Fréttatíminn - 10.06.2011, Qupperneq 48
40 bíó Helgin 10.-12. júní 2011
Z erkalo-kvikmyndahátíð-in var haldin í fimmta sinn í maí en nafn há-
tíðarinnar vísar til Spegils-
ins, myndar Tarkovskís frá
árinu 1975 sem fór illa í yfir-
völd í Sovétríkjunum sálugu.
„Hátíðin er haldin í borginni
Ivanovo, hans heimahéraði,
þar sem Spegillinn gerist,
þar sem hann fæddist og fjöl-
skyldan leitaði skjóls í seinni
heimsstyrjöldinni,“ segir Guð-
rún. „Við vorum þarna fimm
manna alþjóðleg dómnefnd og
áttum að velja eina mynd af tíu
sem kepptu til verðlauna og
einn leikara og eina leikkonu.
Myndin Dagbækur Músan frá
Kóreu var valin besta mynd-
in en hún fjallar um Norður-
Kóreumann sem flýr til Suð-
ur-Kóreu en lífið reynist síst
auðveldara þar.Þetta var heil-
mikið ævintýri og mikið við
okkur haft og við fórum víða.
Við heimsóttum heimabæ Tar-
kovskís þar sem allur bærinn
og lúðrasveitin tók á móti okk-
ur. Þar var opnað menningar-
hús og svo plöntuðum við
trjám fyrir utan hjá honum.“
Mikið var um dýrðir á há-
tíðinni þar sem sýndar voru
nýjar rússneskar myndir,
stuttmyndir, heimildarmyndir
og teiknimyndir. „Ég sá bara
þessar tíu myndir í keppn-
inni og þorði varla að vera
að ergja mig á að skoða dag-
skrána vegna þess að þar var
ótrúlegur fjöldi mynda sem ég
hefði viljað sjá en hafði ekki
tök á. Síðan voru allar mynd-
irnar hans Tarkovskís sýndar
og líka uppáhaldsmyndirnar
hans. Þetta er nú svokallaður
heimsfrægur maður þótt hann
sé ekki frumsýndur hér.“
Tarkovskí er, ásamt Ser-
gei Eisenstein, þekktasti
kvikmyndaleikstjóri Sovét-
ríkjanna. Hann vakti heims-
athygli árið 1962 með sinni
fyrstu mynd, Barnæsku Ívans,
sem vann til verðlauna á kvik-
myndahátíðinni í Feneyjum.
Næsta mynd hans, Andrei Ru-
blyov, hlaut ekki náð fyrir aug-
um yfirvalda í Sovétríkjunum,
þar sem hún var bönnuð til
ársins 1971, en vann engu að
síður til verðlauna í Cannes.
Eftir að Tarkovskí gerði
Nostalghia á Ítalíu árið 1983
flúði hann Sovétríkin og gerði
Fórnina í Svíþjóð en myndin
náði þeim ótrúlega árangri að
vinna til fjögurra verðlauna
í Cannes. Myndin var frum-
sýnd 1986 en krabbamein dró
leikstjórann til dauða í des-
ember það ár.
Ralph Fiennes, sem hefur
farið mikinn sem Voldemort í
Harry Potter-myndunum, var
formaður dómnefndarinnar
á Zerkalo-hátíðinni. Sænski
Pólverjinn Michal Leszczy-
lowski var einnig í nefndinni
en hann klippti Fórnina á sín-
um tíma og þau Guðrún voru
einu meðlimirnir sem höfðu
persónuleg kynni af Tar-
kovskí. „Það eru ekki marg-
ir eftirlifandi,“ segir Guðrún
sem þótti vænt um að fá að
hitta systur Tarkovskís og
son hans sem varð eftir í Sov-
étríkjunum þegar Tarkovskí
yfirgaf landið.
Guðrún segir Fiennes vera
hinn viðkunnanlegasta og
prýðilegasta mann í alla staði.
