Prentarinn - 01.01.1986, Qupperneq 9

Prentarinn - 01.01.1986, Qupperneq 9
Eftir eigin geðþótta í 3. tölublaði Prentarans 1985 birtist grein, sem berheitið: „Gegn aðstoðar- fólki og iðnnemum.“ Greinin birtist undir dulnefninu as. Mér þótti dul- nefnið strax dálítið andstætt öllu frjáls- hyggjutalinu, sem nú ríður yfir, m. a. óskoruðu frelsi einstaklingsins til að láta skoðanir sínar í ljósi við hvern sem er og hvar sem er. En þegar ég fór að lesa greinina, sem grípur á mörgum veilum í kaupgjaldskerfi okkar og er að mestu í samræmi við kröfugerð fé- lagsins að þessu sinni, þá fór mér að skiljast hver ástæðan var fyrir dulnefn- inu. Hún var einfaldlega sú, að hið lága taxtakaup, sem framkallar yfir- greiðslur og aukavinnu, eftir geðþótta atvinnurekenda, er orðin háskaleg ein- ingu og jafnréttishugsjón verkalýðsfé- laganna. Þeir sem láta álit sitt í ljósi um ástandið í launamálum, mega bú- ast við því að gjalda þess í kaupi, sem ekki verður lifað af, og þýðir í raun og veru fyrir marga óbeina brottvísun úr starfi. Það hefur líka færst í aukana, þegar um yfirgreiðslur er að ræða, að samið er við hvern einstakling með því skil- yrði, að hann láti það ekki berast til félaga sinna, hvað hann hefur í kaup. Með þessu er verið að skapa tor- tryggni milli félaga og lævi blandið andrúmsloft á vinnustað. Þetta gef- ur atvinnurekendum aðstöðu til að drottna, ekki aðeins yfir lífskjörum fólks, heldur og líka yfir vilja þess og félagslegu frelsi. Greinarhöfundur segir: „að versta afleiðingin, sem þetta kerfi hefur er gagnvart þeim hópum, sem í kaupi eru miðaðir við frumtaxta sveina. Þessir hópar eru fyrst og fremst ófaglært að- stoðarfólk og iðnnemar. Einnig má þar telja eldri félaga okkar meðal setj- ara og hæðarprentara.“ Og greinar- höfundur bætir því við að u. þ. b. Vá af félagsmönnum FBM sé láglaunahópur og að mestu leyti skipaður konum. Hann leggur einnig áherslu á nauðsyn þess, að stórhækka alla taxta og knýja atvinnurekendur til þess að greiða öll launatengd gjöld af útborguðum laun- um „en ekki af einhverju ímynduðu dagvinnukaupi.“ Vonandi sér það hver félagsmaður að hér er mikil hætta á ferðum, ekki aðeins fyrir okkar félag, heldur og fyrir verkalýðshreyfinguna alla, því víða tíðkast nú hin breiðu spjótin. Ekki verður annað séð, en það sé nú aftur orðin stefna atvinnurekenda og annara valdhafa í þjóðfélaginu, að endurskapa það ástand ótta og örygg- isleysis, sem var á upphafsdögum verkalýðshreyfingar og síðar í kreppu og atvinnuleysi. Þeir vilja nú sem fyrr svelta verkafólk til hlýðni. Verkalýðsstéttin verður því að rísa á fætur. Hún verður að hefja virðingu og stolt vinnunnar gegn valdhroka og ofríki auðsins. Hún verður að krefjast réttar síns til síaukinnar hlutdeildar í þeim auði, sem hin hraðfleyga tækni nútímans skapar. Hún verður að berj- ast fyrir kröfum, sem taka fyrst og fremst mið af hag launafólks en ekki þeim „hagvexti“ og þeirri „greiðslu- getu atvinnuveganna“, sem auðstéttin hefur her manns til að reikna út til auðsöfnunar sér til handa. Stefán Ögmundsson. m uIVn °s m„ S <■„„ tJÍ e,:'ð,ií- ' 1'*'1*”& ' >*•£** t\lf w 7 ***% xt t PRENTARINN 1.6 '86 9

x

Prentarinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.