Prentarinn - 01.01.1986, Blaðsíða 15
Grafiski skólinn í Kaupmannahöfn heimsóttur.
una í löndunum og var það sameigin-
legt álit manna, að kennara vantaði
nauðsynlega endurmenntun í nútíma
grafiskri tækni.
Löndin voru með ýmsar tillögur í
menntunarmálum og var óskað eftir
tillögum frá hverju landi fyrir sig.
Þessar tillögur komu frá íslensku full-
trúunum:
1. Við verðum að hafa gott verklegt
og fræðilegt grunnnám. Gæti verið
betra en nú er, t.d. með meira alm.
grunnnámi þeirra sem sækja um
bókagerðarskólann.
2. Útbúnaður skólans og námsskrár
verða að hæfa betur þeim kröfum,
sem vinnumarkaðurinn gerir til fag-
lærðra.
3. Að námið á Norðurlöndunum sé
meira samræmt.
4. Námsskrár séu í stöðugri endur-
skoðun, bæði í grunnnámi og end-
urmenntun.
5. Stöðug endurmenntun sé í gangi og
fari hún fram í vinnutíma.
6. Námið sé byggt upp á einingakerfi
(sbr. Monni).
7. Öllu þessu námi sé stjórnað af aðil-
um vinnumarkaðarins og hinu opin-
bera.
8. Æskilegt væri, ef það er mögulegt,
að koma á fót samnorrænum graf-
iskum skóla.
Þátttakendurnir notuðu einn daginn
til þess að heimsækja Kaupmannahöfn
í boði dönsku félaganna. Snæddur var
hádegisverður í Grafisk Forbundshus
við Lygten 16, en síðan var skoðaður
Grafiski skólinn við Thomsensgötu.
Þar var margt sem vakti athygli
manna, m.a. hvað hinar ýmsu deildir
eru tæknivæddar, svo sem bókbands-
deildin og sáldprentunardeildin (silki-
prentun). Danmörk er eina landið þar
sem sáldprentun hefur sjálfstætt full-
mótað nám.
Á heimleiðinni var notað tækifærið
og skoðað Louisianalistasafnið í
Humlebæk.
Einn daginn kom stjórn NGU í
heimsókn og hélt fund með ráðstefnu-
gestum. Gerði hún þar grein fyrir
starfsemi NGU og sat fyrir svörum.
Áke Rosenquist formaður NGU
sagði þá m.a., að menntunin væri einn
mikilvægasti þátturinn í okkar starfi,
ásamt vinnuverndinni. Það væri mjög
mikilvægt, að við gætum endurnýjað
menntunina. Það kom fram, að þeir
hjá stjórn NGU væru að ræða um að
kalla saman norræna skólaráðstefnu.
Að síðustu samþykkti ráðstefnan að
beina eftirfarandi til stjórnar NGU:
Að vinna að því, að grafiskar náms-
skrár á Norðurlöndum verði sam-
ræmdar, bæði í grunnnámi og
framhaldsmenntun.
Að reynt verði að byggja upp kerfi,
sem gætir að tæknilegri þróun,
með það í huga, að endurskoða
námsskrárnar reglulega.
Að vinna að því, ef það er mögulegt,
að koma á samnorrænum grafisk-
um skóla með bestu fáanlegri nú-
tímatækni.
Svanur Jóhannesson
Baldur H. Aspar
Ólafur Björnsson
Allir þátttakendur samankomnir.
I