Prentarinn - 01.02.1985, Blaðsíða 17
Skýrsla
bókasafns-
nefndar
Á s. 1. ári hefur bókasafnsnefnd
haldið áfram starfi sínu við uppbygg-
ingu bókasafnsins með svipuðum hætti
og fyrra ár. Miðað hefur í rétta átt
varðandi umbúnað þess og aukna
bókaeign eins og reikningur ber með
sér. Þar hafa einkum þau markmið
verið höfð í sjónmáli að auka nokkuð
við fagbókaeign safnsins og þá seilst til
nýjustu erlendra rita. Einnig hefur
verið reynt að fylla í skörð einstakra
innlendra ritraða, sem bókmenntalegt
og sögulegt gildi hafa. Nokkru fé hefur
verið varið til bókbands, en of litlu,
miðað við þörf á bandi verðmætra
bóka.
Skráningu á bókum safnsins hefur
miðað vel á starfsárinu svo mikill hluti
þeirra er nú kominn á spjöld í þrítaki
samkvæmt réttum reglum. Hvernig
hagað verður skráningu óbundinna
bóka er enn ekki fullráðið, en líklegt
er að þar verði einföld skráning látin
duga meðan þær bíða bands. Sá hluti
safnsins, sem nú er fullskráður er um
það bil þrjú þúsund bindi.
Eins og getið hefur verið í bóka-
safnsfréttum Prentarans er safnið nú
fastur áskrifandi að helstu íslenskum
tímaritum, sem fjalla um bókmenntir,
sögu og íslenskt mál. Verður það að
teljast nokkurs virði þeim sem bókum
unna, að eiga aðgang að þeim tímarit-
um. Þau hafa jafnan verið talin eins-
konar spegilmynd andlegra hræringa
með þjóðinni, góð eða léttvæg eftir
atvikum, en yfirleitt átt vinsældum að
fagna. Það vekur alltaf forvitni og
TEKJU-OG GJALDAREIKNINGUR ÁRIÐ 1984.
Skýring 1984 1983
IÐGJÖLD :
Iðgjaldatekjur A-deildar 5 16.400.116 14.566.860
Iðgjaldatekjur B-deildar 18 24.169 30.057
Endurgrieðslur v/B-deildar 18 (66.216) (138.777)
Iðgjöld 16.358.069 14.458.140
LÍFEYHISGREIÐSLUR :
Lifeyrir 5.037.600 3.687.799
Gr. til U.N.E 431.461 345.588
Lifeyrisgreióslur frá U.N.E (873.687) (512.116)
Lifeyrisgreiðslur 4.595.374 3.521.271
IÐGJÖLD •: LÍFEYRIR : 11.762.695 10.936.869
FJÁRMUNATEKJUR :
Vaxtatekjur og verðbætur 6 36.613.803 56.210.067
Reiknuó gjaldfærsla vegna verðlagsbreytinga 2 (30.002.000) (45.720.000)
Fjármunatekjur 6.611.803 10.490.067
SKRIFSTOFU-OG STJÓRNUNARKOSTNAÐUR :
Laun og launatengd gjöld 7 511.148 434.405
Annar kostnaður 8 562.610 400.547
Skrifstofu-og
stjórnunarkostnaður 1.073.758 834.952
AFSKRIFTIR : 14 1.500 1.500
TEKJUAFGANGUR TIL RÁÐSTÖFUNAR 17.299.240 20.590.484
RÁÐSTÖFUN :
Til sjóðs A-deildar 15 16.400.116 14.566.860
Til sjóðs B-deildar 18 59.157 67.055
Til höfuðstóls 16 839.967 17.299.240 5.956.569 20.590.484
PRENTARINN 2.5.’85
17