Fréttatíminn - 15.07.2011, Qupperneq 38
38 bíó Helgin 15.-17. júlí 2011
B ækurnar um Harry eru allar viðburða-ríkar og þykkar og
því óhjákvæmilegt að flysja
þær rækilega til þess að
geta rakið þær innan þeirra
tímamarka sem kvikmyndir
leyfa. Miklu hefur því verið
sleppt og margar skemmti-
legar persónur á síðum bók-
anna fengu ekki að láta ljós
sitt skína í bíó. Þrátt fyrir það
verður ekki annað sagt en að
þessi tröllvaxni myndabálkur
sé ansi vel heppnaður og þótt
myndirnar séu vissulega mis-
góðar eru þær allar vel yfir
meðallagi.
Fjórir ólíkir leikstjórar
hafa komið að málum. Chris
Columbus hóf leikinn með
fyrstu tveimur myndunum,
sem var alls ekki vitlaust
þar sem hann er hálfgerður
krakki og því á heimavelli
í ævintýrum Harrys þegar
hann er 11 og 12 ára. Eftir
því sem Voldmort vex ásmeg-
in færist meiri drungi yfir
söguna og því var eðlilegt að
Alfonso Cuarón væri skipt
inn á í Fanganum í Azkaban.
Mike Newell tók við keflinu
í fjórðu myndinni og David
Yates kláraði svo dæmið með
næstu fjórum myndum.
Fyrri hluti Dauðadjásn-
anna leið fyrir að hún var
unnin upp úr fremri hluta
hnausþykkrar lokabókarinn-
ar þar sem Harry, Hermione
og Ron eru á vergangi og
rölta í átt að mögnuðu loka-
uppgjörinu. Þannig að þrátt
fyrir reglulegar f lugelda-
sýningar náði myndin ekki
að halda fullum dampi alla
leið. Allt annað er uppi á ten-
ingnum í síðari hlutanum þar
sem allt er gefið í botn. Þetta
er stysta myndin í bálknum
en engu að síður sú þéttasta
og spennuhlaðnasta. Eðlilega
þar sem nú mætast þeir loks-
ins erkifjendurnir, Voldemort
og Harry, og berjast þar til að-
eins einn stendur eftir.
Þrátt fyrir hasarinn passar
Yates vel upp á tilfinninga-
semina og inn á milli fáum
við voðalega krúttleg atriði
þar sem ástin, sorgin, sökn-
uðurinn og dauðinn hreyfa
við taugum áhorfenda.
Orrustan um Hogwarts -
skólann er hörkufínt sjónar-
spil og í raun er hvergi dauð-
an punkt að finna í myndinni.
K rakkarnir sem leika
þríeykið frækna hafa elst og
þroskast með persónum sínum
og skila sínu með sóma sem
fyrr, en helsta fagnaðarefnið
að þessu sinni er þó að nú fær
hinn mergjaði leikari, Alan
Rickman, loksins að njóta sín
í túlkun sinni á Snape, sem er
óumdeilanlega ein skemmti-
legasta persóna bókanna.
Aðrar fastapersónur klikka
ekki fremur en endranær en
fá ekki mikið að gera enda
snýst þetta allt saman um
Harry og Voldemort sem
kveðja nú með miklum stæl
eftir fjórtán ár af göldrum,
dramatík, spennu og svaka-
lega mörgum milljörðum
í vasa þeirra sem að þeim
standa.
Aðrir miðlar: Imdb: 8,7, Rotten
Tomatoes: 96%, Metacritic: 87.
Bíódómur Harry Potter and tHe deatHly Hallows: Part 2 frumsýndar
Úti er magnað ævintýri
Ævintýrið um galdrastrákinn Harry Potter hefur staðið yfir í fjórtán ár. Ballið
byrjaði árið 1997 þegar fyrsta bók J.K. Rowling, Harry Potter og viskusteininn,
sló hressilega í gegn. Strax í upphafi lá fyrir að bækurnar um baráttu Harrys við
hinn illa Voldemort yrðu sjö og næstu ár biðu fjölmargir aðdáendur Harrys reglu-
lega í andnauð eftir framhaldi á ævintýrinu. Síðasta bókin kom út sumarið 2007
og var slíkur doðrantur að ákveðið var að kljúfa hana í tvær bíómyndir og nú er
loksins komið að leiðarlokum sem eru ansi hreint mögnuð í síðustu myndinni.
Norton í Bourne 4
Viðræður standa yfir við Edward
Norton um að hann taki að sér
hlutverk vonda kallsins í fjórðu
myndinni í Bourne-seríunni, The
Bourne Legacy. Leikstjórinn Tony
Gilroy er þögull sem gröfin um
söguþráð myndarinnar en þó
þykir ljóst að Jason Bourne verði
fjarri góðu gamni og þar með Matt
Damon líka. Hann gæti í besta falli
birst í smáhlutverki en í þessari
umferð er það Jeremy Renner sem
fyllir skarð titilpersónunnar Jason
Bourne.
