Fréttatíminn - 15.07.2011, Page 8
Jónas
Haraldsson
jonas
@frettatiminn.is
Nýtt kortatímabi
l
Allt í
ferðAlAgið
fyrst og fremst ódýrt
* gildir út júlí 2011
Nítjánda Disney herbergið
þar sem börnin una sér vel eftir matinn
Nítjánda fjölskyldustaður
.. þar sem börnin borða frítt
í fylgd með foreldrum *
Nítjánda fjölskyldustaður
lunch. brunch & kvöldverðarhlaðborð
Meira í leiðinni WWW.N1.IS
Bonito ehf. Friendtex
Faxafen 10, 108 Reykjavík, sími: 568 2870 - www.friendtex.is
Opnunartími:
mánud. - föstud. kl. 11:00 - 18:00 lokað á laugardögum
ÚTSALA
MIKIÐ ÚRVAL AF
FLOTTUM FATNAÐI
ENN MEIRI VERÐLÆKKUN
KÍKTU ÞAÐ BORGAR SIG
D iplómatarnir hér segja það erfiðast við að búa hér hversu kúgunin er skipulögð og kerfis-
bundin,“ segir lögfræðingurinn Anna
Pála Sverrisdóttir sem komst inn á
Gaza-svæðið í Palestínu í vikunni. „Ég
var búin að bíða í margar vikur eftir að
fá leyfi til að fara inn Ísraels megin en
ísraelski herinn dró mig endalaust á
svari. Að lokum tók ég því ákvörðun um
að fara landleiðina Egyptalands megin.
Ég gerði það í þrjóskukasti upp á von og
óvon um hvort ég kæmist inn á Gaza-
svæðið.“ Til að það geti gengið upp þarf
að vera búið að koma nafninu sínu á lista
hjá landamæralögreglunni Egyptalands
megin og ganga frá málunum gagn-
vart Hamas-stjórninni Palestínu megin.
„Þetta breyttist í mikið ævintýri. Ferða-
lagið tók mig tvo daga hvora leið og ég
fór í fylgd með bedúínum, hirðingja-
flokki á Sínaí-skaganum, sem reyndust
mér vel. Ég fór með þeim frá Rauða-
hafinu og gegnum eyðimörkina.“ En
Anna Pála hafði verið vöruð við að fara
í gegnum Egyptaland á þessum tíma.
„Ég fékk að heyra sögur um mansal og
glæpi á Sínaí-skaganum og hættuástand
vegna pólitísks óstöðugleika en svo fékk
ég þær upplýsingar á áreiðanlegri ferða-
skrifstofu að mikið til væri þetta áróður
frá Ísrael því þeir vilja ekki að fólk fari
til Egyptalands. Ég ákvað því að beita
öllum varúðarráðstöfunum og ferðast
eingöngu í dagsbirtu til að vera viss um
að þetta væri allt í lagi,“ segir Anna Pála
sem kom á óvart hversu mikið mál það
var að fara Egyptalands megin inn á
Gaza-svæðið þrátt fyrir að Egyptar hafi
í kjölfar byltingarinnar ákveðið að opna
landamærin að Gaza. „Aðgangurinn er
takmarkaður og af því að ég ákvað með
svona stuttum fyrirvara að fara Egypta-
lands megin var þetta svolítill frum-
Palestína skiPulögð og kerfisbunDin kúgun
Komst til Gaza
eftir krókaleiðum
Anna Pála Sverrisdóttir lögfræðingur komst eftir langa mæðu inn á Gaza-svæðið í Palestínu síðast-
liðinn miðvikudag. Hún segir það ekki áreynslulaust að komast inn á svæðið þrátt fyrir að Egyptar
hafi opnað landamærin sín megin. Þóra Karítas Árnadóttir náði tali af henni í lok ferðarinnar.
skógur að komast í gegnum. Þrátt fyrir
milljón ljón á veginum hafðist þetta á
viljastyrknum,“ segir Anna Pála sem
vissi ekki við hverju hún átti að búast
þegar hún mætti loks á Gaza-svæðið.
„Þetta er eitt fjölmennasta landsvæði
í heiminum og margt mjög fallegt.
Þarna er til dæmis mjög sjarmerandi
strönd þar sem fólk þyrpist saman á
kvöldin og nútímalegar byggingar,
fínir veitingastaðir, hótel og kaffihús.
