Fréttatíminn


Fréttatíminn - 01.04.2011, Side 50

Fréttatíminn - 01.04.2011, Side 50
Sá mæti tyrkneski rithöfundur Orhan Pamuk var í vikunni dæmdur til að greiða sekt fyrir móðgandi ummæli sín um tyrk- nesku þjóðina. Lengi hafa þjóðrembumenn reynt að koma Pamuk fyrir rétt en höfðu ekkert í hneykslunaröldu sem reis víða um alþjóðasamfélagið þegar ráðist var að Nóbelsverðlaunahafanum með hótunum um dóma og sektir 2005. Tilefnið var kunnugt: Pamuk sagði milljón Armena hafa farist í Tyrklandi á öðrum áratug síðustu aldar og að stríðið við frelsishreyfingu Kúrda hefði kostað þúsundir mannslífa. Það má ekki segja. Þjóðrembu- menn í Tyrklandi neita að viðurkenna þær þjóðernishreinsanir sem tíðkuðust með tæknilegri aðstoð þýskra hernaðarráðgjafa á fyrsta og öðrum áratug síðustu aldar. Þeir neita líka að minnihluti Kúrda sé til. Málsóknin gegn Pamuk var stöðvuð með samanteknum ráðum rithöfunda og stjórnmálamanna víða um lönd 2006 en málið var tekið upp aftur og nemur sektin ríflega 450 þúsund krónum. Pamuk loksins dæmdur fyrir sannleikann  Bókardómur L7 Eyrún ósk Jónsdóttir og HELgi svErrisson s íðla árs í fyrra kom út fallega frá-gengin bók með lausri hlífðarkápu og skreyttum spjöldum með þeirri sérkennilegu nafngift L7 og undirtitl- inum Hrafnar, sóleyjar og myrra. Eyrún Ósk Jónsdóttir og Helgi Sverrisson eru höfundar verksins sem er skáldsaga samin fyrir unglinga. Nú styttist í að samnefnd kvikmynd verði frumsýnd. Í sögunni, sem virðist samin samhliða gerð handrits að kvikmyndinni sem er væntanleg, segir frá Láru Sjöfn. Hún er þrettán ára og býr ein ásamt móður sinni en við upphaf sögunnar eru þær að fylgja föður og syni til grafar en þeir hafa farist á sviplegan hátt í bílslysi. Móðirin snýr aftur til starfa í sveitarfélagi þar sem hún er háttsett og stúlkan fer aftur í skóla, en hún er vinalaus og allt líf hennar er í upplausn: Hún ræður, rétt eins og móð- irin, ekkert við þrúgandi sorg og fær lítið liðsinni ættingja, sem koma lítið við sögu, eða stoðkerfis sem alla jafna er til taks við svo mikinn missi. Það er galli á sögunni hvað litið er hjá venjubundnum úrræðum fyrir þá sem verða fyrir áfalli. Lára Sjöfn leitar til vandalausra, fólks sem hún hefur haft lítil kynni af til þessa, og um síðir dregst hún inn í samfélag áhugafólks um leikstarfsemi sem heldur til í bragga í sveitarfélaginu. Þar finnur hún þann stuðning sem dugar henni til að takast á við sjálfa sig og sorg móður sinnar. Henni verður aftur fljótt ljóst, raunar nokkru seinna en lesanda, að gegn leikfélaginu vinnur samstarfskona móður hennar og hefur þar að leiðarljósi hagsmuni ástmanns síns. Sagan umbreytist þannig hratt úr sögu sem rekur þroska persónuleika ómótaðs unglings í spennusögu þar sem æsilegir atburðir lenda í fyrirrúmi. Með þessu vilja höfundar væntanlega slá tvær flugur í einu höggi, gefa persónusköpun tækifæri til að leiða einstakling áfram frá öryggisleysi til öryggis samfara því að þjónað er hreinni spennuafþreyingu fyrir lesendur. Gaman verður að sjá hvernig það tekst til á hvíta tjaldinu en í skáld- söguformi verður það heldur ósann- færandi þegar komið er fram yfir hálfa söguna. Margt hefði mátt færa til betri vegar í þessu handriti með einhverju tilleggi les- ara og ritstjóra af hálfu forlagsins. Hugs- unarvillur og rökleysur eru víða í text- anum sem eru til lýta því víða er hann hraður í atburðarás og höfundar vilja spenna boga sögunnar hátt. Það er enda til mikils að vinna: Vandað efni fyrir unga lesendur við þröskuld fullorðinsáranna er fátæklegt yfirleitt og flatt og lagt eftir sömu upplifunum og kvikmyndir geta svo auðveldlega satt en flestir unglingar sjá hratt í gegnum, svo veraldarvanir sem þeir eru. Bókarform skáldsögunnar er vísast betra til að koma flóknum boðum á framfæri en hið yfirborðskennda form kvikmyndasögunnar. Gaman verður að sjá hvernig sagan af Láru birtist á hvíta tjaldinu. En bókin er fallega frágengin og kápuvinnan til fyrirmyndar.  