sal
Vikulegar mælingar
Ítarleg næringarráðgjöf
Fyrirlestur – Borða til að léttast og auka orkuna
Slökun og herðanudd eftir hverja æfingu
Takmarkaður fjöldi
6:30, 7:30, 10:00, 16:30 og 18:30
Þjálfari er Gunnar Már Sigfússon
1. vika – Orkuhleðsla
Í fyrstu vikunni byggir þú upp orku og kemur líkamanum í jafnvægi.
2. vika – Öflug melting – Aukin brennsla
Í viku tvö er verið að efla og bæta meltinguna til að þú fáir sem
mest út úr holla matnum sem þú ert að borða.
3. vika – Hormóna jafnvægi – Hreinsun
Þriðja vikan mun koma jafnvægi á hormónaflæði líkamanns sem
mun hafa áhrif á skap þitt, lífsorku og kraft.
4. vika – Ónæmiskerfi eflt – Jafnvægi
Í viku fjögur byggjum við upp ónæmiskerfið og hjálpum því að verja
líkamann á náttúrulegan hátt.
Ný námskeið hefjast 4. apríl
Fyrirlestur 2. apríl kl. 12:00
Kr. 34.900
Skráning er hafin í síma 444 5090 eða
nordicaspa@nordicaspa.is www.nordicaspa.is
Lúxusnámskeið
NORDICASPA
fyrir konur og karla
4 vikna
Helga Pálsdóttir, 40 ára og 4 barna móðir.
Ráðgjafi hjá Allianz – Missti 8 kg á 9 vikum.
Að vera orkumeiri og léttari er orðinn lífsstíll hjá mér.
Ég gerði þetta af skynsemi og þú getur það líka!
– Lifið heil
www.lyfja.is
ÍS
LE
N
SK
A
/S
IA
.I
S
/L
YF
5
43
30
0
3/
11
15%
afsláttur
í apríl af 204 stykkja
Nicotinell Fruit
Verð með afslætti:
2 mg 4.329 kr.
4 mg 6.119 kr.
Lægra
verð
í Lyfju
Þ að verður nágrannaslagur, „Derby -leikur“, í úrslitakeppni Útsvars í Ríkissjónvarpinu í
kvöld, föstudag. Þar leiða saman hesta
sína þau tvö lið sveitarfélaganna sem
best hafa staðið sig í keppninni í vetur,
Akureyri og Norðurþing. Lið 24 sveit-
arfélaga hófu leik. Keppnin verður því
flutt frá Reykjavík og fer fram í Hofi,
hinu nýja og glæsilega menningarhúsi
Norðlendinga á Akureyri.
„Þrýstingurinn hefur stigmagnast,
maður er hvattur til dáða á götum úti
og veitt góð ráð,“ segir Birgir Guð-
mundsson, einn þriggja keppenda í
Akureyrarliðinu. „Það var klókt hjá
Sjónvarpinu að flytja keppnina norður,
það eykur spennuna að vera á heima-
velli. Eftir að Akureyringar urðu
deildarmeistarar í handboltanum á
mánudaginn eru menn komnir í sig-
urham en liðið fékk bikarinn afhentan
við hátíðlega athöfn í Íþróttahöllinni í
gærkvöld. Það hjálpast því allt að og
menn ætlast til framhalds í sigurvím-
unni,“ segir Birgir. Hann segir kepp-
endur þó hafa það í huga að þetta sé
leikur og skemmtiþáttur.
Útsvarið hefur notið mikilla vin-
sælda. Birgir segir það m.a. vera
vegna þess að spurningarnar séu fjöl-
breyttar og ekki það þungar að alltaf
viti einhverjir heima svarið jafnvel
þótt liðin flaski á spurningunum. Fólk
hefur því tækifæri til að spreyta sig
sjálft heima. Í Gettu betur, spurninga-
leik framhaldsskólanna, fylgist fólk
hins vegar fremur með liðunum svara.
„Ég get ekki sagt að við æfum okk-
ur mikið en erum þó með kerfi í leikn-
um. Það er t.d. nauðsynlegt að gefa til
kynna hvort um sagnorð eða nafnorð
er að ræða því það þarf að hafa rétta
mynd á orðinu,“ segir Birgir. Hann
segir að Hilda Jana Gísladóttir sé
flink í leiknum en honum fylgi mikil
átök þannig að hún sé lafmóð á eftir.
Birgir segir að Norðurþing sé með
mjög öflugt lið þannig að leikurinn
geti farið á hvorn veginn sem er.
Þorgeir Tryggvason, einn þriggja
keppenda Norðurþings, segir Húsvík-
inga og nærsveitarmenn fylgjast vel
með. „Þeir eru spenntir, það koma að
minnsta kosti stuðningsyfirlýsingar,
en pressan er þó mest á manni sjálf-
um.“
Hann segir undirbúning liðsins fyr-
ir úrslitaleikinn vera með hefðbundnu
sniði. „Við höfum vanið okkur á að
hittast einu sinni fyrir hverja keppni
þar sem við æfum okkur í spurning-
um og leiknum. Kerfið okkar er þó
frekar lítilmótlegt, ekki mjög kerfis-
bundið, enda er þetta leikur. Maður
hefur þó engan sérstakan áhuga á
að bregðast vonum stuðningsmanna
sinna.“
Hann segist ekki vera sigurviss,
leikurinn geti farið á hvorn veginn
sem er. „Við reynum að svara rétt
þeim spurningum sem við kunnum
svör við. Það er það eina sem hægt er
að gera. Þetta er spennandi og auka-
fiðringur vegna þess að þetta er ná-
grannaslagur,“ segir Þorgeir. Hann
segist ekki átta sig á því hvort máli
skipti að keppt verður á heimavelli Ak-
ureyringa. „Ég stakk upp á því, svona
í gamni á Facebook, að kannski hefði
verið farið bil beggja að halda keppn-
ina í Ljósvetningabúð í Kinn eða Þor-
geirskirkju í Ljósavatnsskarði – en það
verður gaman að vera í Hofi.“
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
útsvar úrslit ráðast í kvöld
Aukafiðringur
vegna þess að þetta
er nágrannaslagur
Akureyri og Norðurþing keppa til úrslita í Hofi á Akureyri. Þrýst-
ingur á liðin hefur stigmagnast og þau fá góð ráð á götum úti.
Lið Akureyrar, Hilda Jana Gísladóttir,
Birgir Guðmundsson og Hjálmar Brynj-
ólfsson.
Lið Norðurþings, Stefán Þórsson, Þor-
geir Tryggvason og Kristveig Sigurðar-
dóttir.