Á móti kemur að það er mikil fátækt á
mörgum stöðum, líklega helst í flótta-
mannabúðunum fyrir fólk sem vill og
á rétt á að snúa aftur til heimkynna
sinna á þann stað sem foreldrar þess,
afar og ömmur flúðu frá árið 1948.
Hérna finnur maður líka rosalega mik-
ið fyrir árásarstríði Ísraela 2008-2009.
Þá varð mikil eyðilegging og hér eru
hrikaleg ör á sálinni á fólki. Svo bætir
það ekki aðstæðurnar að Hamas-sam-
tökin, sem vissulega náðu löglegu kjöri
til þingsins, eru búin að taka sér alltof
mikið vald og í raun er algjört lögreglu-
ríki á Gaza.“ Anna Pála þurfti að þiggja
aðstoð frá Hamas til að komast út úr
Gaza. „Það var í gegnum mann sem
þekkti mann í Hamas-samtökunum.
Ég beið því í VIP-stofunni hjá Hamas
við landamærin á leiðinni út. Þarna
voru stórkarlar úr Hamas að hittast til
að drekka kaffi og ég sat í sófa á kant-
inum, í fínni loftkældri stofu þar sem
ég horfði á fréttirnar í sjónvarpinu.“
Anna Pála segist lengi hafa haft
áhuga á pólitíkinni á þessu svæði,
mannréttindum og kvenfrelsi. Hún
tekur við starfi lögfræðings á sviði al-
þjóða- og öryggismála í utanríkisráðu-
neytinu í haust.
Þóra Karítas
thorakaritas@frettatiminn.is
Áratugalangt
hernám
Árið 1967 hófst eitthvert
lengsta hernám okkar tíma
en síðan þá hafa Gaza-svæð-
ið og Vesturbakkinn verið
undir ísraelsku hernámi. Í
ályktun númer 242 þetta
sama ár fyrirskipaði
Öryggisráð Sameinuðu
þjóðanna að Ísraelsher
skyldi draga sig til baka frá
svæðunum. Með hernáminu
á Gaza- og Vesturbakkanum
náðu Ísraelar yfirráðum yfir
öllu landi hinnar sögulegu
Palestínu, en þegar árið
1949 höfðu þeir lagt undir
sig um 78% hennar – í trássi
við samþykkt Allsherjar-
þings SÞ sem gerði ráð
fyrir nokkurn veginn jafnri
skiptingu landsins í tvö ríki
gyðinga og araba.
Anna Pála með með for-
ystukonu kvennamiðstöðvar
í flóttamannabúðum í
Nablus á Vesturbakkanum.
„Það er mismunandi eftir
landshlutum hver staða
kvenfrelsis er – Nablus er á
fremur íhaldssömu svæði.“
Brúarflokkar Vegagerðarinnar hafa unnið
hörðum höndum alla vikuna við smíði bráða-
birgðabrúar yfir Múlakvísl. Trégólf er komið á
brúna sem og vegrið. Stefnt er að því að hleypa
vatni undir brúna aðfaranótt laugardags. Mikil
dægursveifla er í vatnsmagni árinnar. Því er
hægast um við að hleypa vatninu undir hana
þegar minnst er í ánni, undir morgun, að því er
fram kemur í frétt innanríkisráðuneytisins.
Unnið er af krafti við vegtengingu brúarinn-
ar að vestanverðu og koma þar upp garði með
grjótvörn við brúarendann. Verið er að ýta upp
efni úr ánni að austanverðu, efni sem fljótið ber
með sér, en það mun nýtast í varnargarðana
og vegagerðina. Byggður verður varnargarður
að austanverðu til að verja vegtenginguna við
brúna þar.
Miðað við þennan framgang má búast við
að hægt verði að hleypa umferð á bráðabrigða-
brúna heldur fyrr en um miðja næstu viku
eins og áætlað var. „Fljótið ræður þó miklu
um hvernig gengur að koma upp varnargarði
að austanverðu og tengja brúna þeim megin,“
segir enn fremur.
Múlakvísl brúarflokkar vinna hörðuM hönDuM
Vatni hleypt undir bráðabirgða-
brúna aðfaranótt laugardags
8 fréttir Helgin 15.-17. júlí 2011