L7 – Hrafnar, sóleyjar og myrra Eyrún Ósk Jónsdóttir og Helgi Sverrisson 224 bls. 2010 Skrudda.  Þannig er lífið núna Meg Rosof Þýðing Helgi Grímsson JPV 2011 38 bækur Helgin 1.-3. apríl 2011  Bókardómur Þannig Er Lífið núna mEg rosof Bækur Páll Baldvin Baldvinsson pbb@frettatiminn.is Alþjóðlegu samtökin IBBY halda hátíð- legan dag barnabókarinnar hinn 2. apríl og í hverju landi sem á fulltrúa í samtök- unum er þessa minnst með einhverjum hætti. Hér á landi samdi Kristín Helga Gunnarsdóttir af þessu tilefni smásögu sem lesin var hátt fyrir börnin í skóla- stofum landsins í gær, fimmtudag. Ekki hafa borist neinar fréttir um að önnur hátíðahöld séu uppi vegna dags barnabóka hér á landi enda er sumar- dagurinn fyrsti löngum lagður undir sumargjafir og hafa þær gjarna verið bók. Hafa hvorki útgefendur né bóka- verslanir hert á þeim sið en vika bókar- innar hefur átt stærri sess í huga þeirra. Hitt er víst: Það er aldrei nóg lesið. -pbb Dagur barnabókar Stóra slysið og eftirmálin Æsilegir atburðir taka yfir þroskasögu L7 virðist vera samin samhliða handriti að kvikmynd sem er væntanleg. Sagan umbreytist þannig hratt úr sögu sem rekur þroska persónu- leika ómótaðs unglings í spennu- sögu þar sem æsilegir atburðir lenda í fyrirrúmi. Orhan Pamuk Mátti ekki tala um þjóðernishreins- anir á Armenum. Ljósmynd/Nordic Photos/Getty Images Allar götur síðan John Hersey birti lýsingar sínar á ástandinu í Hirosima hafa áhrifamenn á Vestur- löndum reynt að halda aftur af raun- sönnum lýsingum á veruleika nýrrar styrjaldar í álfunni. Þegar hún svo brast á neituðu margir að horfast í augu við hryllinginn á Balkan. Löngu fyrr, 1965, hafði Peter Watk- ins lýst áhrifum kjarnorkustríðs í War Game á svo áhrifamikinn hátt að BBC þorði ekki að sýna myndina. Beið með það í tuttugu ár. Nær all- ar myndir um framtíðarstríð í Evr- ópu – nú eða Ameríku – draga að einhverju leyti dám af War Game. Þar er hin almenna uppgjöf þeirra sem heima eru áhrifaríkust, matar- skömmtun, fæðuskortur og upp- lausn á öllum þráðum sem halda samfélaginu saman. „Þannig er lífið núna“ eftir bandarísku skáld- konuna Meg Rosof er ekki ný af nálinni, samin rétt eftir árþúsundaskiptin og sópaði viðurkenningu að höfundinum. Meg fæddist 1956 og sló í gegn með þessari fyrstupersónusögu af móðurleysingja sem er sendur frá uppahverfi New York, ráðríkum föður og stjúpu sem hún hatar til móðursystur í sveitahéraði á Suður-Englandi. Þar ganga frænd- systkin stúlkunnar nær sjálfala því frænkan er að berjast fyrir friði, sem kemur fyrir lítið, hernaðar- ástand leggur undir sig landið og börnin verða að bjarga sér á eigin spýtur. Bókin er víða skilgreind sem unglingasaga. Talsmátinn er líka þannig, kæruleysislegur og undirtónn falinn, upplýsingar stundum af skorn- um skammti. Örvænting, matarleysi og unglinga- kynlíf setur svip sinn á bókina framan af en stúlk- unni og níu ára frænku hennar er komið fyrir hjá vandalausum. Á þeim slóðum verður ofbeldið háskameira og brátt eru þær tvær á flótta um auð- ar sveitir, fólkið er flúið eða dáið. Náttúran tekur við landinu og það fellur í órækt, villidýr leggjast á nái og örlög vandamanna stúlknanna tveggja eru óljós. Þetta er vel samin saga, er reyndar að verið að kvikmynda, en talsniðið á þýðingu Helga Gríms- sonar er ósannfærandi, laust við slangur og hrá- leika sem rödd unglingskrakka með anorexíu heimtar. -pbb Meg Rosof Betri næring – betra líf eftir Kolbrúnu Björns- dóttur grasalækni haggast ekki úr toppsæti aðallista Eymundssonar þriðju vikuna í röð. Bókin situr líka í efsta sæti á lista Félags íslenskra bókaútgefenda. ÖfLug næring Ísak Hinriksson og Victoria Björk Ferrell í hlutverkum sínum í myndinni L 7, sem verður frumsýnd síðar á árinu.

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.