Fréttatíminn - 22.07.2011, Blaðsíða 38
38 dýrin okkar Helgin 22.-24. júlí 2011
F lestir gefa dýrunum sínum einfaldlega mat sem keyptur
er í gæludýraverslunum
en sumir freistast til að
gefa þeim matarafganga
heimilisins öðru hverju.
Bænaraugu hundsins við
matarborðið verða stund-
um til þess að gaukað er
að honum smábitum og
gæludýr komast stundum í
innihald ruslafötunnar eða
finna góðgæti á glámbekk.
Það er því nauðsynlegt
fyrir dýraeigendur að hafa
nokkra hugmynd um hvaða
mannamatur er sem eitur
fyrir málleysingjana. Eftir-
farandi listi er ekki tæm-
andi en inniheldur það sem
oftast veldur alvarlegustum
eitrunum hjá dýrum um
allan heim.
Górilla í
hjónarúminu
Sumir foreldrar kvarta yfir plássleysi í
hjónarúminu þegar börnin skríða upp í.
Frönsku hjónin Pierre og Elaine Thivillon
kvarta reyndar ekki þótt fósturdóttir
þeirra sé í stærra lagi. Digit er 13 ára
górilla sem var hafnað af móður sinni
þegar hún var nýfædd. Thivillon-hjónin
hafa alið hana upp sem sína eigin dóttur
síðastliðin 13 ár og segja að mikið traust
ríki á milli þeirra. Pierre og Elaine eiga
dýragarðinn Saint-Martin-la-Plaine og
á daginn er Digit þar innan um aðrar
górillur, en á kvöldin fer hún heim til
hjónanna og fær meira að segja að sofa
á milli þeirra.
Dýr oG nærinG Það sem á að varast
Freyja
Kristinsdóttir
freyja@frettatiminn.is
Það er
því nauð-
synlegt
fyrir dýra-
eigendur
að hafa
nokkra
hugmynd
um hvaða
manna-
matur
er sem
eitur fyrir
málleys-
ingjana.
Hættulegur matseðill
Algeng matvara getur verið mjög háskaleg heimilisdýrum.
TÓMATAr
Eitraðir fyrir: Ketti
Hvers vegna: Tómatplantan og grænir óþroskaðir
tómatar innihalda efnið tomatine sem er eitrað fyrir
ketti.
Einkenni og afleiðingar eitrunar: Tomatine hefur
áhrif á meltingarfæri katta og getur valdið upp-
köstum og niðurgangi. Mikið magn af efninu þarf til
að valda alvarlegri eitrun og þar að auki innihalda
þroskaðir tómatar mjög lítið magn af tomatine
þannig að ekki er ástæða til að hafa miklar áhyggjur
af þessari eitrun.
SÚKKULAÐi
Eitrað fyrir: Hunda og ketti
Hvers vegna: Súkkulaði inniheldur efnin koffín og
theobrómín sem eru eitruð fyrir hunda. Þeim mun
dekkra sem súkkulaðið er, þeim mun eitraðra er það.
Hundar og kettir eiga erfitt með að vinna úr þessum
efnum og því safnast þau upp í líkama þeirra og geta
haft alvarleg áhrif á mikilvæg líffærakerfi svo sem
taugakerfi, hjarta, öndunarfæri og fleira.
Einkenni og afleið-
ingar eitr-
unar:
Fyrstu
ein-
kenni
eru upp-
köst, hraður
hjartsláttur
og ósamhæfðar
hreyfingar. Það
er misjafnt hversu
viðkvæmir hundar og
kettir eru fyrir súkkulaði
en 125 grömm af dökku
súkkulaði geta verið lífs-
hættuleg fyrir um 20 kg hund.
Súkkulaði er í raun enn eitraðra
köttum, en kettir borða sjaldnar
súkkulaði og því er þessi eitrun mun þekktari
hjá hundum.
VÍnBEr oG rÚSÍnUr
Eitruð fyrir: Hunda
Hvers vegna: Það er ekki vitað hvaða efni það er sem
er eitrað hundum, en samkvæmt einni kenningunni
eru það sveppagró í vínberjum og rúsínum sem
eyðileggja nýrun í þeim. Þetta virðist reyndar ekki
hafa áhrif á alla hunda, en engin leið er að vita hvaða
hundar eru viðkvæmir og hverjir ekki.
Einkenni og afleiðingar eitrunar: Uppköst og niður-
gangur, þorsti, skjálfti og magakrampar. Þeir hundar
sem eru viðkvæmir fyrir vínberja- og rúsínueitrun
þurfa ekki að borða nema 2,8 g af rúsínum og
19,6 g af vínberjum til að veikjast af lífshættulegri
nýrnabilun.
LAUKUr
Eitraður fyrir: Hunda og ketti
Hvers vegna: Laukur inniheldur efnið thiosúlfat og
þar sem hunda og ketti vantar ensímið sem brýtur
niður thiosúlfat, safnast það upp, sest á rauðu
blóðkornin og hindrar súrefnisflutning. Efnið veikir
einnig frumuvegginn í rauðum blóðkornum sem eiga
þá á hættu að springa og valda blóðleysi (anaemiu).
Einkenni og afleiðingar eitrunar: Einkenni koma yfir-
leitt ekki fram fyrr en nokkrum dögum eftir neyslu,
en þau eru slappleiki, fölar eða gular slímhimnur,
blóð í þvagi og fleira. Blóðleysið getur orðið lífs-
hættulegt, en ef dýrið fær meðferð hjá dýralækni
fyrr en seinna er stundum hægt að bjarga því.
