Fréttatíminn - 10.06.2011, Page 14
S
upport“-klúbbarnir hafa þann
tilgang að vinna verk sem full-
gildir meðlimir Hells Angels
þurfa ekki að gera sjálfir, svo
sem að sjá um handrukkanir
og fleira,“ segir sérfræðingur norsku
rannsóknarlögreglunnar, Kripos, í mál-
efnum Hells Angels. Hann vill ekki láta
nafns síns getið. Lögreglumaðurinn
segir það vera eitt af frumskilyrðunum
til að fá inngöngu í samtökin að hafa fjöl-
margt lið á valdi sínu sem sé tilbúið að
vinna skítverk.
Einar Marteinsson, forseti íslensku
Vítisenglanna, er hissa á orðum norsku
lögreglunnar. „Ég gef ekkert fyrir svona
vitleysu. Þessi maður þekkir okkur ekki
neitt og það er undarlegt að fullyrða
svona. Það er af og frá að þeir vinni fyrir
okkur.“
Samskipti við norska Vítisengla
Mikil samskipti hafa verið milli íslensku
Vítisenglanna og þeirra norsku.
Í fréttaskýringarþættinum Brenn-
punkt, sem sýndur er í norska ríkissjón-
varpinu, hefur mikið verið fjallað um
starfsemi Hells Angels í Noregi. Brenn-
punkt segist hafa aðgang að fundargerð-
um frá allnokkrum Hells Angels-klúbbum
í landinu. Gögnin sýni að Vítisenglarnir
hafi í heilt ár unnið skipulega í að koma
á samvinnu við vélhjólaklúbba í landinu.
Alls hafi 28 vélhjólasamtök í 25 sveitarfé-
lögum gerst formlegir „support“ -klúbbar
Hells Angels.
Fjölskyldudagur Hells Angels fram
undan
Að sögn Einars Marteinssonar er sam-
band samtakanna Hells Angels og S.O.D.
eftirfarandi: „Við hjólum saman og
skemmtum okkur saman. Það er ekkert
ólöglegt. Við erum allir góðir strákar.“
Spurður hvers vegna Hells Angels á Ís-
landi þurfi „stuðnings“-klúbb segir
Einar: „Það stækkar fjölskylduna og
þéttir hópinn.“
Hann nefnir sem dæmi að á næstu
vikum standi Hells Angels og S.O.D. fyrir
fjölskyldudegi fyrir ættingja sína og
börn. Ætlunin sé að meðlimir klúbbanna
hittist í Reykjavík og fari þaðan á mótor-
hjólum að klúbbhúsi S.O.D. á Suðurnesj-
um. Þar verði hoppkastalar og stuð.
Á fimmtudag í síðustu viku stöðvaði
lögreglan á þriðja tug vélhjólamanna
sem keyrðu saman í hóp um miðbæ
Reykjavíkur. Lögreglan kannaði ástand
ökumannanna, ökuréttindi og skráningu
vélhjólanna. „Þetta er ekki normalt. Það
er ekki ólöglegt að keyra mótorhjól á Ís-
landi. Við gerðum ekkert,“ segir Einar
Marteinsson.
Í hópnum voru að minnsta kosti fjórir
íslenskir Vítisenglar. Auk þeirra báru
nokkrir mannanna vesti merkt MC Ice-
land og „Prospects“ sem þýðir að þeir eru
langt komnir í ferlinu að verða fullgildir
meðlimir íslenska Hells Angels-klúbbs-
ins. Samkvæmt venju tekur eitt ár að
komast úr þeirri stöðu og inn í klúbbinn.
Augljóst er því að Vítisenglum mun fjölga
hér á næstunni.
Bræðralagið ofar öllu
Sérfræðingur Kripos segir að reglur og
hefðir Hells Angels séu mjög stífar og
íslenskir meðlimir hinna alþjóðlegu sam-
taka þurfi að lúta þeim. Skilyrði fyrir
inngöngu í klúbbinn séu mörg. Líklegt
sé að menn þurfi að sanna trygglyndi
sitt með því að koma með fjármagn inn
í samtökin og að íslenskir Vítisenglar
hafi líklega yfirráð yfir „auðlindum“ sem
séu eftirsóknarverðar fyrir hina alþjóð-
legu starfsemi. Þá sé bræðralagið ofar
öllu. Gerist einhver sekur um að brjóta
Nokkrir vélhjólamenn bíða eftir að verða formlega teknir inn í íslensku Hells Angels-samtökin. Lögreglan hefur áhyggjur
af því að samtökin séu að færa út kvíarnar með aðstoð „support„-klúbbsins S.O.D. Þóra Tómasdóttir skoðaði málið.
reglur Hells Angels, verði hann gerður
útlægur úr samtökunum. Algengt sé að
útlagar láti sig hverfa eða gangi til liðs
við önnur vélhjólasamtök sem veiti þeim
vernd. Að mati norska lögreglumannsins
kom atburðarásin ekki á óvart þegar Jón
Trausti Lúthersson, fyrrum forsvars-
maður vélhjólaklúbbsins Fáfnis, gekk
til liðs við annan félagsskap á svipuðum
tíma og félagar hans úr Fáfni fengu inn-
göngu í Hells Angels. Jón Trausti varð
fullgildur meðlimur norska vélhjóla-
klúbbsins Outlaws í ársbyrjun.
