Fréttatíminn


Fréttatíminn - 22.07.2011, Blaðsíða 10

Fréttatíminn - 22.07.2011, Blaðsíða 10
M aðurinn hefur tvisvar sinnum verið dæmdur fyrir hrottalegar nauðganir og af- plánaði fangelsisdóma fyrir bæði málin. Hann var dæmdur til að greiða Sunnu eina milljón króna í miskabætur en hinni konunni 900 þúsund. Dómarnir féllu árin 2005 og 2007. Konurnar hafa einungis fengið greiddar 600 þúsund krónur af miskabótunum, eða þá hámarks- upphæð sem ríkið ábyrgist. Þolendur þurfa sjálfir að innheimta restina af miskabótum en því fylgir umtalsverð- ur lögfræðikostnaður sem stundum er hærri en eftirstöðvar bótanna. Nauðgarinn flutti úr landi eftir afplánun og þrátt fyrir ítrekaðar til- raunir Fréttatímans til að hafa uppi á honum reynist það ómögulegt. Hann er skráður erlendis í Þjóðskrá en hefur ekki tilgreint í hvaða landi. Ættingjar hans, sem blaðamaður ræddi við, vilja ekki veita upplýsingar um hvar hann heldur sig. Það er því enginn hægðarleikur að innheimta miskabæturnar sem hann skuldar. Sunna segist vilja fá frið frá málinu. „En kerfið verður hluti af ofbeldinu þegar ég þarf að fara þá niðurlægjandi leið að ganga á eftir miskabótunum. Með þessu finnst mér stjórnvöld ekki taka stöðu með þolendum. Eðlilegast væri að ríkið ábyrgðist að fullu dæmdar miskabæt- ur,“ segir Sunna sem hefði viljað að málinu væri löngu lokið. „En því er ekki lokið. Ég vil ekki að það séu einhver skjöl á lögfræði- skrifstofu úti í bæ sem tengja mig við hann. Mér finnst það óþægilegt og hanga yfir mér eins og stór niður- teljari sem á fimm ár eftir í núll.“ Sunna bendir á að réttur hennar til miskabóta frá brotamanninum fyrnist eftir fimm ár. „Þetta ærir mig stundum. Fyrir mér snýst málið ekk- ert um peninga. Mér er alveg sama um peningana og í hvaða vasa þeir fara. Hvort þeir fara til lögfræðinga Sunna Kristrún Gunnlaugsdóttir er ein fjölmargra þolenda kynferðisaf- brota sem ekki hafa fengið greiddar þær miskabætur sem henni voru dæmdar. Maður byrlaði henni og annarri konu svefnlyf og nauðgaði þeim. Hann sat inni fyrir bæði málin en stakk af úr landi frá óuppgerðum bótum. Sunna þarf sjálf að greiða lög- fræðingum til að innheimta miskabæturnar. Þóra Tómasdóttir ræddi við Sunnu. Vill að réttlætinu verði fullnægt Lj ós m yn d H ar i 10 viðtal Helgin 22.-24. júlí 2011
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.