Prentarinn - 01.01.1986, Blaðsíða 19
Stöðugar breytingar hafa átt sér stað í setn-
ingargreininni að undanförnu.
>
þekkingu. Á þetta skortir í okkar
kjarasamningum, úr því þarf að
bæta.
Niðurlag
Góðir fundarmenn. Tækninýj-
ungar eru spennandi og skapa að
því er virðist ótæmandi möguleika í
okkar starfsgreinum, en þær geta
breyst í andhverfu sína sé ekki rétt
á haldið. Við höfum hér skyldum
að gegna. Svör okkar eru ekki bara
fólgin í því að hafa menntun okkar
og endurmenntun í fullkomnu lagi,
þannig að bókagerðarmenn séu æv-
inlega þeir sem best er treystandi til
framleiðslu prentgripa.
Við hljótum jafnframt og ekki
síður að gera kröfur og horfa gagn-
rýnum augum á þróunina. Einnig í
heimi tækninnar eiga sér stað breyt-
ingar breytinganna vegna. Auk þess
sem þær breytingar, geta verið and-
stæðar því frelsi, félags- og efna-
hagslega frelsi sem við viljum og
okkur er nauðsynlegt að búa við.
Tækni sem ögrar afkomu og öryggi
fjölda manns og tryggir einungis
betri afkomu fárra verðum við að
taka til skoðunar og annað hvort
hafna henni ellegar aðlaga hana
hagsmunum fjöldans. í þessu sam-
bandi stöndum við enn og aftur
frammi fyrir spurningunni um jafn-
an rétt fólks og við rekum okkur
aftur og aftur á þá staðreynd að sá
réttur spannar ekki ýkja mikið meir
en að fá að velja um það hvort þú
kaupir grænar baunir frá Ora eða
KÞ. Þeir sem raunverulega ráða
eru handhafar fjármagnsins. Það er
ranglátt og óviturlegt fyrirkomulag
og bitnar að lokum á samfélaginu í
heild. Jafnrétti í efnahagslegu og
félagslegu tilliti er því forsenda þess
að við fáum notið tækniþróunar og
menntunar í bróðerni.
PRENTARINN 1.6'86
19