Einar Marteinsson segir að taka verði
með fyrirvara skoðunum Kripos á Hells
Angels. Það sé pólitískur angi norsku
lögreglunnar, líkt og embætti Ríkis-
lögreglustjóra á Íslandi. Að baki liggi
annarleg sjónarmið. Íslenskir Vítisenglar
séu nú að skoða réttarstöðu sína vegna
vinnubragða lögreglunnar. Þeir íhugi
að kæra lögregluna fyrir ólögmæta upp-
lýsingaöflun, þar á meðal símhleranir og
óviðeigandi myndatökur úr launsátri.
Einar nefnir sem dæmi að lögreglan
hafi fylgst með jarðarför eins „bræðr-
anna“. „Þá hékk löggan út um glugga á
bíl og tók myndir. Það er lítið heilagt hjá
þeim.“
Norska löggan í herferð gegn vél-
hjólaklúbbum
Í febrúar lögðu norsku lögregluembætt-
in og Kripos fram aðgerðaáætlun gegn
vélhjólasamtökum sem stunda glæpi. Í
áætluninni eru sum vélhjólasamtök sögð
skipulögð glæpatengslanet.
Fyrrum forseti Hells Angels í Ósló er
kallaður „Supern“. Í samtali við Frétta-
tímann segir hann að fyrir rúmu ári hafi
norska lögreglan fullyrt að engin ástæða
væri til að óttast vélhjólaklúbbana í land-
inu. „Nú kemur lögreglan allt í einu fram
með aðgerðaáætlun gegn glæpsamleg-
um vélhjólaklúbbum og stimplar okkur
sem samfélagsóvin númer eitt. Þetta var
algjört sjokk fyrir okkur og gjörsamlega
óskiljanlegt.“
Hells Angels í Noregi hafa áhyggjur af
þeirri mynd sem dregin er upp af sam-
tökunum í fjölmiðlum og segjast ein-
göngu vera samtök vélhjólamanna sem
eigi það sameiginlegt að vilja keyra um á
stórum mótorhjólum. Eins og áður sagði
hefur fréttaskýringarþátturinn Brenn-
punkt fjallað ítrekað um Hells Angels. Í
einum af þremur þáttum um samtökin
er fjallað um hlutverk „support“-klúbba
Hells Angels. Rætt er við Vítisengil sem
ekki vill koma fram undir nafni en full-
yrðir að í ákveðnum „support“ -klúbbum
í Noregi séu unnin ofbeldisverk fyrir
Vítisenglana.
Supern segir þessa fullyrðingu al-
ranga. „„Support“ -klúbbar vinna engin
verk fyrir okkur. Þeir eru bara vinir
okkar og við höfum ákveðið að sæma þá
merkjum til að vernda þá fyrir þrýstingi
útlendra vélhjólaklúbba sem vilja sölsa
undir sig þá norsku. Þrýstingur á litlu
vélhjólaklúbbana úti á landi hefur aukist
mjög. Þeir eru vinir okkar og hafa verið
í áraraðir.“
Supern segir að nú sé meðlimum Hells
Angels-samtakanna nóg boðið. „Eftir að
þessi aðgerðaáætlun var lögð fram og
eftir rógsferð Brennpunkt gegn okkur
getum við ekki annað en brugðist við.
Við erum að undirbúa kæru á hendur
ritstjóra Brennpunkt. Málið verður fyrst
tekið fyrir hjá fjölmiðlanefnd og síðan
förum við væntanlega með það lengra.“
Ríkislögreglustjóri segir ekki orð
um Hells Angels
Fréttatíminn hefur leitað upplýsinga hjá
embætti Ríkislögreglustjóra um tengsl
Hells Angels á Íslandi við aðra vélhjóla-
klúbba. Haraldur Johannessen ríkis-
lögreglustjóri vill ekki tala við blaða-
menn í síma, ekki fæst uppgefið hjá
honum netfang og ekki tekur hann við
skilaboðum.
Þóra Tómasdóttir
thora@frettatiminn.is
Vítisenglum fjölgar
Vítisenglarnir
Guðmundur, Einar
Marteinsson og Árni
þegar lögreglan
stoppaði þá við
Skúlagötu á dög-
unum.
„Support“-klúbbarnir hafa þann tilgang að vinna verk sem fullgildir meðlimir
Hells Angels þurfa ekki að gera sjálfir, svo sem að sjá um handrukkanir.
Supern Fyrrum
forseti Hells Angels
í Ósló segir í samtali
við Fréttatímann að
fullyrðingar um að
„support“- klúbbar
stundi glæpi fyrir
samtökin séu rangar.
14 fréttaskýring Helgin 10.-12. júní 2011