Fréttatíminn


Fréttatíminn - 22.07.2011, Blaðsíða 6

Fréttatíminn - 22.07.2011, Blaðsíða 6
S abit Veselaj er verslunar­stjóri Europris úti á Granda. Hann er fæddur og uppal­ inn í Kosovo en kom hingað sem flóttamaður árið 1999, þá 27 ára gamall. Sabit talar góða íslensku og telur sig hafa aðlagast íslensku samfélagi vel. Sabit brautskráðist frá viðskiptafræðideild Háskóla Íslands nú í sumar með meistara­ gráðu í markaðsfræði og alþjóða­ viðskiptum (MSc). Í lokaverkefni sínu fjallaði hann um aðlögun pólskra innflytjenda að íslenskum vinnumarkaði en Sabit segir að rannsókn hans hafi leitt í ljós að ís­ lenskukunnáttan sé lykill að sam­ skiptum og samneyti við Íslend­ inga. „Samkvæmt niðurstöðunum voru 59% Pólverjanna að læra ís­ lensku og flestir þeirra nefndu að það væri til þess að aðlagast betur íslensku samfélagi,“ segir Sabit í stuttri kaffipásu í Europris og bætir við að það hafi helst komið honum á óvart í rannsókninni hversu léleg íslenskukunnátta pólskra innflytjenda var. Sabit segist ekki hafa rannsakað orsök þessa en getur sér þess til að fyrir hrunið hafi Pólverjar gengið beint í vinnu hér án þess að þurfa að læra tungumálið. „Þegar pólskir innflytjendur komu til Íslands var nóg að gera. Þeir fóru því beint úr fluginu í vinnu og það gæti verið eitt af því sem hindraði þá í að þurfa að læra tungumálið.“ Sabit telur að átak þurfi bæði hjá inn­ flytjendum og íslenskum stjórn­ völdum til að breyta þessari þróun. „Innflytjendur þurfa að leggja sig meira fram um að vilja læra tungu­ málið. Í viðtölunum sem ég tók var stundum nefnt að það væri dýrt að læra íslensku og að námskeiðin væru oft eftir vinnu þegar fólk er þreytt og finnst erfitt að einbeita sér að því að læra. Þessu þyrftu ís­ lensk stjórnvöld að breyta og bjóða jafnvel innflytjendum upp á að sækja íslenskunámskeið á vinnu­ tíma.“ Sabit segir það einnig hafa sýnt sig í rannsókninni að konur hafa betri íslenskukunnáttu en karlar og virðast aðlagast íslensku sam­ félagi betur en karlarnir. „Rann­ sóknir á innflytjendahópum í Kanada hafa sýnt hið gagnstæða, þ.e. að konur séu oft lengur að að­ lagast nýju samfélagi vegna þess að þær eru meira inni á heimilum sínum en ekki úti á vinnumark­ aðnum, en raunin virðist ekki vera sú með pólskar konur sem flytja til Íslands. Pólskar konur sem koma hingað virðast líka betur mennt­ aðar en karlarnir. Fleiri konur en karlar eru með háskólanám að baki. Þær virðast einnig með­ vitaðri um gagnsemi þess að læra íslenskuna og þurfa líklega að nota hana meira í vinnunni.“ Sabit segir að tungumálið hafi verið fyrsta hindrunin sem hann mætti þegar hann flutti hingað til lands. „Íslenskan er erfitt mál. Það er alveg satt og ég er enn að berjast við málfræðina og beyg­ ingar. En þegar ég flutti kom ég með fjölskyldu minni svo að það var ekki erfitt að byrja nýtt líf hér. Við fengum góðan stuðning frá Íslendingum og Rauða krossinum – þannig að það var ekki eins og fyrir bróður minn sem kom einn fyrir fimm árum,“ segir Sabit að lokum. „Hann fékk ekki stuðning frá neinum og þurfti að finna út úr öllu sjálfur. Það skiptir mjög miklu máli að fá þennan stuðning þegar komið er til landsins.“ Þóra Karítas thorakaritas@frettatiminn.is  VINNUMARKAÐUR AÐlögUN INNFlYTJENDA Íslenskan lykillinn að markaðnum Sabit Veselaj er verslunarstjóri í Europris. Hann er fæddur og uppalinn í Kosovo en kom hingað sem flóttamaður árið 1999, þá 27 ára.  lJóSMYNDUN AlþJóÐlEgT NáMSKEIÐ Mary Ellen Mark kennir á Íslandi Ljósmyndarinn heimsþekkti, Mary Ellen Mark, og eiginmaður hennar og kvikmyndaleikstjórinn Martin Bell standa fyrir námskeiði í Myndlistarskólanum í Reykjavík í JL­húsinu í næstu viku. 23 nemendur flykkjast því til landsins hvaðanæva úr heiminum, ým­ ist til að njóta leiðsagnar Mary Ellen í ljósmyndun eða Bell í heimildarmyndagerð. Hjónin Einar Falur Ing­ ólfsson og Ingibjörg Sigurðardóttir eru meðal skipu­ leggjenda námskeiðsins en lokasýning þátttakenda verður í Þjóðminjasafninu þriðjudaginn 8. ágúst. ­þt Mary Ellen Mark frá því hún var að vinna að sýningunni Undrabörn, um börn í Öskjuhlíðar- og Safamýrarskóla. Helgin 22.-24. júlí 2011
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.