Fréttatíminn


Fréttatíminn - 25.03.2011, Blaðsíða 12

Fréttatíminn - 25.03.2011, Blaðsíða 12
Nánari upplýsingar á expressferdir.is eða í síma 5 900 100 F í t o n / S Í A Berlín og Dresden Borgarferð Verð á mann í tvíbýli: 83.900 kr.Innifalið: Flug til Berlínar með sköttum og öðrum greiðslum, akstur til og frá flugvelli, gisting á góðu hóteli með morgunverði og íslensk fararstjórn. 13.–16. maí Fararstjóri: Hjálmar Sveinsson M ótmæli undafarinna vikna hafa snúist um lýðræði, mannréttindi og framtíð fátækasta lands Arabíuskagans. Upp úr sauð þegar 52 mótmælendur voru skotnir til bana af leyniskyttum á föstudaginn var en talið er að árásin hafi markað upphaf nýrra tíma í landinu. Héðinn kom til Jemens frá Kaupmannahöfn þar sem hann hefur búið undanfarin fimm ár og meðal annars starfað fyrir Alþjóðasamband Rauða krossins. Hann er menntaður í þróunar- og friðarfræðum og var fenginn til starfa hjá UNICEF í gegnum dönsku flóttamannahjálp- ina. Hann hefur einnig unnið sem fréttamaður á RÚV um árabil. Mótmælaaldan sem breiðst hefur út um arabalöndin teygði anga sína til Je- mens. Starf Héðins breyttist því fljótt en í upp- Bylting í návígi hafi var ætlunin að hann ferðaðist um landið og miðlaði upplýsingum um verkefni UNICEF. „Við ættum að vera úti um landið að hitta fólk og skrásetja hvernig verkefnum miðar. Ég komst einu sinni til að heimsækja norðurhéruðin en vegna öryggisleysisins í landinu hef ég þurft að halda mig á skrif- stofunni hér í borginni og hef reynt að miðla því sem ég get héðan.“ Uppreisn gegn einræði Ástandið í Jemen er margslungið og flókið og átökin sem hafa breiðst út í landinu að undanförnu eiga sér margar rætur. „Jemen er mallandi pottur af ýmiss konar vandamálum. Landið var sameinað fyrir 15 árum og er að mörgu leyti enn mjög ósamstætt. Helmingur landsmanna er undir átján ára aldri og hvergi í heiminum er réttur kvenna minni. Um það bil helm- ingur barna er vannærður og hér er einnig gríðarlegur flóttamanna- vandi. Þar er um að ræða bæði Jemena, sem eru á flótta vegna átaka í landinu, og flóttamenn frá Austurströnd Afríku. Þá er vopnaeign mjög almenn.“ Spennan var því fyrirsjáanleg af ýmsum ástæðum þegar uppreisnaraldan náði til Jemens, lands sem á að heita lýðræðisríki en þar hefur for- setinn, Ali Abdullah Saleh, verið allsráðandi í rúm þrjátíu ár. „Í Sanaa eru tvennar tjaldbúðir, annars vegar stuðningsmanna forsetans og hins vegar mótmæl- enda. Uppreisnin er kölluð bylting unga fólksins og spennan hefur stigmagnast undanfarnar vikur. Aðallega er það ungt atvinnulaust fólk sem hefur tekið þátt í mótmæl- unum en atvinnuleysi í landinu er um fjörutíu prósent.“ Blóðugur föstudagur Fæsta óraði þó fyrir því hve harka- lega stjórnvöld tækju á uppreisn- inni. Föstudaginn 18. mars voru 52 mótmælendur drepnir, að því er talið er af óeinkennisklæddum skyttum úr ranni forsetans. Hann hefur staðfastlega neitað því að hans stjórnarhermenn hafi verið að verki. Einnig eru uppi kenning- ar um að andstæðingar forsetans hafi staðið að baki morðunum og hafi með þeim viljað steypa forset- anum af stóli. Óumdeilanlegt þykir að skotárásirnar hafi verið gerðar í þeim tilgangi að fella mótmælend- ur en ekki til dæmis til að dreifa mannfjölda. Skotin beindust að bringu og höfði fólks. „Myndirnar af þessu voru skelfilegar,“ segir Héðinn sem hefur haldið sig í hæfi- legri fjarlægð frá háskólanum í Sanaa þar sem tjaldbúðir mótmæl- enda eru og mótmælin hafa farið fram. Í Jemen er helgarfrí á fimmtu- dögum og föstudögum og þennan blóðuga föstudag var Héðinn heima við. „Það er mjög vel hugsað um öryggi okkar hér og starfs- fólk UNICEF fékk skilaboð um að halda sig heima við. Það var mjög einkennilegt andrúmsloft og undarlega hljótt um kvöldið. Fólk var harmi slegið.