AVÓKADÓ
Eitrað fyrir: Fugla
Hvers vegna: Avókadó-ávöxturinn, eins og hann
leggur sig, inniheldur efnið persín sem drepur
hjartavöðvafrumur í fuglum.
Einkenni og afleiðingar eitrunar: Eitt gramm af
persíni hefur alvarleg áhrif á hjartað í fugli á stærð
við gára og getur leitt til dauða. Einkenni geta verið
uppköst og niðurgangur, öndunarerfiðleikar og
slappleiki. Aðeins 9 g af efninu valda dauða innan
tveggja daga.
Þ að að eitthvað sé hundleiðinlegt er orðatiltæki sem margir Íslendingar láta út úr sér, og þar er ég engin undantekning. En þegar ég rýni betur í það hvað ég er
í raun að segja, þá finnst mér það alveg út í hött. Ég er nefni-
lega ein af þeim sem finnst hundar alls ekkert leiðinlegir, í
raun finnst mér þeir alveg yndislega skemmtilegir og gef-
andi – já, jafnvel skemmtilegri en margt
fólk sem á fjörur mínar hefur rekið.
En hvernig stendur þá á því að við
segjum svona vitleysu; hvaðan kemur
þetta orðatiltæki eiginlega? Ekki er
þetta komið úr ensku „dogboring“, eða
dönsku „hundkedeligt“, en sá Íslend-
ingur sem hafði þetta fyrst á orði hlýtur
að hafa verið einstaklega neikvæður
og haft allt á hornum sér, þar á meðal
hunda. Þannig lít ég á málið þó að þeir
séu eflaust margir sem sýna þessari
ást minni á hundum engan skilning og
finnst að lýsingarorðið hundleiðinlegur
sé rétt í orðsins fyllstu merkingu.
Í Íslenskri orðsifjabók stendur meðal annars að ef hund-
er bætt framan við orð, geti það verið eins konar áherslufor-
liður. Og í því samhengi eru nefnd dæmin „hundmargur“ og
„hunddjarfur“, sem reyndar eru samsetningar sem ég kann-
ast ekki við í daglegu tali. Það er hvergi minnst á samsetn-
inguna hundleiðinlegur, en orðið hundur getur þýtt óþokki,
og hundspott er skammaryrði um mann. Það virðist því vera
ýmislegt neikvætt tengt orðum sem byrja á hund-.
Ef ég slæ inn orðið hundleiðinlegt í leitarvél Google, koma
upp 230.000 niðurstöður – sem gefur ef til vill ágætis hug-
mynd um hversu mikið Íslendingar nota þetta orð í daglegu
tali. Ef ég hins vegar gúgla orðið hundskemmtilegt hef ég
159 heimasíður upp úr krafsinu. Það eru þó fleiri en ég bjóst
við; ég hélt að engum dytti í hug að nota orðið hundskemm-
tilegt. En þetta sýnir bara að fleiri eru sama sinnis og ég og
finnst orðið hundleiðinlegt vera rangyrði. Til gamans má
geta þess að 7.200 niðurstöður koma upp ef ég slæ inn orðið
„þrælskemmtilegt“ en ég veit ekki til þess að það sé eitthvað
skemmtilegt við að vera þræll.
Því hvet ég ykkur öll, næst þegar þið gerið eitthvað
skemmtilegt, að orða það á eftirfarandi hátt: „Þetta var alveg
hundskemmtilegt!“
Freyja og dýrin
Hundleiðinlegt
Freyja
Kristinsdóttir
freyja
@frettatiminn.is
Þjálfun katta
Allir vita að hægt er að þjálfa hunda en flestir halda að það sé al-
gjörlega vonlaust að þjálfa ketti. Það þarf reyndar aðeins meiri
þolinmæði við kattaþjálfun en það er vissulega hægt. Það er
meira að segja hægt að kenna þeim ýmsar kúnstir en það er að-
eins hægt með jákvæðri styrkingu, það er að segja með því að
verðlauna fyrir rétta hegðun. Ef kettir upplifa eitthvað neikvætt
varðandi þjálfunina, svo sem skammir, missa þeir umsvifalaust
áhuga á henni. Fyrir þá sem hafa áhuga á að spreyta sig við að
kenna kisunum sínum að gefa fimmu, rúlla og fleira í þeim dúr,
mæli ég með bókinni „Cat training in 10 minutes“ eftir Miriam
Fields-Babineau. Ekki einungis til að vekja aðdáun gesta heldur
er það í raun mjög ánægjulegt fyrir ketti að læra nýja hluti á
jákvæðan hátt og það styrkir samband eigandans og kisunnar.
Allir græða því á kattaþjálfun!
Dýr oG BæKUr kattakúnstir
Með tíu mínútna þjálfun á dag er hægt að kenna kisunum ýmis brögð.
Brynningartæki
fyrir hunda
Sumarið er tími langra göngutúra
með hundana í fallegri náttúru
og (vonandi) góðu veðri. Hundar
hlaupa yfirleitt fram og til baka
og fara því mörgum sinnum lengri
vegalengd en eigandinn. Öll þessi
hreyfing kallar á mikinn þorsta og
því getur verið gott að taka með sér
vatn fyrir hundinn. Í mörgum gælu-
dýraverslunum er hægt að kaupa
græju sem er í senn vatnsflaska
og skál. Skálin umlykur flöskuna
þegar hún er ekki í notkun og tekur
því ekkert aukapláss. Einfalt og
þægilegt.
Gönguferðin þín er á utivist.is
Skoðaðu ferðir
á utivist.is