Fréttatíminn - 25.03.2011, Blaðsíða 10
www.kolors.is
Fyrir hverja selda tösku er plantað tré
Framleiddar eftir Fair Trade stefnunni
Umhverfisvænar tískutöskur
Frábær fermingargjöf
Búnar til úr sælgætisbréfum, dagblöðum, gosdósaflipum o.fl.
Akureyri
HRÍM
hönnunarhús
Vestmannaeyjum
PÓLEY
Laugavegi
EMAMI
E n d u r s ö l u a ð i l a r
Líf í árvekni
Mindful Living
Sálfræðistofa Björgvins Ingimarssonar
www.salfraedingur.is
Skráning í síma 571 2681 eða bjorgvin@salfraedingur.is
Sex vikna námskeið í einfaldari
og streituminni lífsstíl
Lausnir við streitu, krónískum verkjum,
vefjagigt, síþreytu, ofþyngd og kvíða
Miðvikudaga 20.00 – 21.45
13. apríl – 18. maí
H úsafriðunarnefnd hefur samþykkt að undirbúa
friðun tveggja gamalla húsa á
Kópavogstúni, gamla Kópa-
vogsbæjarins og Kópavogshæl-
isins. Skipulagsnefnd Kópa-
vogsbæjar ákvað á síðasta ári,
að því er fram kemur á vef
bæjarins, að óska eftir því að
húsin yrðu friðuð. Það kemur
í hlut menntamálaráðherra að
friða húsin að fenginni tillögu
húsafriðunarnefndar. Vonast
er til að af því verði fljótlega.
Gamli Kópavogsbærinn er
elsta steinhús bæjarins. Hann
var reistur á árunum 1902 til
1904 og Kópavogshælið var
reist á árunum 1925 til 1926.
Guðjón Samúelsson húsa-
meistari teiknaði síðarnefnda
húsið. Þar var fyrst hæli
fyrir berklasjúklinga en síðar
holdsveikisjúklinga, eins og
fram hefur komið í umfjöllun
Fréttatímans að undanförnu.
Á sjötta áratugnum var
hælið gert að vistheimili fyrir
þroskahefta og rekið sem
slíkt allt til ársins 1975. Um
tíma fór þar fram kennsla fyrir
þroskaþjálfanema en húsið
hefur staðið ónotað frá árinu
1985.
„Bæði húsin eru í mik-
illi niðurníðslu og þarfnast
mikilla viðgerða. Ýmsar hug-
myndir hafa verið ræddar um
mögulega starfsemi, til dæmis
mætti koma þar fyrir minja-
safni eða aðstöðu fyrir lista-
menn. Ekkert hefur þó verið
ákveðið enn sem komið er,“
segir enn fremur á vefnum en
þar kemur fram að með friðun
sé bærinn að tryggja að húsin
standi um ókomna tíð.
Nokkrar arkitektastofur
hafa, í samstarfi við Þorleif
Friðriksson sagnfræðing,
lagt fram hugmyndir um að
koma upp einstöku safni á
Kópavogstúni þar sem rakin
yrði híbýlasaga heillar þjóðar
og fyrrgreind tvö hús yrðu
miðpunktar svæðisins. -jh
friðun Minjasafn eða aðstaða fyrir listaMenn
Kópavogshæli og gamli Kópavogsbærinn friðuð
Það kemur í hlut menntamálaráðherra að friða húsin að fenginni tillögu húsafriðunarnefndar. Bæði húsin í mikilli niðurníðslu.
Gamli Kópavogsbærinn, elsta hús Kópavogs.
Lj
ós
m
yn
d/
H
ar
i
Pálmi tapaði
gegn Svavari
Svavar Halldórsson,
fréttamaður á RÚV, var á
þriðjudaginn sýknaður í
Héraðsdómi Reykjaness af
kröfum afhafnamannsins
Pálma Haraldssonar sem
krafðist þriggja milljóna
króna miskabóta vegna
þess sem hann taldi
ærumeiðandi fréttaflutn-
ing Svavars. Í niðurlagi
dómsorðsins kom fram að
þótt Svavari hefði getað
skjátlast að einhverju leyti
um mat sitt á heimildum
væri ósannað að fréttin
hefði verið flutt í „vondri
trú“. Því var Svavar sýkn-
aður. Pálmi sendi frá sér
yfirlýsingu skömmu eftir
að dómur var kveðinn upp
þar sem hann sagðist hafa
orðið fyrir vonbrigðum
með dóminn og að honum
yrði áfrýjað til Hæstaréttar.
-óhþ
Vilja að TM
borgi málaferli í
New York
Lárus Welding, fyrr-
verandi forstjóri Glitnis,
Þorsteinn M. Jónsson,
fyrrverandi stjórnar-
formaður bankans, og Jón
Sigurðsson, fyrrverandi
stjórnarmaður, hafa stefnt
Tryggingamiðstöðinni
vegna þess sem þeir telja
brot á stjórnendatryggingu
sem þeir telja að Glitnir
hafi keypt af TM á meðan
þremenningarnir störfuðu
fyrir bankann. Þeir krefjast
þess að tryggingafélagið
greiði kostnað þeirra við
málaferli skilanefndar
Glitnis gegn þeim þremur,
Jóni Ásgeiri Jóhannes-
syni, Pálma Haraldssyni,
Ingibjörgu Pálmadóttur
og Hannesi Smárasyni.
