Prentarinn - 01.03.1997, Blaðsíða 27

Prentarinn - 01.03.1997, Blaðsíða 27
FÉLAGSMÁL ■ ■ ■ Samningar um Ljóst er að að það eru einkum tvö atriði samn- ingsins sem liafa munu veruleg áhrifhér á landi. Annars vegar lengingin á daglega hvíldar- tímanum í 11. klst. Hins vegar og enn frekar ákvœðið um 48 klst. viku- lega hámarks- vinnutímann. Þar er um að ræða algert nýmæli á íslenskum vinnumarkaði. Þetta ákvæði kann þó að virðast ennþá áhrifaríkara við fyrstu sýn eð það er í reynd, þar sem verið er að tala um virkan vinnutíma en ekki endilega greiddan tíma. En þar getur verið verulegur munur á. Er nóg í því sambandi að benda á að almennt gildir t.d. hjá verkafólki og iðnaðar- mönnum að af 40 stunda vinnu- vikunni í dagvinnu eru aðeins 37,08 tímar virkir. Til að einfalda útreikninginn varðandi hámarks vinnutíman hafa samningsaðilar komið sér saman um ákveðnar leiðbeiningar og reikni- reglur með 6. gr. samningsins sem fjallar um þetta atriði. Þær fylgja hér á eftir. 6. gr. Hámarksvinnutími I þessari grein er að ftnna helsta nýmæli þessa samnings, þ.e. ákvæðið um 48 stunda hámarksvinnutíma á viku að meðaltali. Samn- ingurinn miðar við þá meginreglu að árinu verði skipt upp í tvö viðmiðunartímabil, k. þ.e. fyrra og seinna árs- helming, og að meðalvinnu- vika verði að hámarki 48 virkar vinnustundir á hvorum árshelmingi. Þá er miðað við að vinnutími starfsmanna sé skipulagður þannig eftir því sem við verður komið, að hann verði sem jafnastur frá einni viku til annarrar. Mikilvægt er að gcra sér grein fyrir að ekki er sett jafnaðar- merki milli greidds tíma og vinnutíma. Meginreglan er að til vinnutíma telst einungis virkur vinnutími, þ.e. 40 stundir á viku fyrir fullt starf að frádregnum neysluhléum. Sé dæmi tekið af samningum almennt þá eru greidd neysluhlé 35 mínútur á dag eða 2. klst. og 55 mínútur á viku. Virkur vinnutfmi í dagvinnu á viku er því 37 klukkustundir og fimm mínútur eða 37,08. Samkvæmt samningnum telst jafnframt lágmarksorlof, fæðingarorlof og fjarvistir vegna veikinda til vinnutíma og skal þess gætt að þessar fjarvistir hafi ekki áhrif á meðaltalsútreikninga. Sá tími sem starfsmaður er í launuðu starfsnámi telst einnig til vinnutíma. I launuðu starfsnámi að 80 klst. hvert námskeið, skal einungis telja námskeiðsstundir. Sé námið hinsvegar lengra skal það einnig vera hlutlaust gagnvart meðaltalsútreikningi. Orlof umfram lágmarksorlof og sérstakir frídagar teljast á hinn bóginn ekki til vinnutíma. Samningsaðilar eru sammála um að rniðað skuli við eftirfarandi reiknitölur við útreikning á vinnu- stundahámarki: 1.238 stunda hániark á fyrri árshelmingi, 1.267 stunda hámark á seinni árshelmingi og 2.506 stunda hámark ef samið er um að nota árið allt til viðmiðunar. Það er jafnframt sameiginlegur skilningur aðila að byggt skuli á þeirri meginreglu að hver dagur í orlofi, að 24 dögum á ári, fæð- ingarorlofi að 6 mánuðum og vcikindafjarvistum skuli teljast 9,6 stundir og dragast frá hámarksvinnutíma á ári eða árshelmingi. Jafnframt að viðbótarorlof umfram lágmarks- orlof hækkar yfirvinnuhámarkið um 9,6 stundir fyrir hvern dag í viðbótarorlofi. Hámarksvinnustundafjöldinn á hvorum árshelmingi er fundinn með þvr að margfalda vinnudaga að viðbættum frídögum með 9,6 vinnustundum. Á fyrri árshelmingi er reiknað með 129 dögum og á seinni árshelmingi 132 dögum. Heildarvinnustundafjöldi á ári eða árshelmingi segja flestum lítið sem ekkert og til að gera þessar stærðir skiljanlegar þá eru meðaltalstölur eftirfarandi: Dæmi 1 Vinnustundahámörk að meðaltali Hámarks- Hámarks- vinnutími yfirvinna Á dag 10,0 2,6 Á viku 50,1 13,0 Á mánuði 216,9 56,3 Dæmi 2 Staifsmaður er ífullu staifi. A einu almanaksári: Hann er veikur í 4 daga, 2 daga á hvorum árshelmingi. Hann tekur 10 daga af lágmarks- orlofi sínu í júní og 14 daga í júlí. Hann er í launuðu starfsnámi í alls 16 klst. í maf. Hann er í leyft í 4 daga á fyrri árs- helmingi og 4 daga á síðari árshelmingi (þar af 2 dagar t viðbótarorlof). Það skiptir ekki máli hvort leyfin eru launuð eða ekki. Heimilaður hámarksvinnutími: að teknu tilliti til veikinda, orlofs og launaðs starfsnáms o.fl. Fyrri arshelmingur: Hámark alls: Veikindi: Orlof: Laun. starfsn. Leyfi (4 dagar) Virkar vinnust. 1.238,0 vinnust. 19,2 96,0 16,0 0,0 1.106,8 Seinni arshelmingur: Hámark alls: Veikindi: Orlof: Laun. starfsn. Leyfi (4 dagar) Virkar vinnust. 1267,0 vinnust. 19,2 134,4 0,0 0,0 1113,4 Samkvæmt samningnum er vinnu- veitanda óheimilt að láta starfsmann sinn vinna meira en 48 virkar vinnu- stundir að jafnaði á viðmiðunartíma- bilinu. Starfsmanninum er með sama hætti óheimilt að vinna umfram hámarkið hjá sama vinnuveitanda. • PRENTARINN ■ 27

x

Prentarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.