Snape er bestur
Breska kvikmyndatímaritið Empire
birtir á vef sínum lista yfir 25 bestu
persónurnar í Harry Potter-mynd-
unum. Líklega kemur það ekki
mörgum á óvart að á toppi þess
lista trónir Sverus Snape sem Alan
Rickman leikur með tilþrifum. Ron
Weasley, vinur Harrys, er í öðru
sæti en Harry sjálfur í því þriðja.
Hermione Granger er í fjórða sæti
og Sirius Black, sem Gary Oldman
gerði traust skil, er fimmti. Lestina
rekur svo uglan Hedwig í tuttugasta
og fimmta sætinu.
Þetta er
stysta
myndin í
bálknum
en engu
að síður sú
þéttasta og
spennu-
hlaðnasta.
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
bíó
Harðjaxlinn Jason Statham
er sjálfum sér líkur og í topp-
formi í hlutverki breskrar
löggu sem stendur í bölvuðu
stappi í fjölþjóðasamfélagi
Lundúnaborgar í spennu-
myndinni Blitz. Hann er járn-
grimmur gaur sem fær það
verkefni að hafa hendur í hári
raðmorðingja sem stundar
það að drepa lögreglumenn.
Blitz er sögð vera hrá og djörf
mynd um tvöfalt siðgæði,
utangarðsfólk og þær fórnir
sem lögreglumenn færa til að
halda glæpahyski frá götum
Lundúna en gagnrýnendur
ytra eru þó ekki á einu máli
um gæði myndarinnar.
Statham þykir reyndar standa
fyrir sínu. Eins og við var að
búast.
Evil Dead endurgerð
Félagarnir Sam
Raimi, Rob Tapert
og Bruce Camp-
bell eru byrjaðir
að huga að fjórðu
Evil Dead-myndinni
og áætlunin er að
endurgera fyrstu
myndina, sígilda
splatterinn sem sló
í gegn árið 1981.
Raimi leikstýrði í þá
daga og myndin var
gerð fyrir lítið fé.
Fede Alvarez hefur
verið ráðinn til að
skrifa handritið að
endurgerðinni og
leikstýra en stutt-
myndin hans, Panic
Attack, vakti athygli
félaganna á honum.
Evil Dead sagði
frá hremmingum
fimm félaga sem
dvöldu í afskekktum
skógarkofa þegar
þeir í einhverju
klúðri kölluðu fram
drýsildjöfla frá forn-
um menningarheimi
með tilheyrandi
blóðsúthellingum
og limlestingum.
Campell lék Ash,
sem var fremstur í
flokki fimmmenn-
inganna, og hélt
einhentur áfram
baráttunni við illu
öflin í framhalds-
myndunum Evil
Dead 2 og The Army
of Darkness.
Þríeykið ætlar að
halda sig við gamla
vinnulagið og gera
fjórðu myndina fyrir
smápeninga á Holly-
wood-mælikvarða.
Grimmur Statham
Þá mætast þeir loks, Harry og Voldemort, og sveifla töfrasprotum sínum upp á líf og dauða.
Bruce Campbell var blóðugur
upp að öxlum í Evil Dead.
Sænski leikstjórinn
Alexander Skarsgård er
búinn að stimpla sig inn
sem meiriháttar kyntákn í
hlutverki vampírunnar Erics
Northman í sjónvarpsþátt-
unum True Blood. Hann
er eðlilega farinn að fikra
sig yfir í kvikmyndirnar og
nú herma fregnir að hann
muni leika víking í myndinni
The Vanguard sem Warner
Brothers hyggjast fram-
leiða.
Eric var víkingur þegar
honum var breytt í blóð-
sugu og Alexander hefur
sýnt ágæta víkingatakta
í sjónvarpsþáttunum og
verður því ekki skotaskuld
úr því að sveifla sverði í bíó.
Lítið hefur spurst út um
söguþráð The Vanguard
annað en að Alexander
eigi að leika annan tveggja
bræðra sem eru sendir
í útlegð til Ameríku en
freista þess að komast aftur
heim til Svíþjóðar. Undir-
búningur er á frumstigi og
óvíst hvernig þetta endar
allt saman en hjá Warner
gerir fólk sér vonir um að
myndin geti orðið einhvers
konar blanda af Braveheart
og Gladiator.
Alexander
Skarsgård
komst á kortið
með frábærri
frammistöðu í
True Blood.
Skarsgård í víking
Jason Statham
gefur ekkert
eftir frekar en
fyrri daginn.