Fréttatíminn


Fréttatíminn - 01.04.2011, Síða 68

Fréttatíminn - 01.04.2011, Síða 68
56 tíska Helgin 1.-3. apríl 2011 www.myndlistaskolinn.is KORPÚLFSSTÖÐUM - Laugardaginn 2.apríl - kl.13-17 • Sýning á verkum nemenda í útibúi skólans og opnar vinnustofur listamanna. HRINGBRAUT 121 - Sunnudaginn 3. apríl - kl.12-18. • Sýning á verkum nemenda Myndlistaskólans í Reykjavík. • Kynning kl.14-16 á fullu námi: Mótun, Teikningu og Textíl og Myndlista- og hönnunarsviði. • Köku- og keramik-tombóla - söfnun í ferðasjóð nemenda. • Útgáfa 4.tölublaðs myndasögublaðsins AAA!!! • BÍÓ - hreyfimyndir og stuttmyndir eftir börn og fullorðna. VORSÝNING S tevie Ward og kjóllinn sem hún skartaði á EVE Fanfest fór ekki fram hjá neinum sem sótti þessa litskrúðugu og fjölþjóðlegu árshátíð þeirra sem eru á bólakafi í sýndar- heimi EVE Online-tölvuleiksins. Ward er einhvers konar andlit hátíðarinnar út á við og hún lét þau boð út ganga til Tækniskólans að hana vantaði sérhannaðan kjól til að spóka sig í á hátíðinni. Nemendur í skól- anum stukku margir hverjir til en eftir að Dagný Lára Guð- mundsdóttir, sem notar lista- mannsnafnið Daggalá, sendi Ward litla möppu og eina skissu að kjól, varð ekki aftur snúið og Ward vildi fyrir alla muni að hún hannaði á sig kjólinn. „Þá fór undirbúningsvinnan af stað og ég skoðaði leikinn til þess að kjóllinn yrði í réttum anda,“ segir Daggalá sem segist fráleitt geta talist leikjanörd. „Vinur minn spilar hins vegar leikinn þannig að ég þekkti þennan heim pínulítið. En mann hefði aldrei geta grunað að tölvu- leikir gætu tengst fatnaði svona mikið.“ Daggalá segir EVE ekki síst áhugaverðan fyrir þær sakir að mikill meirihluti persónanna í leiknum er kvenkyns þótt spilararnir séu, eins og við er að búast, langflestir karlar. „Það eru líka fatahönnuðir í því að skapa þessar persónur og hanna fötin á þær.“ Daggalá er tvítug og leggur stund á nám í kjólasaumi og klæðskurði við Tækniskólann en er síður en svo einhöm þar sem hún er á öðru ári í ensku við Háskóla Íslands með viðskiptafræði sem aukagrein. „Ég get bara ekki verið með eitt járn í eldinum í einu,“ segir hún og bætir við að val hennar á fögum í Háskólanum sé engum tilviljunum háð þar sem allt styðji þetta hvað annað. „Maður verður náttúrlega að kunna ensku, og ekki bara venjulega ensku heldur alls konar fagtengd orð, og kunna að setja upp almennilegan texta, og viðskiptafræðin kemur sterk inn í þetta,“ segir Daggalá sem vill alls ekki útiloka að hún muni hanna fleiri flíkur tengdar tölvuheimum. -þþ É g held að fatahönnun verði næsta útrásarverkefni Ís-lendinga og mig langar að leggja hönd á plóginn og styðja við þessa grein,“ segir Jón sem hefur í nógu að snúast þessa dagana. Tískuhátíðin Reykjavík  Daggalá SÉrhannaði EVE OnlinE-kjól Er enginn tölvunörd Stevie Ward í EVE-kjólnum ásamt Döggulá sem mætti að sjálfsögðu á Fanfest og fylgdist með kjólnum standa sig innan um nördana. Jón Ólafsson og Ingibjörg Finnbogadóttir standa að Reykjavík Fashion Festival og bjóða öllum helstu tískufjölmiðlum heims til Íslands um helgina. Notar samböndin til að kynna íslenska tísku Jón Ólafsson stendur að baki Reykjavík Fashion Festival og býður 76 erlendum fjölmiðlum til landsins til að sjá nýja íslenska fatahönnun.  