Prentarinn - 01.01.1985, Blaðsíða 7
Vinnuvernd
Aðvörun
vegna rakatækja
Það hefur komið í Ijós að raka-
tæki geta verið hættuleg heilsu
manna. Þetta er sérstaklega at-
hyglisvert fyrir prentiðnaðarfólk
vegna þess að þau eru töluvert
notuð í bókagerð. Það er vegna
þess að rakastigið í loftinu verður
að vera mátulegt við meðhöndlun
pappírs við hinar ýmsu aðstæður,
t. d. við brotvélarog offsetprentvél-
ar. Þetta uppgötvaðist líka fyrst í
prentsmiðju I Englandi 1969.
Það sem skeður er að tækin geta
mengað andrúmsloftið með sýkl-
um, ef þau eru ekki nægilega oft
hreinsuð. Veikin sem stafar af
þessu er nefnd rakatækjasótt á ís-
lensku og nú nýlega birtist grein
(Læknablaðið; 70:176-8) um ís-
lenska rannsókn á þessu sviði eftir
Hreinsið rakatækin vel
Davíð Gíslason, Vífilstaðaspítala
og Vilhjálm Rafnsson, Vinnueftir-
liti.
Einkenni veikinnarert. d. þreyta,
höfuðverkur, bein- og vöðvaverkir,
hár hiti, hrollur og þyngsli fyrir
brjósti eða áköf mæði. Einkennin
eru mest áberandi eftirfrí eða helg-
ar og getur þetta því líkst svokall-
aðri mánudagsveiki.
Það er fyllsta ástæða til að vara
fólk við þessari hættu, sem getur
stafað frá rakatækjunum. Best er
að fara nákvæmlega eftir leiðbein-
ingum sem fylgja þeim um þrif og
viðhald. Sagt er að það sé nauð-
synlegt að þrífa þau vikulega eða
oftar til að fyrirbyggja að örveru-
gróður myndist í þeim.
Slys á vinnustað
Það skeði fyrir nokkru að bók-
bindari sem var að hreinsa binda-
gerðarvél fékk lím í augað. Hann
gat ekki náð því strax í burtu og
reyndi því að skola það burt með
vatni. Það var keypt til þess gert
áhald í næsta apóteki, sem hann
gat notað í þetta skipti. Þetta áhald
var þannig, að það skolaði alltaf
með sama vatninu og mengaði því
vatnið smásaman. Þetta var hann
ekki ánægður með og lét hann
skrifstofu FBM vita. Það var hringt í
öll apótek borgarinnar og nið-
urstaðan var sú að hvergi fékkst
viðunandi áhald. En í einu þeirra,
PRENTARINN 1.5.'85
Ingólfsapóteki, Hafnarstræti 5, var
það væntanlegt og þar hefur það
fengist fram að þessu.
Hér birtast myndir af slysavaldin-
um og skoltækinu, sem alltaf skolar
með hreinu vatni og Viðari Þor-
steinssyni bókbindara að prófa
tækið.