Fréttatíminn


Fréttatíminn - 22.07.2011, Blaðsíða 39

Fréttatíminn - 22.07.2011, Blaðsíða 39
ÍSLENSKT HUNDANAMMI Fæst í Bónus, Samkaup, 10-11, Fjarðarkaup og Inspired Keflavíkurflugvelli gott í þjálfun og í leik VINSÆLVARA dýrin okkar 39 Helgin 22.-24. júlí 2011 Fyrir hundinn þinn Við höfum áratuga reynslu af ræktun hunda og höfum prófað ýmsa valkosti í fóðrun. Niðurstaða okkar er að Pedigree sé besti og hagkvæmasti valkosturinn. Við treystum Pedigree fyrir hundunum okkar. Sankti-Ice Forever Perfect (St. Bernharðs) vann tegundarhóp tvö og var valinn besti hundur sýningar. Heimsenda Stóri Skjálfti (Australian Shepherd) var valinn besti hundur tegundar og vann tegundarhóp eitt. Með þeim á myndinni eru Kresten Scheel dómari frá Danmörku og Guðný Vala Tryggvadóttir og Hjörtur Eyþórsson eigendur. Pedigree vann á sumarsýningu HRFÍ 2011 Guðný Vala Tryggvadóttir og Hjörtur Eyþórsson hundaræktendur. Pedigree® Adult Vitality er framleitt úr sérvöldum hráefnum sem fullnægja næringarþörf hundsins þíns í hverri máltíð. Adult healthy vitality mikilvæg vítamín og steinefni Öll næring sem hundurinn þinn þarfnast: Rétta blandan af næringarefnum sem heldur hundinum þínum heilbrigðum og fullum af orku. Heilbrigð húð og glansandi feldur: Rétt blanda af Omega 3 og 6 tusýrum gagnast hundinum þannig að hann ha það gott og líti vel út. Styrkir náttúrulegar varnir: Vítamín E, andoxunarefni og valin steinefni stuðla að verndun náttúrulegra mótefna hundsins þíns. Sterkar tennur og heilbrigt tannhold: Sérmótaðir stökkir bitar sem halda tönnunum sterkum. Án viðbætts sykurs. Vöðvabygging: Úrvalskjötprótein styrkir vöðva. www.pedigree.is Þróað af dýralæknum Engin tilbúin bragðefni Enginn viðbættur sykur Pedigree hvetur alla hundeigendur til að virða lög og reglur um hundahald. PI PA R \ TB W A • S ÍA • 1 11 7 74  lísa Björk Hélt tombólu fyrir Heimilislausar kisur Safnaði fyrir Kattholt Í sólskininu á mánudaginn mátti sjá gullfallega stúlku sitja með fallega muni fyrir utan Melabúð- ina. Þetta var hún Lísa Björk Hannesdóttir, 11 ára,sem sagð- ist hafa frétt af vanda Kattholts, sem Kattavinafélag Íslands rek- ur. Þar er mikill fjárhagsvandi og óskilakettir skipta tugum. „Ég las eða heyrði ein- hvers staðar að það væri allt fullt af heimilislausum kisum í Kattholti. Ég á sjálf hund, en mamma, pabbi og systir mín höfðu átt kött áður en ég fædd- ist. Mér fannst svo sorglegt að heyra um kisurnar að ég hringdi í ömmu og afa og bað þau að útvega mér muni til að selja á hlutaveltu. Þau búa í stóru húsi fyrir eldri borgara við Granda- veg og amma hringdi bara í alla sem hún þekkti í húsinu og bað þá að athuga hvort þeir ættu ekki eitthvað í geymslunum sem þeir vildu losna við. Það brugðust allir mjög vel við og ég fékk marga fallega hluti, eins og vasa og koparkertastjaka. Á mánudaginn sat ég fyrir utan Melabúðina frá hálf þrjú til hálf átta og safnaði þá rúmum 14.000 krónum en á miðvikudaginn var ég bara í tvo tíma og safnaði 4.000 krónum.“ Að sögn Önnu Kristine Magnúsdóttur, formanns Kattavinafélags Íslands koma peningarnir frá Lísu Björk sér afar vel. Kattholt stendur illa fjárhagslega og Kattavinafélagið vonar að fleiri fylgi fordæmi Lísu Bjarkar og aðstoði við að byggja upp fallegt heimili fyrir óskilaketti. Fróðleikur um kisur n Það er misskilningur að taka eigi kettlinga frá mæðrum sínum þegar þeir eru átta vikna. Best er að þeir fari ekki fyrir þriggja mánaða aldur. Ástæðan er sú að ónæmiskerfið þarf að þroskast svo að þeir þoli betur bólu- setningar og sýkingar þegar þeir eru eldri. Einnig þarf ungviðið að læra gegnum leik við mömmu sína og systkin hversu langt má ganga gagnvart öðrum kisum. Þannig læra þeir til dæmis hversu fast þeir mega bíta og læra samskipti við aðra. Ef upp koma hegðunarvandamál hjá köttum má mjög oft rekja það til þess að þeir hafa verið teknir frá mæðrum sínum of ungir. n Nauðsynlegt er að gera ófrjósemisað- gerðir á köttum áður en þeim er leyft að ganga lausir úti. Þetta er mikilvægt til að sporna við því að of margir kettlingar fæðist, enda fá þeir aldrei allir heimili. Ógeltir kettir leita burt frá heimilinu og eru því líklegri til að týnast, lenda í slagsmálum og slasast. Það er misskilningur að bíða þurfi með ófrjósemisaðgerðir á köttum fram að sex mánaða aldri; þær má gera þegar þeir eru 12 vikna. n Áður en fólk ákveður að fá sér kött á heimilið verður það að vita að það kostar peninga að eiga kött. Köttur er ekki leik- fang, heldur lifandi vera sem sinna þarf af mikilli alúð alla daga ársins. Að eiga kött er allt að tuttugu ára skuldbinding og því þarf fólk að vera búið að gera upp hug sinn vandlega áður en kisa er tekin inn á heimilið. n Oft er betra að fá sér tvo ketti heldur en einn, einkanlega þegar fólk er útivinnandi. Kettirnir hafa þá félagsskap hver af öðrum og eru oft í betra jafnvægi, auk þess sem það er betra fyrir samvisku eigandans að skilja þá eftir heima þegar farið er til vinnu. n Hundar og kettir geta auðveldlega búið saman og orðið mjög góðir vinir. Kettir geta vanist flestum öðrum dýrum og lært að lifa góðu lífi í fjölbreytilegum aðstæðum. Lísa Björk Á hund sjálf en vill leggja sitt af mörkum til þess að óskilakisum líði betur. Mér fannst svo sorglegt að heyra um kisurnar að ég hringdi í ömmu og afa og bað þau að útvega mér muni til að selja á hluta- veltu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.