Fréttatíminn - 22.07.2011, Blaðsíða 54
Listdans er
góður ferða-
félagi út í
lífið, inn í
framtíðina.
Bryn Ballett Akademían, listdans-
skóli Reykjanesbæjar, hefur hlotið
viðurkenningu mennta- og menn-
ingarmálaráðuneytisins til að kenna
listdans á grunn- og framhaldsskóla-
stigi. „Skólinn hefur það að mark-
miði að veita nemendum þekkingu
og sterka undirstöðu í klassískum
ballett og nútímalistdansi á heims-
vísu,“ segir Bryndís Einarsdóttir,
skólastjóri og ballettmeistari skólans,
en listdansskólinn var opnaður í
Reykjanesbæ árið 2008 og er til húsa
á Ásbrú, í fyrrverandi skotfæra-
geymslu Varnarliðsins þar sem
starfsaðstaðan er öll til fyrirmyndar.
„Í skólanum er búningsaðstaða með
sturtum, verslun með ballett- og
dansfatnað og biðstofa. Kennslan fer
fram í rúmlega tvö hundruð fermetra
danssal sem er með sérútbúnu dans-
gólfi og dansdúk, ballett-stöngum,
speglum og hljómflutningstækjum.“
Bryndís segist vera hæstánægð
með viðurkenningu mennta- og
menningarmálaráðuneytisins til list-
dansskólans. „Það er ánægjulegt að
geta lagt til þetta nýja námsframboð
hérna á Suðurnesjunum fyrir unga
og hæfileikaríka nemendur sem vilja
stunda klassískan ballett eða nútíma-
listdans. Námið er krefjandi og það
tekur mörg ár að búa til þroskaðan
listdansara, þjálfa vöðva líkamans og
öðlast sjálfsaga. Listdans er góður
ferðafélagi út í lífið, inn í framtíðina.“
dans viðurkenning
Dansað í skotfærageymslu Varnarliðsins
fótbolti auglýsing tekin upp í garðabænum
Stjörnustrákar í spænskri
sjónvarpsauglýsingu
u ppátækjasemi leikmanna í meistaraflokki Stjörnunnar komst í heimsfréttirnar í fyrra-
sumar þegar liðið þótti fagna mörkum
sínum með einstaklega skemmtilegum
hætti. Myndbönd með fagnaðarlátum
þeirra fóru eins og eldur í sinu um net-
heima og voru birt í nokkrum af stærstu
fjölmiðlum heims.
Miðjumaðurinn Halldór Orri Björns-
son var einn af forsprökkum fagnaðar-
látanna og átti hugmyndina að hinu svo-
kallaða „laxafagni“. Eftir að hafa skorað
glæsilegt mark þóttist Halldór Orri hafa
fengið fisk á stöng og dró hann að landi
með miklum tilþrifum. Liðsfélagi hans
túlkaði fiskinn með eftirtektarverðum
hætti. „Mér datt þetta bara í hug þegar
ég var í veiðiferð með pabba. Svo prófuð-
um við þetta einu sinni inni í klefa eftir
æfingu og létum vaða í leiknum á eftir.
Það heppnaðist svona líka vel.“
Sjónvarpsauglýsingin verður tekin upp
á Stjörnuvellinum í Garðabæ og munu
upptökur standa í tvo daga.
Halldór Orri segir Stjörnustráka opna
fyrir að láta leikstýra sér í auglýsingunni
en þeir vita ekki nákvæmlega til hvers er
ætlast af þeim í upptökunum.
„Þetta verður bara sýnt á Spáni og von-
andi ekki hérna heima. En þetta verður
spennandi.“ Að sögn Halldórs hefur
liðið ekki æft nein atriði fyrir sumarið.
„Við höfum verið rólegir í þessu í ár og
einbeitt okkur að spilamennskunni –
þótt vissulega séu uppi einhverjar hug-
myndir. Það er aldrei að vita nema við
útfærum einhver góð „fögn“ í sumar.“
Samkvæmt heimildum Fréttatímans fá
bæði knattspyrnufélagið og leikmenn
greitt fyrir þátttökuna í auglýsingunni.
