Fréttatíminn - 01.04.2011, Side 62
50 tíska Helgin 1.-3. apríl 2011
tíska
Kolbrún
Pálsdóttir
skrifar
Aukið kven -
hormón í strákum?
Fatakaupum karlkynsins er hægt að líkja
við flóknustu geimvísindi. Þetta er ekki
innbyggt í þá eins og okkur stelpurnar. Að
sjálfsögðu vil ég ekki að alhæfa og segja
allir strákar, því til eru ansi góðar undan-
tekningar, en almennt finnst strákum
ekki gaman að versla. Það er staðreynd.
Þeir hafa lítið sem ekkert vit á tískunni og
gera sér yfirleitt enga grein fyrir því hvar
best er að fjárfesta í fatnaði.
Í vikunni rakst ég á óformlega könnun
þar sem meirihluti stelpna sagðist taka
fyrst eftir fatnaði karlmanna. Karlmenn í
flottum fötum bæru höfuðið hæst. En er
það þá bara tilviljun hverjir hljóta í vöggu-
gjöf að kunna að klæða sig? Eða spila
áhugamálin þar inn í? Er jafnvel örlítið
meira af kvenhormóni í þeim sem nenna
að pæla í fötum?
Í okkar samfélagi er mikið rætt um mis-
munun kynjanna. Jafnt hlutfall þarf að
ríkja á hinum og þessum sviðum, áhersla
er lögð á jöfn kjör og svo framvegis. Í
flestum tilvikum er hægt að segja að bæði
kynin virki ágætlega hvar sem er, en
að sjálfsögðu er það gefið mál að til eru
undantekningar.
Líklega eru skilaboðin sem við fáum frá
umhverfinu aðalástæðan fyrir því hvað
okkur stelpunum finnst gaman að versla.
Við eigum að skemmta okkur við að
velja föt, máta föt, kaupa föt og strauja
kreditkortið grimmt. Við eigum að hafa
vit á tísku, mála okkur og klippa hárið
samkvæmt nýjustu tísku. Þannig er bara
samfélagið.
Nude Magazine flottur netmiðill
Sigríður Dagbjört, sem nýlega var
kjörin Ungfrú Reykjavík, er tuttugu
ára og klárar Verslunarskóla Íslands
í vor. Hún hefur mikinn áhuga á að
dansa, vera með vinum og er mikil
félagsvera að eðlisfari.
„Stíllinn minn er pínulítið sætur
með samblandi af rokki. Blanda því
mikið saman án meðvitundar. Síðast
liðin ár hef ég verið að vinna í Top
shop, með pásum, og kaupi fötin mín
meira og minna þar. Svo eru H&M og
American Apperal mikið í uppáhaldi
þegar ég fer til útlanda. Primark,
sem er í Englandi, er þó uppáhalds
búðin mín. Væri til í að eiga allt þar.
Það fæst allt í Primark og ekki kosta
vörurnar mikið.
Það sem mér dettur helst í hug
þegar talað er um tískuinnblástur,
er Nude Magazine; ótrúlega flottur
netmiðill, hnitmiðað efni og getur
fylgst með nýjustu tísku. Söngkonan
Rihanna kemur einnig upp í hugann,
óendanleg flott týpa, sérstök og
glæsileg.“
5
dagar
dress
Fyrir rúmum áratug,
þegar Spicegirls-æðið
stóð sem hæst, áttu
allir kvenmenn skó
með vel þykkum botni.
Buffaló-skórnir voru
allra vinsælastir og
voru þeir til á hverju
Jeffrey
Campbell
eykur
úrvalið
Stelpur úti um allan heim sem telja sig
hafa eitthvert vit á tísku hafa án efa
fjárfest í einu eða fleiri pörum af Jeffrey
Campbell-skóm. Þetta eru himinháir
hælar sem skutust á toppinn í fyrra-
sumar og hafa verið gríðarlega vinsæl-
ir síðan þá, ekki síst hér á Íslandi. Nú
hefur fyrirtækið aukið vöruúrvalið og
nýjasta línan þeirra inniheldur bæði
skófatnað og töskur. Töskurnar eru
nýkomnar á heimsmarkað og eru ekki
síður eftirsóttar.
Miðvikudagur
Skór: Topshop
Leggings: H&M
Bolur: American Apperal
Peysa: H&M
Hálsmen: Topshop
Mánudagur
Skór: Fókus
Buxur: Bikbok
Bolur: Topshop
Jakki: Topshop
Hálsmen: Bikbok
Þriðjudagur
Skór: Gyllti kötturinn
Sokkabuxur: H&M
Buxur: Topshop
Skyrta: Topshop
Hálsmen: Bikbok
Fimmtudagur
Skór: Topshop
Sokkabuxur: Topshop
Bolur: Topshop
Jakki: Topshop
Klútur: H&M
Föstudagur
Skór: Topshop
Sokkabuxur: H&M
Stuttbuxur: American
Apparel
Kjóll: H&M
Jakki: H&M
Hálsmen: Topshop
Buffalóskórnir að koma aftur
heimili. Þeir duttu þó fljótlega úr
tísku þegar hljómsveitin lagði upp
laupana og voru flest pörin afskrifuð
vegna meints ljótleika. Nú, rúmum
áratug síðar, eru þykkir botnar hins
vegar að koma gríðarlega sterkt inn,
með innblæstri frá buffalóskónum
frægu. Kannski ekki alveg eins
þykkir en þó nokkrum sentimetrum
hærri en við höfum átt að venjast.
Hægt er að nálgast slíka skó í helstu
tískubúðum landsins, flottari en
aldrei fyrr. kp
Innblástur frá
Rambo og Rocky
Nú hefur leikarinn Sylvester
Stallone tilkynnt að á næstu
mánuðum muni ný karl-
mannafatalína koma frá
honum, byggð á sögupersón-
unum Rocky og Rambo.
Hann hefur fengið í lið með
sér viðskiptafræðinginn
Michael Henry en fatamerkið
mun þó bera nafn leikarans sjálfs. Hann segir að
vöruúrvalið verði skemmtilegt og fjölbreytt; nærföt,
útivistarfatnaður, spariklæðnaður, sundfatnaður og
fleira. Í nýlegu viðtali sagði hann frá því að þessar
hugmyndir hans hefðu verið lengi í bígerð. kp
Kaupfélagið 16.990 kr.