Fréttatíminn - 25.03.2011, Síða 8
Rúmlega 1.200
útlendingar á
árlega hátíð CCP
EVE Fanfest, árleg hátíð og ráð-
stefna tölvuleikjafyrirtækisins
CCP, fer fram þessa dagana
í Laugardalshöll. Jón Gnarr,
borgarstjóri í Reykjavík, setti há-
tíðina í gær en hún stendur fram
á laugardag. Aldrei fyrr hafa jafn
margir miðar selst á hátíðina á
erlendum vettvangi. Rúmlega
þúsund spilarar EVE Online
koma til landsins á hátíðina,
ásamt blaðamönnum,
samstarfsmönnum og
samstarfsaðilum CCP.
Yfir 1.200 manns koma gagngert á hátíðina erlendis frá.
Þegar allt er talið munu vel yfir 1.200 manns koma
hingað til lands gagngert til að mæta á Fanfest 2011.
Við bætast íslenskir gestir, en búist er við að allt að
3.000 manns sæki fjölmennustu viðburði hátíðar-
innar. Viðburðurinn skilar, að sögn aðstandenda
hátíðarinnar, um 300 milljónum í þjóðarbúið. -jh
F ræðslunefnd telur að samræma þurfi vetrarleyfi
á höfuðborgarsvæðinu
fyrir næsta skólaár.
Höfuðborgarsvæðið er
eitt vinnu- og tómstunda-
svæði. Mörg dæmi eru
um að kennari vinni í einu
sveitarfélagi en búi í öðru
og sé í fríi á öðrum tíma en
börnin sín. Börn sækja einnig
í mörgum tilfellum íþróttir
og/eða tómstundir í önnur
sveitarfélög en þau búa í og
eru dæmi um að viðkomandi
íþróttafélag eða tómstund sé
í fríi á sama tíma og skólar í
viðkomandi sveitarfélagi sem
þarf alls ekki að samræm-
ast leyfum skólabarna.
Fræðslunefnd vill
hvetja formenn skóla-
og fræðslunefnda á
höfuðborgarsvæðinu
til að hittast og ræða
möguleika á samræm-
ingu vetrarleyfa á
höfuðborgarsvæðinu.“
Svona hljómar bókun á fundi
fræðslunefndar Álftaness
á þriðjudaginn sem sam-
þykkt var einróma. Kjartan
Örn Sigurðsson, formaður
fræðslunefndar Álftaness,
segir í samtali við Fréttatím-
ann að nú séu sjö sveitarfélög
hvert í sínu horni að huga
að sínum málum og honum
finnst sárlega vanta samstarf
á milli sveitarfélaganna í þess-
um mikilvæga málaflokki.
„Það þarf að búa til vettvang
til að hægt sé að ræða saman.
Og ég held að það sé fínt að
byrja á því að reyna að sam-
ræma vetrarfríin,“ segir Kjart-
an og bendir til að mynda á að
vetrarfríin í Hafnarfirði hafi
verið mismunandi eftir skól-
um. „Höfuðborgarsvæðið er
eitt vinnu- og tómstundasvæði
og ætti í raun að vera eitt
skólasvæði. Það er til dæmis
skólamál VetrarFrí
Vilja samræmt
vetrarfrí á höfuð-
borgarsvæðinu
Fræðslunefnd Álftaness hvetur formenn skóla- og
fræðslunefnda á höfuðborgarsvæðinu til að hittast.
Kjartan Örn Sigurðsson, formaður fræðslu-
nefndar Álftaness, vill samræmt vetrarfrí á
öllu höfuðborgarsvæðinu.
Hvert stefnir Þjóðkirkjan?
„Þjóðkirkjan okkar– hvert stefnir?“ er heiti málþings í Neskirkju í dag, föstudag, milli klukkan 12 og 14. Í til-
kynningu segir að í kjölfar hrunsins haustið 2008 hafa fylgt gjaldþrot, atvinnuleysi og almennur trúnaðar-
brestur. Traust til lykilstofnana hafi minnkað, m.a. til Þjóðkirkjunnar, og sé traust til hennar nú í sögulegu
lágmarki. Frummælendur eru Hulda Guðmundsdóttir, fyrrverandi kirkjuþingsfulltrúi, Guðmundur
Andri Thorsson rithöfundur, Ilmur Kristjánsdóttir leikkona, Ævar Kjartansson útvarpsmaður, Jóhann
Páll Valdimarsson bókaútgefandi og Kolbrún Halldórsdóttir, forseti Bandalags íslenskra listamanna.
Að loknum framsögum mun Ólafur Þ. Stephensen, ritstjóri Fréttablaðsins, bregðast stuttlega við þeim.
Síðan er opið fyrir umræður eða spurningar úr sal. Fundarstjóri er sr. Sigurður Árni Þórðarson. Hægt er
að kaupa kaffi, súpu og saltfisk á staðnum. -jh
skrýtið að heyra sjálfstæðismenn í Reykjavík gagnrýna
Besta flokkinn fyrir aðgerðir í skólamálum, aðgerðir
sem sjálfstæðismenn í Garðabæ eða á Seltjarnarnesi
eru sjálfir að grípa til.“
Sigrún Edda Jónsdóttir, formaður skólanefndar
Seltjarnarness, segir í samtali við Fréttatímann að það
sé ágætt að skoða þetta mál. „Þarna takast á tvenn sjón-
armið. Annars vegar finnst fólki gott að vera ekki í fríi
á sama tíma og allir aðrir en hins vegar eru öll íþrótta-
mót miðuð við vetrarfríin í Reykjavík sem er slæmt þar
sem krakkarnir vilja keppa á mótum. Það er ekkert því
til fyrirstöðu að hittast og fara yfir þetta,“ segir Sigrún
Edda. Spurð um víðtækara samstarf sveitarfélaganna í
skólamálum segir hún að henni sýnist Samtök sveitar-
félaga á höfuðborgarsvæðinu vera farin að stefna inn
á þá braut. „Það er bara eðlileg þróun,“ segir Sigrún
Edda.
oskar@frettatiminn.is
Helgin 25.-27. mars 2011