Prentarinn - 01.03.1997, Blaðsíða 28
PRENTÞJÓNUSTAN EHF./LJÓSM.: SIGUPBERGUR M. ÓLAFSSON
Samtök bókageröarmanna
í 100 dr og stéttartal
Verkið er geflð út í samvinnu við Félag
bókagerðarmanna, og er tvíþætt,
100 ára afmælisrit samtaka bóka-
gerðarmanna og stéttartal þeirra
í 400 ár.
í afmælisritinu, sem ber nafnið Samtök
bókagerðarmanna í 100 ár, er ítarlega f'jallað
um þau samtök sem bókagerðarmenn hafa
átt með sér allt frá því að Prentarafélagið í
Reykjavík var stofnað árið 1887. Frásögnin
er byggð á fjölþættum heimildum,
prentuðum, rituðum og munnlegum og
krydduð með ljóðum og skemmtilegum
frásögnum. Rúmlega 200 ljósmyndir prýða
bókina, sem er 712 bls. Höfundur er
dr. Ingi Rúnar Eðvarðsson.
Nýtt stéttartal bókagerðarmanna tekur við
af nokkrum eldri ritum einstakra greina innan
stéttarinnar sem sameinuðust í Félagi
bókagerðarmanna árið 1980 en er mjög aukið
miðað við þau.Verkið hefur að geyma æviskrár
2.220 nianna þar sem tugþúsundir íslendinga
korna við sögu. Það er í
tveimur bindum, alls 824 bls. Ritstjóri er
Þorsteinnjónsson ættfræðingur.
ÞJOÐSACA ehf
Dvergshöfða 27 • Sími 567 1 777 • Fax 567 1240