Tryggingamiðstöðin neitar
að greiða kostnað þeirra
sem hleypur á tugum
milljóna hjá hverjum fyrir
sig. -óhþ
s amkvæmt fornum hefðum, sem eiga rætur sínar rekja til þess tíma þegar Sveini Björnssyni var fylgt
til skips, er eitt af skylduverkum hand-
hafa forsetavalds að fylgja forseta Íslands
út á flugvöll þegar hann fer úr landi og
jafnframt taka á móti honum. Ágúst Geir
Ágústsson, skrifstofustjóri í forsætis-
ráðuneytinu, staðfesti þetta í samtali við
Fréttatímann en gat ekki gefið neinar upp-
lýsingar um það hvernig þessari hefði
væri framfylgt. Hann sagðist þó telja ólík-
legt að allir þrír handhafarnir ferðuðust út
á flugvöll með forsetanum enn þann dag í
dag líkt og raunin var á árum áður. Líkleg-
ast taldi hann að forseti Alþingis sæi um
þessa hlið starfans en forsætisráðherra
og forseti Hæstaréttar sinntu þessu lítið.
Fréttatíminn ákvað að kanna hversu oft
handhafarnir, Jóhanna Sigurðardóttir,
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir og
Ingibjörg Benediktsdóttir, hefðu verið
fylgdarkonur forsetans á síðasta ári.
Óhætt er að segja að þessar upplýsing-
ar liggi ekki á lausu. Send var fyrirspurn
til allra handhafanna þriggja með þremur
spurningum sem lutu að ferðum þeirra,
sem handhafar forsetavalds, með forseta
út á flugvöll. Ekkert svar hefur borist frá
handhöfunum og ekki hefur reynst unnt
að ná þeim í síma. Ásta Ragnheiður hefur
til að mynda ekki séð ástæðu til að svara
skilaboðum sem hafa verið lögð fyrir hana
á hverjum degi í þessari viku.
Eins og greint var frá í Fréttatímanum í
síðustu viku staðfestu handhafar forseta-
valds 29 lög á síðasta ári í fjarveru Ólafs
Ragnars Grímssonar en hver handhafi
fyrir sig fær um tuttugu þúsund krónur
á dag fyrir að sinna sínu hlutverki. Laun
handhafanna lækkuðu ekki þegar for-
seti Íslands bað um launalækkun á síð-
asta ári. Eftir að fjölmiðlar hófu að fjalla
um þann mismun sóttu handhafarnir um
launalækkun til samræmis við forsetann.
Ekki verður annað sé en að helstu hlut-
verk handhafanna séu annars vegar að
staðfesta lög og hins vegar að fylgja for-
setanum til og frá flugvelli. Vert er að
hafa í huga að handhafarnir skrifuðu
undir mörg lög suma dagana. Forsetinn
fór í þrettán utanlandsferðir á síðasta ári
og því má gera ráð fyrir að einhver hand-
hafanna hafi þurft að skottast Reykjanes-
brautina 26 sinnum til að fylgja forsetan-
um til og frá flugvelli.
oskar@frettatiminn.is
HandHafar forsetavalds ferðalög
Leynd hvílir yfir fylgd-
arkonum forsetans
Ómögulegt virðist vera að fá upplýsingar um það hversu oft handhafar forsetavalds hafa fylgt forset-
anum út á flugvöll á undanförnum tveimur árum líkt og venjan ku vera.
... því má
gera ráð fyrir
að einhver
handhafanna
hafi þurft
að skottast
Reykjanes-
brautina 26
sinnum til að
fylgja forset-
anum til og
frá flugvelli.
Jafnframt fékk forsetaembættið fyrirspurn í nokkrum liðum. Í svari frá Örnólfi Thorssyni forsetaritara
kom fram að vert væri þó að vekja athygli á því að fyrirspurnin væri nokkuð viðamikil og varðaði þætti
sem embættið hefði ekki haldið skrá um. Embættið myndi svara spurningum en þyrfti tíma til að taka
svörin saman.
Spurningar til forsetaembættisins:
1. Hversu oft fylgdu handhafar forsetavalds forseta Íslands út á flugvöll á árunum 2009 og
2010, sundurliðað eftir árum og einstökum ferðum?
2. Hversu oft fylgdu handhafar forsetavalds forseta Íslands af flugvelli á árunum 2009 og
2010, sundurliðað eftir árum og einstökum ferðum?
3. Hvaða handhafar forsetavalds komu við sögu í tveimur fyrstu liðunum hér að ofan,
sundurliðað eftir árum og einstökum ferðum?
Spurningar sem voru lagðar
fyrir handhafana þrjá:
1. Hversu oft fylgdir þú forseta Íslands út
á flugvöll á síðasta ári?
2. Varstu á eigin bíl?
3. Varstu líka til að taka á móti honum
við heimkomu?
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, svarar með þögninni
einni saman.
Lj
ós
m
yn
d/
H
ar
i
10 fréttir Helgin 25.-27. mars 2011