“ Að sögn Héðins ríkti mikil sorg í borginni þegar fórnarlömbin 52 voru jörðuð og á þriðja hundrað þúsund manns safnaðist saman á götum úti. Börnum hótað Í kjölfar árásanna var ríkisstjórnin leyst upp og stoðirnar, sem veldi Saleh hefur byggst á, hafa fallið ein af annarri á undanförnum dögum. Margir vilja meina að endalok valdatíma forsetans séu innsigluð. Hálfbróðir hans, sem er æðsti maðurinn í hernum, er búinn að snúa baki við honum. Sífellt fleiri hermenn og herforingjar hafa gengið til liðs við mótmælendur. „Það er ómögulegt að segja til um hvernig málin þróast, hvort það verður í líkingu við Egyptaland eða Líbíu.“ Héðinn segist finna mjög fyrir órólegu andrúmslofti í borginni. „Jemenskur vinur minn, sem er í háskólanum hér hefur ekki farið í skólann í viku. Kennsla hefur fallið niður í barnaskólum víða. Fyrir nokkrum dögum fréttist af upp- reisnarmönnum í skólum að hóta börnum og kennurum því að ef þau tækju ekki þátt í mótmælunum yrði skólinn brenndur.“ Engin fjölmiðlaathygli Héðinn segir Jemen vanalega ekki á ratsjá fjölmiðla og oft sé erfitt að fá fréttir þaðan. „Til dæmis var tveimur kunningjum mínum vísað úr landi í síðustu viku, breskum og bandarískum blaðamanni. Það var ráðist inn til þeirra klukkan sjö að morgni og þeir keyrðir út á flug- völl. Fréttamenn Al-Jazeera hafa heldur ekki fengið að vera hér og svo mánuðum skiptir hafa blaða- menn átt erfitt með að fá vega- bréfsáritanir til Jemens.“ Fari allt á versta veg verður hluti starfsfólks UNICEF sendur úr landi, en til þess hefur þó enn ekki komið. Héðinn segist aldrei hafa óttast um eigið öryggi og mikil- vægt sé að halda starfinu áfram; nú gæti þörfin fyrir UNICEF orðið enn brýnni. „UNICEF stuðlar að almennri heilsugæslu, rekur her- ferðir fyrir bólusetningu, starfar með flóttamönnum, styrkir vatns- verkefni, vinnur gegn vannæringu barna, rekur skóla og leggur sér- staka áherslu á að koma stúlkum til náms. Verkefnin eru margþætt enda vandinn yfrinn.“ Í vestrænum fjölmiðlum er iðu- lega fjallað um Jemen sem gróðrar- stíu hryðjuverkasamtaka og uppi eru kenningar um að Saleh forseti hafi gagngert ýkt hryðjuverkaógn- ina sem stafar af Al-Qaida á svæð- inu, til að viðhalda fjárhagsaðstoð bandarískra stjórnvalda. Að mati Héðins mætti fjölmiðlaumfjöllunin oftar beinast að neyðinni sem ríkir í landinu og birtist í gríðarlegu atvinnuleysi, fátækt og almennri vannæringu. Þóra Tómasdóttir thora@frettatiminn.is Ástandið í Sanaa, höfuðborg Jemens, hefur gjörbreyst á þeim stutta tíma sem Héðinn Halldórsson, fyrrum fréttamaður Sjónvarpsins, hefur starfað þar sem upplýsingafulltrúi UNICEF. Hann er nú staddur í hringiðu uppreisnar unga fólksins sem hefur unnið hluta af her landsins á sitt band og hrakið ríkis- stjórnina frá völdum. Héðinn fylgist með uppreisn unga fólksins í Sanaa úr návígi. ... vegna öryggis- leysisins í landinu hef ég þurft að halda mig á skrif- stofunni hér í borg- inni og hef reynt að miðla því sem ég get héðan. 12 viðtal Helgin 25.-27. mars 2011
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.