Prentarinn - 01.01.1986, Blaðsíða 25

Prentarinn - 01.01.1986, Blaðsíða 25
Ársæll Ellertsson „Ráðinn verði sérstakur starfsmaður.. Sú umræða sem hófst með ráð- stefnu hinn 18. janúar s. 1. verður vonandi skref til heilla fyrir prent- iðnaðinn. Því hefur verið haldið fram að iðnfræðslumál og samein- ing iðngreina séu í reynd þeir þættir sem koma til með að ráða mestu um framtíð þeirra sem vinna við framleiðslu prentgripa þegar litið er til atvinnuöryggis og verndunar iðn- réttinda. Það er því afar brýnt að allt nám endurspegli þarfir prent- iðnaðarins, hvort sem um er að ræða hefbundið nám, námskeið eða endurmenntun milli iðngreina. Sameining iðngreinanna er viður- kenning á þörfum prentiðnaðarins en um leið trygging á atvinnuöryggi og iðnréttindum sem annars væru í hættu. Hvernig geta FBM og FÍP haft áhrif En hvernig geta FBM og FÍP haft áhrif á þróun mála og náð fram markmiðum sínum? Það eru sjálf- sagt ótal leiðir að þessu marki. Sú vænlegasta er að starfa náið með fulltrúum sínum í fræðslunefndum iðngreinanna. í erindisbréfi fræðslunefnda er gert ráð fyrir samráði við viðkom- andi aðila vinnumarkaðarins er varðar gerð námsskráa og náms- gagna en eftirfarandi starfsþættir falla undir fræðslunefndir eftir nán- ari fyrirmælum Iðnfræðsluráðs hverju sinni: Námsreglur, náms- skrárgerð, sveinspróf, millipróf, löggilding til nematöku, námseftir- lit, mat á námi, meistaraskóli, áætl- anagerð og umsagnaraðild fyrir stjórnvöld um mál er varða iðn- greinina. Enn hefur ekkert form- legt samstarf verið milli fræðslu- nefnda FBM og FÍP. Hvernig væri að hefja slíkt samstarf? T. d. með því að ráðinn yrði starfsmaður sem PRENTARINN 1.6.-86 sinnti eingöngu fræðslu- og iðnrétt- indamálum og væri daglegur tengi- liður milli stjórna FBM, FÍP og fræðslunefndanna. . . . gæfi engan aukinn rétt Hinn 19. ágúst 1982 lögðu fræðslunefndir í prentun og offset- prentun til, að þessar tvær iðngrein- ar yrðu sameinaðar í eina iðngrein, en tóku jafnframt fram að slík sam- eining gæfi engan aukinn rétt til þeirra sem lokið hafa námi í annarri hvorri iðngreininni. í bréfi frá Iðn- fræðsluráði til FBM, þar sem óskað er eftir umsögn félagsins um bréf fræðslunefndanna er bent á að fyrirvari fræðslunefndanna um að sameining gefi ekki aukinn rétt, brjóti í bága við hefðir sem gilda þegar iðngreinar eru sameinaðar, því hefð er um það að allir þeir sem geta sannað vinnu sína í störfum er snerta hina nýju iðngrein fái rétt- indi eftir reglum réttindaveitinga- nefndar. Til frekari skýringa um þetta atr- iði vísa ég til greinar sem birtist í Prentaranum 2. tbl. 1983. Af þessari tilraun til sameiningar má læra margt, en fyrst og fremst það að ekki er nóg að senda bréf þar sem lögð er til t. d. sameining iðngreina samkvæmt heimild 7. greinar í II. kafla í reglugerð um iðnfræðslu. Nauðsynlegt er að fyrir liggi ná- kvæm útlistun á hvernig standa eigi að væntanlegri sameiningu, bæði hvað varðar vægi þeirra iðngreina sem sameina á í hinni nýju iðn- grein. Einnig þarf að liggja fyrir samræmt námsefni, drög að sveins- prófi og síðast en ekki síst hvernig standa á að málefnum þeirra er hafa aðeins réttindi til að vinna við hluta af verkþáttum sem hin nýja iðngrein nær yfir. Þá verður að hafa það í huga að væntanleg sameining iðngreina er ekki aðeins á Reykja- víkursvæðinu, heldur nær til lands- ins alls. Því verður að gera þá kröfu að prentiðnaðarfólki á landsbyggð- inni verði gert kleift að afla sér þeirrar menntunar sem boðið verð- ur upp á. Móta verður skýra stefnu í fræðslu- og sameiningarmálum. Vonandi verður ráðstefnan hinn 18. janúar s. 1. skref í rétta átt. — Sameina ber hæðaprentun og offsetprentun í eina iðngrein „Prentun"

x

Prentarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.