www.lifEprOjEct.iS tEkur Við mynDum frá rff Sjálfskipaðir fréttaritarar með farsíma Tískuveislan Reykjavik Fashion Festival verður haldin með pomp og prakt í höfuðborginni um helgina og að vonum verður mikið um dýrðir; svo mikið að þeir áhugasömustu geta varla komist yfir allt sem í boði er. Vefsíðan liveproject.is getur reynst haukur í horni við þessar aðstæður en þar gefst fólki kostur á að hlaða inn myndböndum og myndum frá viðburðum tískuhátíðarinnar í rauntíma. „Þetta á í raun að virka þannig að allir geti séð stemninguna á einhverjum ákveðnum viðburði í beinni útsendingu á síðunni,“ segir Hörður Kristbjörnsson hjá liveproject.is. „Allir sem eru með rétt búna síma geta þannig orðið eins konar fréttaritarar með því að hlaða inn því sem fyrir auga þeirra ber í gegnum símann. Þetta er öllum opið og allir geta verið með. Það er engin ritskoðun í gangi hjá okkur, fyrir utan það að við gætum þess að ósæmilegt efni fari ekki inn.“ Hörður segir hugmyndina vera þá að síðan taki við efni frá ákveðnum viðburðum og nú er röðin komin að RFF. Síðan var opnuð fyrir innsendingum á fimmtudag og verður ekki lokað fyrr en á mánudag. Hún verður svo opnuð aftur um næstu helgi og þá verður horft til Akureyrar þar sem mikið verður um að vera. „Þá verðum við á AK Extreme, sem er snjóbrettamót og tónlistarhátíð. Auk þess sem Söngvakeppni framhaldsskólanna fer fram í bænum og við ætlum að leyfa fólki að deila því sem er að gerast með okkur,“ segir Hörður og bendir á að síðan sé þannig tilvalin fyrir þá sem ekki komast á staðinn til þess að fá stemninguna beint í æð. Tilraun var gerð með liveproject. is á Iceland Airwaves í október og það efni sem er á síðunni nú þegar er þaðan. Hörður segir að þá hafi í raun verið um tilraun að ræða. Innsendingarferlið hefur verið einfaldað síðan þá með forriti eða svokölluðu „appi“ í símann sem hægt er að nálgast á lifeproject.is. Hörður Kristbjörnsson ásamt félögum sínum, Daníel Frey Atlasyni og Benedikt Frey Jónssyni, en á myndina vantar fjórða manninn sem stendur að síðunni, Arnar Yngvason. Fashion Festival brestur á um helgina og hefur öllum stærstu tískumiðlum heims verið boðið að koma og sjá þegar nýjar haust- og vetrarlínur íslenskra hönnuða verða kynntar. Meðal þeirra eru Dazed and Confused, þýska Vogue og W Magazine. Jón hefur unnið mikið í út- löndum að undanförnu við að koma vatninu Icelandic Glacial á framfæri. Vatnið er nú áberandi í mörgum þekktum sjónvarps- þáttaröðum á borð við Desperate Housewifes og House. „Ég hef einnig unnið mikið með Christian Dior og Elite í París og hef mynd- að tengsl þar úti sem mig langar að nýta til að styðja við íslenska hönnuði. Vonandi náum við að breiða fagnaðarerindið út um víða veröld.“ Ingibjörg Finnbogadóttir, framkvæmdastjóri RFF, segir helstu breytingu hátíðarinnar vera þá hve mikla athygli hún veki meðal erlendra fjölmiðla í ár. „Til viðbótar við þá tískumiðla sem mæta á staðinn hefur fjöld- inn allur óskað eftir umfjöllun og myndum að hátíðinni liðinni. Við búumst við gríðarlega öflugri kynningu.“ Virtustu tískuvikurnar eru flestar yfirstaðnar á þessum árs- tíma og því sáu aðstandendur hátíðarinnar sóknarfæri í að vera síðastir í almanakinu. „Nú hafa tískublaðamenn tíma til að koma og fylgjast með því sem hér er að gerast og við erum ekki að keppa við háannatíma tískuviknanna,“ segir Ingibjörg. Jón segir tímasetningu há- tíðarinnar einnig heppilegan fyrir íslenska ferðaþjónustu. „Við bjóðum fólki hingað utan helsta ferðatímans og það skiptir máli. Vonandi nær hátíðin að stækka og vaxa og hver veit nema hún verði jafn stór og Airwaves í fram- tíðinni.“ 22 íslenskir hönnuðir sýna verk sín á hátíðinni í ár. Ég held að fatahönnun verði næsta útrásar- verkefni Ís- lendinga.

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.