Fréttatíminn - 22.07.2011, Side 56
Edrú og sjálfstæði
í Hvalfirði
SÁÁ stendur fyrir
edrú útivistarhátíð-
inni Sjálfstætt fólk að
Hlöðum í Hvalfirði um
verslunarmannahelgina.
Markmiðið er að bjóða upp á holla
og kraftmikla félagslega, andlega
og líkamlega næringu og skemmt-
un sem allir aldurshópar geta notið
saman. Boðið verður upp á hug-
leiðslu, 12 spora fundi, svett-tjald
og fyrirlestra um hamingju, gleði
og gæsku. Sigga Klingenberg spáir
fyrir gesti og Gunnar Eyjólfsson
leikari stýrir og kynnir Qi Gong. Þá
verður fjölmargt spennandi í boði
fyrir börn og KK, hljómsveitirnar
Valdimar, Vintage Caravan, Of Mon-
sters and Man, Lockerbie, Jónas Sig
og ritvélar framtíðarinnar, dj-ararnir
Addi Exos og Stefán P. Jones troða
upp. Hekla Jósepsdóttir og Freyr
Eyjólfsson verða kynnar á hátíðinni
þar sem öll vímuefni eru bönnuð og
það sést ekki vín á nokkrum manni.
3008 búta teppi til sölu
Eitt magnaðasta teppi sem saumað
hefur verið hér á landi verður boðið
upp til styrktar Barnaheillum –
Save the Child-
ren á Íslandi.
Þetta er 3008
búta veggteppi
sem er sköpun-
arverk Jónínu
Huldu Gunnlaugsdóttur. Í því eru
160 litir, það er 215x270 sentimetrar
að stærð og var þrjú ár í vinnslu.
Gripurinn heitir Íslandsteppið og
sýnir, eins og nafnið bendir til,
mynd af Íslandi.
Teppið hefur verið sýnt þrívegis
og vakið mikla athygli. Það er nú
til sýnis í Bókasafni Árborgar við
Austurveg á Selfossi.
Teppið verður selt hæstbjóðanda á
uppboði á bæjarhátíðinni „Sumar á
Selfossi“ 6. ágúst og mun ágóðinn
renna óskiptur til Barnaheilla.
Drusluganga
á laugardag
Efnt verður til fjölda-
göngu á laugardag til að
uppræta samfélagslega
fordóma sem endurspeglast
í ofuráherslu á klæðaburð,
ástand og atferli þolenda í umræðu
um kynferðisofbeldi. Druslugangan
mótmælir því að eggjandi klæða-
burður bjóði nauðgurum heim.
Slíkar göngur hafa verið haldnar
víða um heim og vakið mikla
athygli, meðal annars fyrir það að
mótmælendur klæða sig gálulega.
Gengið verður frá Hallgrímskirkju
kl. 14 niður Skólavörðustíg, Banka-
stræti og Austurstræti. Þá verður
skemmtidagskrá á Ingólfstorgi.
HELGARBLAÐ Hrósið …
... fær Eiður Smári Guðjohnsen fyrir
að taka þá áskorun að ganga til liðs við
AEK Aþenu með allri þeirri pressu sem
því fylgir, frekar en að hafa það kósí í
ensku 1. deildinni í sinni gömlu heima-
borg, Lundúnum.Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300 ritstjorn@frettatiminn.is www.frettatiminn.is
H E I L S U R Ú MRekkjan ehf ≤≥ Suðurlandsbraut 48 (Bláu húsin í Faxafeni) ≥≥ 108 Reykjavík ≥≥ 588 1955 ≥≥ www.rekkjan.iS ≥≥ Opið virka d. 10–18 og lau 11–16
SÆNGURFATA
ÚTSALA!
SÆNGURFÖT Á
40-50%
AFSLÆTTI
MIKIÐ ÚRVAL AF HÁGÆÐA
SÆNGURFATNAÐI
FRÁ 3.540 KR.
50% AFSLÁTTUR
AF HANDKLÆÐUM
SÆNGURFATADEILD
REKKJUNNAR
50% AFSLÁTTUR
AF RÚMTEPPUM
Sængurfatadeild Rekkjunnar er stórglæsleg
með yfir 50 tegundir af sængurfötum
á frábæru verði. Við höfum upp á að bjóða
öll flottustu efnin í dag eins og silki,
damask, bómullarsatín, tencel og bómull.
Sængurfötin koma frá öllum heimshornum
til að mynda Íslandi, Þýskalandi, Spáni
og Bandaríkjunum.
Eigum einnig mikið úrval af fallegum
rúmteppum og sérlega mjúkum
og þægilegum værðarvoðum.
A
R
G
H
!!
!
1
5
0
7
11
LÝKUR Á MORGUN,
LAUGARDAG!
Nýtt blað komið út
Ókeypis eintak um land allt
www.goggur.is
G o G G u r ú t G á f u f é l a G