Fréttatíminn - 22.07.2011, Blaðsíða 52
Mér fannst
þetta svo
ótrúlegt og
æðislegt ...
ég var í hálf-
gerðu sjokki.
Cheryl Cole selur
notuð föt
Síðustu tvær vikur hefur enska
söngkonan Cheryl Cole haldið
úti uppboði á fatasíðunni Asos.
com þar sem hún
selur gömul föt
af sjálfri sér. Á
þessum stutta
tíma hafa tutt-
ugu kjólar selst
og út úr dæminu
fékk hún tæpar
ellefu milljónir
íslenskra króna
fyrir þá. Allan
ágóðann ætlar
Cheryl að gefa
til styrktar fá-
tækum börnum í
Englandi. Cheryl
segist ekki
hafa búist við slíkri upphæð fyrir
kjólana og stefnir nú á að bæta við
fleiri flíkum á uppboðið. www.glowogblikk.isPantanir: og 661 3700
Þú finnur okkur
líka á facebook
mia maestro twilight-stjarna
heimsendir Bára lind Þórhallsdóttir
Hollywood-leikkonan Mia
Maestro, sem leikur í nýjustu
Twilight-myndunum og er með-
al annars þekkt fyrir leik sinn
í kvikmyndinni Frida Kahlo,
hefur bæst í hóp Íslandsvina.
Hún hefur verið með annan fót-
inn hér á landi síðan Emiliana
Torrini kynnti hana fyrir
landi; kom fyrst hingað þegar
hún var með upphitunaratriði á
tónleikum Emiliönu í Háskóla-
bíói í fyrra. Mia hefur ferðast
um allt land en einnig haldið
mikið til í Gróðurhúsi Valgeirs
Sigurðssonar í Breiðholti. Þar
hefur hún unnið hörðum hönd-
um í upptökuverinu og lagt
lokahönd á nýja plötu þar sem
hún syngur og semur öll lögin
sjálf. Óvíst er hvenær platan,
sem er frumraun Miu Maestro,
kemur út en Íslendingar ættu
að vera vakandi fyrir tónlist
þessarar hæfileikaríku blóma-
rósar. -þká
Mia tók upp plötu á Íslandi
Þ egar ég heyrði að ég hefði fengið hlutverkið var ég ekki alveg að trúa þessu,“ segir Bára Lind Þórhalls-
dóttir sem er fjórtán ára og leikur um
þessar mundir í nýjustu sjónvarpsseríu leik-
stjórans Ragnars Bragasonar, Heimsendi.
„Þetta var auglýst í blaði og ég sendi inn
umsókn en fékk aldrei svar. Svo var hringt
í mig og mér var sagt að Sönglist, leiklistar-
skólinn sem ég er í, hefði mælt með mér og
að þau vildu endilega fá mig í prufu. Ég fór
í hana, komst áfram og fór svo í aðra prufu
og lék á móti Pétri Jóhanni og Jörundi og
svo var hringt í mig og mér boðið hlutverk-
ið,“ segir Bára skínandi af hamingju. „Mér
fannst þetta svo ótrúlegt og æðislegt, að
vera búin að fá hlutverk í sjónvarpsþætti, að
ég var í hálfgerðu sjokki. Þegar ég kom svo
út í bíl með mömmu eftir að hafa verið til-
kynnt að ég hefði fengið hlutverkið, öskraði
ég og þá fór ég fyrst að ná þessu. Ég var
svo ánægð. Þetta var æðisleg tilfinning sem
ekki er hægt að lýsa.“ Pétur Jóhann leikur
iðjuþjálfa í nýju seríunni og Bára fer með
hlutverk dóttur hans. „Hún heitir Álfheiður
og er á geðspítalanum með pabba sínum
sem vinnur þarna – og hana langar ekkert
til að vera þarna. Hann dregur hana með sér
en hún vill bara vera á þjóðhátíð í Eyjum,“
segir Bára sem fullyrðir að það gerist margt
spennandi á þessum geðspítala. „Álfheiður
er að pukrast í kringum sjúklingana og
er mjög forvitin um aðstæðurnar. Serían
verður mjög spennandi en er líka fyndin
á köflum. Þetta verða æðislegir þættir,
bæði grín og spenna,” segir Bára Lind sem
stefnir að því að vinna meira við leiklist í
framtíðinni. „Ég stefni að því að verða leik-
og söngkona því þetta er brautin sem ég vil
vera á. Ég stefni á að fara í Listaháskólann
eftir menntaskóla en hef líka verið að skoða
leiklistarskóla í London.“
thorakaritas@frettatiminn.is
Leikur dóttur Péturs
Jóhanns í Heimsendi
Öskraði þegar hún hreppti hlutverkið.
Bára Lind Þórhallsdóttir, 14 ára nemandi í Álftanesskóla, fer með hlutverk í Heimsendi í leikstjórn Ragnars Bragasonar.
Kim kærir
tvífara
Fyrirsætan og raunveru-
leikasjónvarpsstjarnan Kim
Kardashian hefur stefnt Old
Navy-fataverslununum og
móðurfélagi þeirra, The Gap,
fyrir að nota stúlku sem er
nauðalík henni í fataauglýsingum
sínum. Auglýsingamyndband
frá Old Navy, sem skartar
föngulegri dökkhærðri konu
sem svipar mjög til Kim, hefur
verið skoðað rúmlega 2.000.000
sinnum á YouTube. Kim telur
tvífara sinn í auglýsingunum
geta ruglað neytendur í ríminu
auk þess sem uppátæki Old
navy kasti rýrð á þau vörumerki
sem hún styður með útliti sínu
og persónu. Þar á meðal hennar
eigin fata- og skólínu.
52 dægurmál Helgin 22.-24. júlí 2011