Fréttatíminn - 22.07.2011, Blaðsíða 4
Rannsóknarnefndin tekur á sig mynd
Það kemur
alltaf svona
skriða þegar
verið er að
fjalla um
þessi mál í
fjölmiðlum
A uðvitað vill maður fá að vita hverjir hafa verið að skoða sjúkraskrána manns og þá fyrst og fremst til þess
að geta fullvissað sig um að það séu ekki
einhverjir að snuðra í viðkvæmum einkamál-
um í annarlegum tilgangi,“ segir maður sem
í síðustu viku fór fram á það við Landspítala
– háskólasjúkrahús að hann yrði upplýstur
um hverjir hefðu farið inn í sjúkraskrá hans.
Erindi mannsins var svarað fljótlega og í
svari spítalans kom fram að óvenjumargar
slíkar beiðnir hefðu borist síðustu daga og
því myndi það taka spítalann einhvern tíma
að bregðast við erindinu.
„Já, það varð nokkur aukning í síðustu
viku. Það kemur alltaf svona skriða þegar
verið er að fjalla um þessi mál í fjölmiðlum,“
segir Niels Chr. Nielsen, aðstoðarfram-
kvæmdastjóri lækninga við Landspítalann.
Morgunblaðið fjallaði um flettingar í upp-
lýsingakerfum banka, fjármálastofnana og
í rafrænum sjúkraskrám síðastliðinn föstu-
dag. Í umfölluninni var áréttað að fólk ætti
rétt á að fá að vita hver skoðaði sjúkraskrár
þess. „Það er fjallað af og til um þetta og
fólk vill fá þessar upplýsingar,“ segir Niels
og bendir á að öll umferð um sjúkraskrár sé
skráð sjálfkrafa og því liggi upplýsingarnar
fyrir jafnóðum. „Tölvubúnaðurinn er að-
gangsstýrður og í hvert skipti sem einhver
fer inn í þessar sjúkraskrár er hann skráður
inn.“
Niels segir að í síðustu viku hafi „einhverj-
ir tugir“ sent spítalanum beiðni um upp-
lýsingar um hverjir hafi skoðað sjúkraskrár
þeirra. „Þetta er ekkert stórmál en það tekur
okkur smá tíma að svara öllum.“
Eftirlitsnefnd með rafrænni sjúkraskrá á
Landspítalanum athugar reglulega umferð
um sjúkraskrár. Í apríl á þessu ári gerði
nefndin athugasemd við upplettingu níu
starfsmanna. Við nánari athugun kom í
ljós að í þremur tilfellum var um eðlilegan
aðgang að ræða en sex starfsmenn voru
áminntir fyrir innlit í sjúkraskrár. Nefndin
kannaði sérstaklega aðgang að sjúkra-
skýrslum þriggja þjóðþekktra einstaklinga,
auk þess sem brugðist var við ábendingum
sjúklinga sem höfðu grun um að skrár
þeirra hefðu verið skoðaðar án þess að raun-
verulegt tilefni gæfist til.
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
Áhyggjur af viðkvæm-
um upplýsingum
Fjölmargir hafa undanfarið óskað eftir því að Landspítalinn upplýsi þá um
hverjir hafi skoðað sjúkraskrár þeirra. Aðstoðarframkvæmdastjóri lækninga við
spítalann segir slíkar beiðnir af og til koma í skriðum í takt við umfjöllun fjöl-
miðla um sjúkraskrár. Ekkert stórmál en tekur einhvern tíma að svara öllum.
persónuvernd Fjöldi Fólks ForvitnAst um AðgAng Að sjúkrAskrám
Í kjölfar frétta í vor af áminn-
ingum sex starfsmanna
Landspítalans vegna óeðlilegs
aðgangs að sjúkraskýrslum
hafði Pressan eftir „þjóð-
þekktum rithöfundi“, sem vildi
ekki koma fram undir nafni, að
hann hefði fullvissu fyrir því
að hluti starfsfólks spítalans
stundaði „persónunjósnir af
allra lágkúrulegustu tegund.“
„Hjúkrunarfræðingur, sem ég
þekki vel, hefur sagt mér að
þegar frægt fólk hafi veikst
hafi næstum verið biðröð
í tölvurnar til að svala for-
vitninni. Þessi hjúkrunarfræð-
ingur nefndi sem dæmi að
þegar Davíð Oddsson veiktist
hafi allt farið á annan endann
innan spítalans. Ég hélt að
gerðar hefðu verið alvöru
ráðstafanir til að fyrirbyggja
persónunjósnir af þessu tagi
en það er greinilega langt í
land,“ sagði viðmælandi Press-
unnar í apríl. Hann hafði þá
sjálfur þurft að gangast undir
læknismeðferð á Landspítal-
anum og sagði það ógeðfellda
tilhugsun að óviðkomandi ein-
staklingar skoðuðu gögn um
hann í rafrænu sjúkraskránni.
toti@frettatiminn.is
Biðröð þegar Davíð veiktist Samkvæmt frétt Press-
unnar beið fólk í röðum
eftir að komast í sjúkra-
skýrslu Davíðs Oddssonar.
