Fréttatíminn


Fréttatíminn - 15.07.2011, Page 14

Fréttatíminn - 15.07.2011, Page 14
Þarna kemur saman fólk úr geirum eins og viðskiptum, fjármálum, listum, aka- demíu og fleiri sviðum. Þ etta kom mér skemmtilega á óvart,“ segir Hrund Gunn- steinsdóttir þró- unarfræðingur sem nýlega var valin í hóp Young Global Leaders (YGL). „Það er frábært að fá tækifæri til að kynn- ast öllu þessu áhugaverða fólki.“ YGL var stofnað til að leiða saman og virkja einstaklinga undir fer- tugu sem þykja leiðandi á sínum sviðum og efla þá í starfi og í samvinnu sín á milli. Í hópnum eru einstaklingar eins og Jimmy Wales og Mark Zuckerberger, stofnendur Wikipedia og Fa- cebook. „Þarna kemur saman fólk úr geirum eins og viðskiptum, fjármálum, listum, akademíu og fleiri sviðum. Þarna er til dæmis japanskur geimvísindamaður og mjög merkilegur mannfræðingur sem hefur verið að vinna á Papúa Nýju-Gíneu til að kenna hópi frumbyggja að skrifa og reikna svo að þeir geti varið landið sem þeir búa á. Mannfræðingurinn er ung kona sem hefur helgað þessu starfi níu ár af lífi sínu. Til- gangurinn er að frumbyggjarnir geti skilið viðskiptasamninga sem verið er að biðja þá að skrifa undir og eru þeim oft mjög svo í óhag.“ Stofnanavæðing Sameinuðu þjóðanna Hrund er nú stödd í New York þar sem hún situr námskeið á veg- um YGL en einn af stjórnendum námskeiðsins er Mark Mullock Brown sem var framkvæmdastjóri Þróunarsjóðs Sameinuðu þjóðanna, UNDP. „Hann var í einu af lykil- hlutverkunum við breytingaferli í byrjun þessarar aldar sem átti að betrumbæta SÞ. Vonir stóðu til að hægt væri að breyta SÞ þannig að þær væru ekki eins þungar í vöfum og meira í takt við nútímann. Það er svo mikill hraði og breytingar sem þessar stóru stofnanir hafa ekki náð að halda í við. Þar fyrir utan mætti margt betur fara í upp- byggingu SÞ til þess að stofnunin svari betur þörfum þeirra sem hún á að þjóna og tíðarandanum hverju sinni,“ segir Hrund. „Með þessu námskeiði er hópur innan YGL -samfélagsins að svara áhuga margra félaga á að starfa í opin- berri þjónustu annars vegar og hins vegar er verið að búa til vett- vang til þess að ræða efasemdir sem margir hafa um að starfsvett- vangur opinberrar þjónustu komi til með að næra hugsjónir þeirra og frumkvæði. Það er svo margt sem letur og fælir fólk frá. Það getur til dæmis verið spilling í mörgum löndum og stundum skortir fólk drifkraft þegar á hólminn er komið. Í sumum löndum leggur fólk sig í lífshættu þegar það tekur við opinberu stjórnunarstarfi. Svo eru aðrir sem finnst eins og litlu sé hægt að breyta í kringum sig í stofnanakerfinu.“ Sem dæmi má nefna að Hrund sagði sjálf upp sem opinber starfsmaður hjá Samein- uðu þjóðunum með æviráðningu – vegna stofnanavæðingar. „Mér leið hreinlega eins og ég hefði verið sett í frystikistu og ákvað því að segja upp störfum.“ Hrund blómstraði aftur á móti í starfi sínu sem framkvæmdastjóri UNIFEM í Kósóvó árið 2000-2001. Þar snerist vinna hennar aðallega um að þjálfa konur til að vinna í stjórnmálum og í opinberri stjórnsýslu. „Við kom- um af stað vinnu sem leiddi það af sér að til varð jafnréttisáætlun fyrir Kósóvó. Dvölin þarna var stórkost- leg reynsla sem breytti mér sem manneskju og þroskaði mig rosa- lega mikið. Þar áttaði ég mig á því hvað það er ótrúlega mikið grund- vallaratriði að vera mennskur í öllu sem maður gerir og hvað einstak- lingurinn skiptir miklu máli. Þegar verið er að vinna fyrir stofnanir og stór batterí gleymist stundum að vera mannúðlegur og kærleiks- ríkur og vinna hlutina á forsendum fólksins sem maður er að vinna með í hverju landi.“ Með stofnanda Facebook og Wikipedia í New York Hrund Gunnsteinsdóttir þróunarfræðingur hefur verið valin í hóp Young Global Leaders og er þar með komin í hóp efnilegustu frumkvöðla og leiðtoga heims í ekki verri félagsskap en með stofnendum Facebook og Wikipedia, þeim Mark Zuckerberger og Jimmy Wales. Heimildarmynd um innsæi Auk þess að taka þátt í starfi YGL er Hrund með ýmis verkefni á sínum herðum. „Ég er með fyrirtækið Krád Consulting þar sem ég vinn að innleiðingu gagnrýninnar og skap- andi hugsunar í fyrirtæki, stjórn- sýslu, menntakerfi og þróunar- verkefni. Þessi misserin erum við Hildigunnur Sverrisdóttir arki- tekt og Soffía Kr. Jóhannsdóttir myndlistarkona að leggja lokahönd á þrívítt ljóðabókverk sem kemur út snemma í haust. Mestur tími minn fer þó í gerð alþjóðlegrar heimildar- myndar.“ Hrund hefur meðal ann- ars nýverið unnið sem ráðgjafi fyrir Landsbankann ásamt rithöfundinum Þorvaldi Þorsteinssyni og komið á fót Prisma, þverfaglegu diplóma- námi sem Listaháskóli Íslands og Háskólinn á Bifröst unnu í samstarfi við Reykjavíkur Akademíuna. Heimildarmyndin, sem Hrund vinnur að í samvinnu við Kristínu Ólafsdóttur hjá Klikk Productions, ber titilinn Innsæi. „Myndin er alfarið gerð á forsendum innsæis,“ segir Hrund en bætir því við að ekki sé tímabært að láta of mikið uppi um myndina. „Við tölum og vinnum með fólki úr ólíkum sérgreinum eins og taugalíffræði, stjórnmálum og hagfræði, ýmsa hugsuði, tón- listarfólk og listafólk svo að eitthvað sé nefnt. Hrund Gunnsteinsdóttir Það er frábært að fá tækifæri til að kynnast öllu þessu áhugaverða fólki. Þóra Karítas thorakaritas @frettatiminn.is 14 viðtal Helgin 15.-17. júlí 2011

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.