Prentarinn - 01.01.1986, Síða 24

Prentarinn - 01.01.1986, Síða 24
legri kennslu muni iðnskóli nokk- urn tíma geta haldið í við þœr öru breytingar sem eiga sér stað í graf- ísku iðnunum, þó ekki sé nema vegna þess að ekki yrði hægt að tækjavæða hann svo vel sé, einfald- lega af því að breytingarnar eru svo örar. En þó tækniþróunin hafi verið ör, virðist samt sem grundvallarat- riðin í framleiðsluferlinu haldi sér nokkuð, þannig að sá grunnur sem lagður er í iðnskóla í fræðilegum grundvallaratriðum mun alltaf koma að gagni. Verkefni iðnskóla hlýtur því að felast í því að kenna undirstöðuna í verkmenntuninni og fræðilega þáttinn og þá ekki síst að vekja áhuga nemenda og gera þeim Ijóst, að í dag verður iðngrein ekki lœrð á sama hátt og fyrir 50—60 árum, þegar menn lærðu fagið sitt og unnu við það nær óbreytt alla sína starfsævi. Nútíma iðnaðarmað- ur á og verður að fylgjast með því sem er að gerast í iðngrein hans. Með nýjum tækjum sem keypt eru koma leiðbeiningabækur á er- lendum málum sem fagmennirnir verða að geta lesið. Að kenna mönnum að lesa þessar bækur er dæmigert verkefni iðnskóla. Fækkun iðngreina I sambandi við sameiningarmál þá hef ég verið hlynntur því í mörg ár að fækka iðngreinum í bókagerð- inni og tel að það yrði gæfuspor, ef rétt yrði að staðið. Við breytingar þær sem orðið hafa síðustu ár í vinnsluaðferðum með tilkomu ljóssetningar og off- setvinnslu, hefur það sannast að fagmenn í hinum ýmsu greinum bókagerðar þurfa að hafa staðgóða þekkingu á vinnsluferli næsta verk- þáttar á undan og eftir þeirra eigin. Öll þekkjum við vandamál sem koma upp í vinnslunni vegna þess að einhver verkþátturinn hefur ekki verið rétt unninn fyrir þann næsta. Þannig að hann fellur ekki að vinnsluferlinu og þarfnast lag- færingar. Þessi framleiðsluslys, sem ég vil nefna svo, eru ekki til að auka framleiðni í fyrirtækjunum. Hjá mörgum þessara framleiðslu- slysa mætti komast með víðfeðmari þekkingu iðnaðarmannanna. Nú vil ég víkja að hinni hlið máls- ins, sem ekki er síður mikilvæg, en það er tækniþróun sú, sem ber það með sér að setning, umbrot, skeyting og ljósmyndun fari fram með vinnslu á skjá, sem óhjá- kvæmilega felur í sér verulega skör- un iðngreina. Þessi skörun þýðir einfaldlega það, að þeim sem við þannig skjá vinnur, er nauðsynlegt að hafa haldgóða þekkingu í öllum greinun- um þrem, þ. e. setningu, skeytingu og ljósmyndun. Þó svo að samningar milli iðn- greina innan FBM kveði svo á, að þetta sé sameiginlegt svið setningar og skeytingar, nægir það ekki til að verjast þriðja aðilanum, aðilum utan FÍP og FBM, ef þekkingu fag- mannanna er ábótavant. Ég álít að það sé ekki hægt að leggja niður iðngrein sem einu sinni hefur verið löggilt. Það myndi þýða að verið væri að ógilda próf þeirra manna sem þegar hafa sveinspróf í viðkomandi iðngrein. Ég held að óhjákvæmilegt sé að stofna nýja iðngrein, kenna hana í skóla og með starfsþjálfun, sem lyki með sveinsprófi. Um leið á að hætta að útskrifa fólk í eldri greinunum. Önnur leið er að kenna til prófs í öllum greinunum og láta taka sveinspróf í þeim öllum. Eitt er ljóst í þessu máli, hverjar svo sem lyktir verða, að endur- skipuleggja þarf námið frá grunni og semja nýja námsskrá þar sem námstími og skipting hans yrði ákvörðuð. Það mikilvægasta í þessu máli er samt hvernig bregðast á við mennt- un þess fólks sem þegar er úti á vinnumarkaðnum með mismunandi sveinspróf. Það er mál sem yrði að vinna jafnhliða skólamálinu og er ekki síður mikilvægt, skiptir raunar öllu máli að fái farsælan endi. Finna verður færa leið til þess að allir geti aflað sér réttinda í grein- um sem þeir ekki hafa réttindi í. Til þess að þessar hugmyndir geti orðið að veruleika þarf peninga, og það þarf mikið af þeim. Samning nýrrar námsskrár er mikið verk og kostar þar af leiðandi peninga. Líklegt er að endurmenntun verði að vera með kvöldskólasniði og það kostar peninga. En engin leið er að komast hjá því að fólkið leggi sjálft eitthvað af mörkum. Ég tel það úrslitaatriði í þessu máli að það sé mjög vel skipulagt og að öll námsskrárvinna sé búin áður en farið er af stað með kennslu og eins að fjárhagsgrund- völlurinn sé rækilega tryggður. Ég ætla að enda þessa tölu með því að leggja sérstaka áherslu á, að ef ekki er vandað til alls undirbún- ings í þessu máli er verr af stað farið en heima setið. 24 - Sameina ber setningu, skeytingu og offsetljos- myndun í eina iðngrein - „Prentformagerð“ I

x

Prentarinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.