Prentarinn - 01.01.1986, Blaðsíða 30
JAN BOHMAN Æk
AKE HALLBERG ÍJ
I stuttu . . .
Félag áhugamanna
um verkalýðssögu
I 7. tbl. Vinnunnar 1985 segir
Tryggvi Þór Aöalsteinsson frá fundi
norrænna sagnfræðinga, sem
haldinn verður á íslandi 23.-26.
júní n. k. M. F. A. undirbýr ráð-
stefnu þessa í samvinnu við Sagn-
fræðistofnun háskólans.
Þátttakendur koma frá öllum
Norðurlöndunum, þar á meðal
Grænlandi og Færeyjum. Ráð-
stefnan er haldin í samvinnu við
Sögusöfn verkalýðshreyfingarinnar
á Norðurlöndum og „félög áhuga-
manna um sögu verkalýðshreyfing-
arinnar, sem starfa í tengslum við
söfnin."
Þegar hér var komið frásögn um
þetta ágæta framtak M. F. A., sem
jafnframt veitir Sögusafni verka-
lýðshreyfingarinnar á íslandi for-
stöðu, kom mér til hugar hvílíka
nauðsyn ber til að stofna hér á
landi Félag áhugamanna um
verkalýðssögu. Mér er kunnugt um
að slík félög hafa unnið ómetanlegt
starf í þágu sögusafnanna á Norð-
urlöndum o. v.
Ég held að nota ætti rástefnu þá,
sem haldin verður hér í sumar sem
tilefni þess að stofna Félag áhuga-
manna um íslenzka verkalýðssögu
og notfæra sér þau tengsl og upp-
lýsingar, sem unnt er að fá á slíkri
samkomu.
Félag bókagerðarmanna á
lengstu samfelldu sögu íslenzkra
verkalýðsfélaga geymda í fundar-
gerðum, skjölum og gögnum auk
ritaðrar sögu í Prentaranum, Bók-
bindaranum, afmælisritum og
víðar. Það væri því eðlilegt að FBM
leitaði eftir samstarfi við MFA um
að hrinda í framkvæmd stofnun
„Félags áhugamanna um sögu ís-
lenzkrar verkalýðshreyfingar" og
gerði það nú á vordögum, svo full-
trúar þess ættu kost á að sitja ráð-
stefnu um sögu verkalýðshreyfing-
ar á Norðurlöndum á komandi
sumri.
S. Ö
Bókasafnsfréttir
Nýkomnar fagbækur:
1. Grafisk Design e. Áke Hallberg
og Jan Bohman.
2. Klart för tryck e. Áke Hallberg.
Báðar bækurnar eru útgefnar
1985 af Spektra, Halmstad, Sví-
þjóð. Með annari bókinni er
videospóla 45 mín. VHS til
útlána.
KLARTFÖR
TRYCK
ÁKE HALLBERG
Grafisk grandkunskap för
alla som sysslar med trycksaker.
En bok om Manus, Original,
Typografi, Bildhantering,
Reproduktion ochTryckmetoder.
Fárdigstallande av original,
Gnuggteknik, Korrekturlasning
Omfángsberákning, Fárglára och
Grafiskt mini-lexikon
GRAFISK DESIGN
DET SYNUGA SPRAKET
En bok om bokstávernas och typografins
utveckling, om den moderna grafiska
formgivningens förutsáttningar, uttrycks-
medel, teknik och arbetsmetodik.
»< ‘c
3. Kjemiske produkter i grafiske
avdelinger i Norske aviser. útg.
1984 - Gjöf frá Aftenpostens
Grafiske Klubb.
4. Válj rátt kemikalieskydds-
handske! - Snabbvalslista -
Handbók. Útg. febr. 1985. Gjöf
frá Arbetarskyddsfonden,
Svíþjóð.
5. Riktlinjer för val av kemikalie-
skyddshandskar. Útg. nóv.
1985 af Föreningen Teknisk
Företagshálsovárd í Svíþjóð.
6. Arbetarskyddsfondens sam-
manfattningar. Skrá yfir 790
rannsóknarskýrslur, sem sjóður-
inn hefur gefið út á árunum
1976-84. Viðbótarskrár - útg.
1985. Nr. 836-895. - Gjöf frá
sjóðnum.
FÍP með auknu
lífsmarki,
og margt á döfinni
Mikill kraftur hefur færst í samtök
atvinnurekenda í bókagerð, Félag
íslenska prentiðnaðarins. Félagið
hefur ráðið Svein Sigurðsson til
framkvæmdarstjórnarstarfa og Guð-
rúnu Jónsdóttur til ritarastarfa. Ráðn-
ingum þessum hefur fylgt töluverður
fjörkippur og til marks um það er
m. a. útgáfa 84 síðna blaðs, sem
heitir „Hin svarta list". Blað þetta er
hið glæsilegasta, enda prentað í fjór-
um litum og minnir á þann hátt á rit
eins og Nýtt líf, Samúel og fleiri. Þá
PRENTARINN 1 6.’86