Fréttatíminn


Fréttatíminn - 15.07.2011, Page 42

Fréttatíminn - 15.07.2011, Page 42
Ætli við verðum nú ekki jafn gigtveikir og gauðslegir þegar þar að kemur? 42 dægurmál Helgin 15.-17. júlí 2011 V aldimar er vel þekktur í bókaheimin-um enda vandfundin önnur eins fróð-leiksnáma um íslenskar bækur, skáld og kveðskap en hann hefur safnað bókum af miklum móð síðan hann var fimmtán ára. Í safni hans leynast ýmsar gersemar og ein- hverjir vilja meina að hann eigi dýrmætasta bókasafn landsins í einkaeigu en sjálfur gefur grúskarinn lítið fyrir slíkar kenningar. „Nei, það held ég nú ekki. En það er furðulega saman sett og skringilega. Ég hef kannski aldrei keypt mjög dýrar bækur en svona verið snuðrandi meirihluta ævinnar. Ég er með ágætar bækur í skjóðunni núna sem ég er að gogga í. Um skáldskaparlistina eftir Aristóteles og Um vináttuna eftir Mar- cus Tullius Cicero.“ Valdimar sagðist daginn fyrir afmælið ekki sjá ástæðu til að gera neitt sérstakt í til- efni dagsins. „Það er enginn fiðringur. Ég ætla bara að ganga um bæinn í góða veðrinu og ekkert að taka neinar dýfur. Ég held kannski upp á þetta einhvern tíma seinna.“ Valdimar er fastur póstur í útvarpsþætti Torfa Geirmundssonar rakara, Fegurð og heilsa, á Útvarpi Sögu. Því liggur beint við að spyrja hann hvort menn eins og þeir Torfi þurfi nokkuð að óttast aldurinn með alla þá visku sem Torfi býr yfir um hárliti, krem og bætiefni. „Um háralit kvenna og fleira? Ætli við verðum nú ekki jafn gigtveikir og gauðs- legir þegar þar að kemur? Hlýðum ekki þess- um reglum sem við predikum og höldum að við séum yfir það hafnir.“ Valdimar ólst upp í Mýrdalnum í Skafta- fellssýslu en flutti til borgarinnar veturinn 1986. „Það mætti núna segja söguna Brýrnar í Skaftafellssýslu en ekki Madisonsýslu eða Mögnuð streymir Múlakvísl,“ segir Valdimar glettinn. Afmælisdagurinn tók óvænta stefnu hjá Valdimar þar sem vinir hans héldu honum hóf á Hressó á miðvikudag og þá frétti hann fyrst af afmælisritinu Mýrdælu sem skáld- bróðir hans Kristian Guttesen ritstýrði. Í kverinu eru meðal annars ljóð eftir Valdimar sjálfan, Sigurð Pálsson og Gyrði Elíasson, auk þess sem Bjarni Bernharður á þar ljóð og þrjár smásögur sem allar fjalla um Valdimar. toti@frettatiminn.is  Valdimar Tómasson Gyrðir yrkir um bókasafnarann Norpandi við nætur- klúbb á nælonskyrtu Ljóðelski bókasafnarinn Valdimar Tómasson varð fertugur á miðvikudaginn. Hann sá ekki ástæðu til að gera sér sérstakan dagamun og ætlaði bara að ganga um bæinn. Hann var grunlaus um að félagar hans og vinir höfðu tekið saman lítið kver, Mýrdælu, honum til heiðurs en þar má meðal annars finna ljóð eftir Gyrði Elíasson um Valdimar. Meira í leiðinniWWW.N1.IS VEIÐIKORTIÐ FÆST Á N1 SUMAR LEIKUR ATLANTSOLÍU Á HVERJUM DEGI TIL 1. ÁGÚST Í SUMAR FÆR EINN DÆLULYKILSHAFI ÁFYLLINGUNA ENDURGREIDDA. SUMARHÚSIÐ & GARÐURINN NÝTT BLAÐ KOMIÐ Í VERSLANIR Tryggðu þér eintak! Áskrift í síma 578 4800 og á www.rit.is H N O T S K Ó G U R g ra fí s k h ö n n u n „Þetta verður nokkurs konar listatorg þar sem hóparnir koma saman og sýna afrakstur sumarvinn- unnar,“ segir Inga Maren Rúnarsdóttir, verkefna- stjóri Listhópa Hins húss- ins, en uppskeruhátíðin Vængjasláttur verður haldin í Listasafni Reykja- víkur miðvikudaginn 20. júlí milli kl. 17 og 19. „Þarna verða lifandi atriði og stemning í tvo klukku- tíma og fólk getur gengið á milli hópanna og skoðað afraksturinn. Þetta er ungt listafólk sem er að feta sín fyrstu skref. Það stefnir á nám í listum og er að byrja að sérhæfa sig,“ segir Inga. Milli kl. 12 og 14 í dag, föstudag, fer svo fram síðasta Föstudagsfiðrildi Listhópa Hins hússins í miðbænum þar sem hreyfi- myndir í búðargluggum, leiklist og dans eru meðal þess sem kemur við sögu. -þká  lisTasafn reykjaVíkur VænGjasláTTur Uppskeruhátíð ungs listafólks Frá uppákomu DansVeitunnar, eins af listahópum Hins hússins. Valdimar kann best við sig umkringdur bókum. Hann er tíður gestur í fornbókaverslun Braga Kristjónssonar við Klapparstíg þar sem hann miðlar af fróðleik sínum. „Ég hef verið svona aðstoðarmaður þar stundum. Í útkallsstöðu. Enda uni ég mér best innan um bækur og bókarit. Það er mitt umhverfi.“ Tvö tilbrigði um V.T. Norpandi við næturklúbb á nælonskyrtu læðist oft með ljóðin birtu lipurt kringum skáldin virtu Norpandi við næturklúbb á nælonskyrtu með loðhúfuna lítilsvirtu læðist inn í súlnabirtu Gyrðir Elíasson HELGARBLAÐ Ókeypis alla föstudaga

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.