Bjarni Jóhannsson, þjálfari meistara-
flokks Stjörnunnar, segist ekki geta
eignað sér heiðurinn af uppátækjasemi
strákanna og ítrekar að hann hafi hvergi
komið nálægt því að þjálfa þá í fagnaðar-
látum. „Þetta er bara karakter liðsins.“
thora@frettatiminn.is
Spænska símafyrirtækið MovieStar tekur á næstunni upp sjón-
varpsauglýsingu með meistaraflokki Stjörnunnar í fótbolta. Auglýs-
ingin á að kynna efstu deildina á Spáni (La Liga) en strákarnir eiga
að sýna sín heimsfrægu fagnaðarlæti.
Þetta er bara
karakter
liðsins.
Lynn Marie Kirby, prófessor við
California College of the Arts, er
stödd hér á landi, ekki síst til að
heilsa upp á íslenska nemendur
sína sem hún hefur suma hverja
ekki hitt í ein 25 ár. Hún þeytist
nú um landið með Þorfinni
Guðnasyni sem lærði hjá henni
á árum áður og þau eru að gera
saman framúrstefnu-stuttmynd
sem þau hyggjast sýna í Bíó
Paradís á mánudaginn kemur.
Þar mun Kirby hitta nemendur
sína og tækifærið verður notað
til að sýna nokkrar af helstu
stutt- og tilraunamyndum
hennar. Myndir hennar eru
heimspekilegar, dularfullar og
kvenlegar, en margar þeirra
fjalla um fjölskylduna og frelsi
og rými einstaklingsins innan
hennar. Kirby er af kynslóð
framúrstefnuhöfunda sem
kenndir eru við San Francisco-
senuna á áttunda
og níunda áratug
síðustu aldar og verk
hennar hafa verið
sýnd á virtum kvik-
myndahátíðum og
söfnum víða um heim.
Meðal íslensks kvik-
myndagerðarfólks
sem lært hefur hjá
Kirby eru, auk Þor-
finns, Hrafnhildur
Gunnarsdóttir, Kári
Schram, Sigurður Matthías-
son og Þorgeir Guðmundsson.
Sýningin á verkum hennar
hefst í Bíó Paradís klukkan 20 á
mánudagskvöld.
Endurfundir í Paradís
Laufey leik-
ur í Noregi
Leikkonan Laufey Elías-
dóttir frumsýndi nýverið
barnaleikritið Urmakerens
Hjerte í Noregi. Leikritið
hefur verið sýnt í listamið-
stöðinni Dale í Sunnfjord
fyrir troðfullu húsi og
fengið frábæra dóma, en
þar hefur
Laufey
dvalið
ásamt
myndlistar-
manninum
Steingrími
Eyfjörð
um tíma. Það er nóg að
gera hjá Laufeyju í Noregi
því í byrjun ágúst hefjast
hjá henni æfingar á öðru
leikriti fyrir yngri kyn-
slóðina sem heitir Delfine
og verður frumsýnt í
september.
Hjaltalín með hlöðuskemmtun
Sigríður Thorlacius og Guðmundur Óskar
Guðmundsson tróðu óvænt upp í hlöðunni á Hall-
dórsstöðum í Laxárdal í vikunni. Hljómsveit þeirra,
Hjaltalín, er á leið norður þar sem hún heldur
tónleika á Húsavík í kvöld, föstudag. Fjölskyldan
á Halldórsstöðum tók á móti nærsveitungum og
þeim sem áttu leið fram hjá með öli, kaffi og kakói.
Sigríður og Guðmundur Óskar léku af fingrum
fram fyrir troðfullri hlöðu; bæði Edit Piaf og ís-
lensk þjóðlög.
Halldór Orri Björnsson og liðsfélagar hans í meistaraflokki Stjörnunnar leika
í sjónvarpsauglýsingu fyrir spænska símafyrirtækið MovieStar.
20 ára
20%
afsláttur
af öllum vörum
fimmtudag til laugardags.
2 0
%
a
f s
l á
t t
u
r
k r i n g l u n n i | s m á r a l i n d | l æ k j a r g ö t u | l e i f s s t ö ð
5 8 8 7 2 3 0 5 6 5 9 6 8 0 5 1 1 1 0 0 3 4 2 5 0 8 0 0
Ný
ve
rsl
un
í L
æ
kja
rg
öt
u 2
Listdansskóli Reykjanesbæjar hefur hlotið blessun mennta- og menningarmálaráðuneytisins til að
kenna listdans á grunn- og framhaldsskólastigi.
Námið er krefjandi og það tekur mörg ár að
búa til þroskaðan listdansara.
54 dægurmál Helgin 22.-24. júlí 2011