„Hann hefur einhverjar blóð-
taugar til Rússlands og langar
til að leika Fávita Dostojef-
skís. Hann lék í Onegin fyrir
nokkrum árum og hefur verið
í landinu við tökur og er mjög
dáður í Rússlandi. Allar kerl-
ingarnar sem leiddu okkur
um söfnin vildu fá myndir af
sér með honum og sama er að
segja um krakkana sem fengu
í hnén enda er Harry Potter
þekktur alls staðar.“
Zerkalo-hátíðin var haldin
í fyrsta sinn árið 2007 og þá
var Ólafur Darri Ólafsson
var valinn besti karlleikarinn
fyrir leik sinn í Börnum.
guðrún gísladóttir sat í dómnefnd Zerkalo film festival
bíódómur kung fu Panda 2
frumsýnd
Í Rússlandi með Voldemort
Árið 1986 lék Guðrún Gísladóttir í Fórninni, síðustu mynd rússneska leikstjórans Andreis
Tarkovskí en leikstjórinn lést þetta sama ár. Rússar, rétt eins og kvikmyndaunnendur úti um víða
veröld, hafa minningu Tarkovskís í hávegum og halda árlega alþjóðlega kvikmyndahátíð á heima-
slóðum leikstjórans. Guðrún er nýkomin heim frá Rússlandi þar sem hún átti sæti í dómnefnd
sem breski leikarinn Ralph Fiennes fór fyrir.
t eiknimyndin um pönduna og lánlausa núðlukokkinn Po, sem
komst loks í snertingu við sinn innri
slagsmálahund og varð mikil hetja,
var bráðskemmtileg. Ekta ævintýri
sem skemmti börnum jafnt sem full-
orðnum og ekki svíkur framhalds-
myndin sem er í raun betri í alla
staði.
Po er nú orðinn fullgildur með-
limur í hinu frækna Kúng Fú-gengi
þeirra Tigress, Monkeys, Mantis, Vi-
pers og Cranes. En það er lítill tími
til að slaka á þar sem nýr og snar-
óður andstæðingur, Shen, skýtur
upp kollinum og ætlar sér að leggja
gervalt Kína undir sig.
Inn í söguna er svo fléttað forsögu
Pos enda er það aldrei tilviljun þeg-
ar óttalegir aular finna hjá sér innri
styrk til að láta hetjudrauma sína
rætast. Fyrir því eru alla jafna góðar
og gildar ástæður þótt þær hafi ekki
farið hátt. Spyrjið bara Loga Geim-
gengil.
Öllum ómissandi þráðum er vafið
smekklega saman þannig að nóg er
af gríni, spennu, hasar og tilfinn-
ingum í réttum hlutföllum. Þá spillir
ekki fyrir að myndin er afskaplega
áferðarfögur og á köflum tilkomu-
mikil.
Síðan kemur það vitaskuld í hlut
frábærra leikara að negla myndina
saman í þá góðu skemmtun sem
hún er. Hér er valin manneskja í
hverju rúmi. Jack Black endur-
tekur leikinn sem Po og Dustin
Hoffman talar áfram fyrir núðlu-
kokkinn, fóstra Pos. Angelina Jolie,
Jackie Chan, Seth Rogen, Lucy
Liu og David Cross fylla svo flokk
verndara Friðardalsins. Vænn slatti
af nýjum persónum mætir til leiks
en þar fer mest fyrir illfyglinu Shen
sem Gary Oldman túlkar af sinni
stöku snilld en fáir standa þeim
leikara jafnfætis þegar kemur að
skuggalegum skúrkum.
Kung Fu Panda 2 er því skotheld
skemmtun. Mátulega spennandi
og krúttleg og þeir sem hafa þeirri
skyldu að gegna að fylgja smáfólk-
inu í bíó þurfa ekki að hafa neinar
áhyggjur af því að þessi bíóferð sé
sóun á dýrmætum tíma fullorðna
fólksins. Þórarinn Þórarinsson
Gamanmyndin Bridesmaids
greinir frá vandræðum
Annie sem krefst þess að fá
að sjá um allt er viðkemur
væntanlegu brúðkaupi bestu
vinkonu hennar, Lillian.