Eftirlitsnefnd með rafrænni sjúkraskrá á Landspítalanum athugar reglulega umferð um sjúkraskrár.
veður FöstudAgur lAugArdAgur sunnudAgur
Veðurvaktin ehf
Ráðgjafafyrirtæki í eigu
Einars Sveinbjörnssonar
veðurfræðings. Veður-
vaktin býður upp á veður-
þjónustu fyrir einstaklinga,
fyrirtæki og opinbera
aðila í ráðgjöf og úrvinnslu
flestu því sem viðkemur
veðri og veðurfari.
Veðurvaktin ehf
Eikarási 8, 210 Garðabæ
Sími: 857 1799
www.vedurvaktin.is
ÚRkOmulauSt á lanDinu Og nOkkuð
SólRíkt, einkum nORðan- Og auStan-
til. Hægt HlýnanDi, en Víða HafgOla.
HöfuðBORgaRSVæðið: SkýjAð VERðuR
Að mEStu, En ÞuRRt.
BjaRtViðRi Og Hlýtt nORðan Og auStantil,
Sunnan Og VeStantil feR að Rigna unDiR
kVölDið. VeStantil VeRðuR StRekkingS S-átt
um nóttina.
HöfuðBORgaRSVæðið: SkýjAð og HLý SA- goLA.
Smá Rigning um kVöLdið.
talSVeRð Rigning um Sunnan- Og
VeStanVeRt lanDið, en nORðauStantil
VeRðuR nOkkuð BjaRt Og Útlit fyRiR
alVöRu SumaRHlýinDi !
HöfuðBORgaRSVæðið: Rigning mEiRA og
minnA mESt ALLAn dAginn.
Hlýnar mjög fyrir norðan og austan
Veðrabreyting er greinilega í aðsigi. Lægðir
gerast nú nærgöngulli úr suðvestri og bera
með sér hlýtt loft og vætu upp að Suður- og
Vesturlandi. Í dag verður aðgerðarlítið
veður og þurrt um land allt. Bjart fyrir
norðan og austan. á laugardag þykknar upp
sunnanlands og vestan og fer að rigna undir kvöldið.
Hins vegar verður bjart og hlýtt víðast
norðan- og austanlands. á sunnudag er
útlit fyrir langþráða rigningu sunnan-
og vestanlands. Sérlega hlýtt verður
yfir landinu og nái sólin að skína
norðaustanlands ætti hitinn að
fara yfir 20 stigin þar.
14
16
13 15
15
13
17 19
20
14
13
14 21
18
13
einar Sveinbjörnsson
vedurvaktin@vedurvaktin.is
Róbert Spanó laga-
prófessor hefur þegar
rætt við hugsanlega
nefndarmenn í rann-
sóknarnefnd sem
kaþólski biskupinn fól
honum að skipa. Ætlunin
er að rannsóknarnefndin
verði fullmönnuð um
miðjan ágúst og taki
til starfa 1. september.
Róbert tekur ekki sæti
í nefndinni sjálfur en
hann setur nefndinni
starfsreglur. Róbert
hefur þegar lagt drög
að reglunum. Hlutverk
rannsóknarnefndarinnar
verður að rannsaka
þær ásakanir sem
fram hafa komið um
kynferðislegt ofbeldi og
áreitni af hálfu vígðra
þjóna kirkjunnar og
starfsmanna stofnana
kirkjunnar, meðal annars
Landakotsskóla. –þt
dagvöruverslun eykst
Velta í dagvöruverslun jókst um 3,3% á föstu
verðlagi í júní miðað við sama mánuð í fyrra og
um 6,7% á breytilegu verðlagi. Leiðrétt fyrir árs-
tíðabundnum þáttum jókst velta dagvöruversl-
ana í júní um 2,2% frá sama
mánuði í fyrra. Verð á dagvöru
hefur hækkað um 3,3% á
síðastliðnum 12 mánuðum.
Fataverslun dróst saman
um 6,5% í júní, miðað við
sama mánuð í fyrra á föstu
verðlagi, og um 7,1% á breyti-
legu verðlagi á sama tímabili.
Verð á fötum var 0,6% lægra
en í sama mánuði fyrir ári.
Sala áfengis jókst um 1,2% í
júní, miðað við sama mánuð í
fyrra á föstu verðlagi, og um 3,0% á breytilegu
verðlagi. Leiðrétt fyrir árstíðabundnum þáttum
nam samdráttur í veltu áfengis í júní 1,4% frá
sama mánuði í fyrra.
Útför Sævars
Ciesielski
Útför Sævars
Ciesielski,
sem lést af
slysförum í
kaupmanna-
höfn í síðustu
viku, verður
gerð frá
dómkirkjunni
þriðjudaginn 2. ágúst. Séra örn
Bárður jónsson, sóknarprestur
í neskirkju, hefur verið beðinn
að annast útförina. minningarat-
höfn um Sævar var haldin í Vor
Frelsers kirke við Prinsessugötu
í kristjánshöfn í kaupmannahöfn
á fimmtudaginn. Sævar lætur
eftir sig fimm börn á aldrinum
12-36 ára.
3,3%
Aukning á VELtu Í
dAgVöRuVERSLun
Júní 2011
Rannsóknarsetur
Verslunarinnar
4 fréttir Helgin 22.-24. júlí 2011