Annie tekur ekki annað í mál
en að vera aðal brúðarmærin
en því hlutverki fylgja meiri
og þyngri skyldur en hún
hafði gert sér í hugarlund.
Sjálf er hún með allt sitt í
klessu, ástlaus og einmana,
en lætur það samt ekki
stoppa sig. Hún þarf að
smala saman nokkrum
vinkonum Lillian sem eiga
að vera brúðarmeyjar
með henni en hópurinn er
vægast sagt litskrúðugur
og ósamstæður. Það kostar
blóð, svita og tár að halda
hópnum saman um leið og
það þarf að skipuleggja
brúðkaupsveisluna, velja
kjólinn og síðast en ekki síst
skipuleggja gæsapartíið sem
á að halda í Las Vegas þar
sem allt getur gerst og gerir
það iðulega. Bridesmaids
kemur úr smiðju sömu aðila
og gerðu gamanmyndirnar
Knocked Up og The 40 Year
Old Virgin sem ætti að gefa
einhverja vísbendingu um á
hvaða slóðum húmorinn er.
Aðrir miðlar: Imdb: 7,7,
Rotten Tomatoes: 88%,
Metacritic: 75.
Mary&Max
Mary Daisy Dinkle er ung stúlka sem býr við bágar
aðstæður í Ástralíu. Foreldrarnir eru til skammar og
hún er lögð í einelti í skólanum. Hún gerist pennavinur
manns í New York, Max Jerry Horowitz að nafni. Max
þjáist af offitu og geðrænum kvillum en þau tengjast
vegna sameiginlegrar ástar á súkkulaði og skilja ein-
manaleika hvort annars. Myndin fylgist með sambandi
þeirra þróast í áratug en þegar slettist upp á vinskapinn
heldur Mary til New York til að reyna að ná sáttum við
þennan besta vin sinn. Aðrir miðlar: Imdb: 8,2, Rotten
Tomatoes: 94%, Metacritic: -
Þetta er nú
svokallaður
heimsfræg-
ur maður
þótt hann
sé ekki
frumsýndur
hér.
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
bíó
Guðrún með Ralph Fiennes sem var hvers manns hugljúfi á Zerkalo-kvikmyndahátíðinni.
Allir eru í Kúng Fú-fætingi
18 myndir á Stutt-
myndadögum
Stuttmyndadagar í Reykjavík verða
haldnir í Bíó Paradís á miðviku- og
fimmtudag í næstu viku. Uppskeran á
stuttmyndaakrinum þykir óvenjugóð að
þessu sinni en 65 myndir bárust og 18
þeirra voru valdar til að keppa á hátíð-
inni. Verðlaunin fyrir bestu stuttmyndina
eru 100.000 krónur, 75.000 fyrir
annað sætið og 50.000 fyrir það þriðja.
Venju samkvæmt verða veitt sérstök
áhorfendaverðlaun og Sjónvarpið mun
sýna verðlaunamyndirnar. Þá verður
leikstjóra myndarinnar sem hafnar í
fyrsta sæti boðið á kvikmyndahátíðina í
Cannes á næsta ári þar sem hann tekur
þátt í hinu svokallaða Short Film Corner.
Prom
Unglinga-
gamanmynd sem
segir frá hópi
krakka sem eru
að undirbúa sig
fyrir lokadans-
leikinn í skólanum.
Það er vitaskuld
að mörgu að
hyggja í flóknu
lífi táninga sem
reyna að hegða
sér í samræmi við
amerískar hefðir
þegar að þessari
stóru stund kemur.
Aðrir miðlar:
Imdb: 3,6, Rotten
Tomatoes: 34%,
Metacritic: 50.
Po og félagar mæta nýjum ógnvaldi í
Kung Fu Panda 2.
Skrautlegar brúðarmeyjar
Brúðar-
meyjarnar
eru jafn
ólíkar og
þær eru
margar.
Guðrún og Mar-
ina Tarkovskæja,
systir Tarkovskís
heitins.