Prentarinn - 01.03.1997, Qupperneq 21

Prentarinn - 01.03.1997, Qupperneq 21
FÉLAGSSTARF ■ ■ ■ starfsmanna. Stærsta áskorun fram- tíðarinnar er að tryggja stöðu og réttindi starfsfólks hvort sem það er fastráðið, í hlutastörfum eða í íhlaupavinnu. • Menntun og atvinna innan grafíska fagsins á Norðurlöndunum er greini- lega mismunandi milli kynja. Jafn- framt því að bæta stöðu kvenna í at- vinnulífinu, þurfum við einnig að velta upp spumingum um nýja tækni og áhrif hennar á starfsfólkið, ólíkar aðferðir til að nýta vinnukraftinn, þróun á innihaldi og skipulagi starfa, jafnrétti og vinnuvemd. Þátttakendumir líta svo á að það sé ákaflega mikilvægt í allri ákvarðanatöku, að skoða fyrst afleiðingar ákvörðunarinnar annars vegar á karla og hins vegar á konur. Mikilvægt er að fylgja eftir ráðstöf- unurn í átt til jafnréttis á öllum stig- um í NGU félögum og samtökum. Sér í lagi á athyglin að beinast að persónukosningum þegar fulltrúar eru kosnir til hinna ýmsu starfa. • Þróun á starfsmati sem tæki til að framfylgja jafnlaunastefnunni þarf að halda áfram. • Félög innan NGU eiga að sjá til þess að félagsmenn þeirra fái menntun og upplýsingar um allar þær spurningar varðandi jafnrétti sem snerta atvinnulífið og sam- félagið. • Konumar innan grafísku félaganna á Norðurlöndum hafa stofnað tenginet til að kynnast hver annarri og deila reynslu sinni. Til að ná jafnrétti verðum við stöðugt að vera með það á stefnuskránni. Það getum við ef við störfum saman af einhug og eindrægni, innan félagsins sem og í atvinnulífi og samfélagi. • KVENNARAÐIÐ Vetrarstarf Það var helgina 11.-12. október sl. sem árleg haustráðstefna Kvennaráðsins var haldin í Miðdal. Að þessu sinni tóku þátt ellefu konur og tókst hún í alla staði vel að vanda. Fundurinn fjallaði nt.a. um tilgang Kvennaráðsins, en það verður sjaldan ofbrýnt að hlutverk þessa hóps er að skapa vettvang til lifandi umræðna um jafnréttismál á sem víðustum grundvelli og að halda þeirri umræðu á lofti. Þetta gerum við með því að halda fundi mánaðarlega, við stöndum fyrir kynningu og fræðslu um fjölbreytt málefni og virkjum þátttakendur til starfa, konur standa og vinna með konum og byggja upp tenginet sín á milli. A fundinum var einnig rædd og kynnt jafnréttisáætlanagerð á vegum FBM og var kosinn starfshópur til að vinna það mál áfram en markmiðið er að það starf ^ skili félaginu langþráðri jafnréttisáætlun undir vor. Vetrarstarfið var planlagt í stórum dráttum, hugmyndir viðraðar og lagt upp með nokkra fasta punkta. Ákveðið var að reyna að koma á Intemet-kynningu fyrir konur og eins og allir vita tókst það með afbrigðum vel því áhuginn var mikill. Kynningamar urðu tvær, hinn 5. og 12. nóvember. Leiðbeinadi var Þórlaug Ágústsdóttir stjómmálafræðinemi „netfíkill" (að eigin sögn) og greinarhöfundur Tölvuheims. Kynningamar voru haldnar í samstarfi við Prenttæknistofnun, en framkvæmdastjóri hennar, Hjörtur Guðnason, lagði glaður til húsnæði og tölvuaðstöðu. Það er skemmst frá því að segja að þessi nýbreytni vakti feiknalukku og ljóst að konur taka fljótt við sér þegar eitthvað áhugavert ber á góma. Hver veit nema þetta hafi verið upphaf einhverju meira. Þá var einnig ákveðið að halda grasrótarfyrirkomulaginu sem hefur gefist svo vel á undanfömum árum. Það er, við skiptumst á að undirbúa og halda fundina, en í því felst að mæta fyrr og hella upp á könnuna, kaupa eitthvert smáræði með kaffinu, en þema næsta fundar er gjaman ákveðið á fundunum sjálfum. Þegar þetta er ritað var mér að berast fundarboð desembermánaðar, en í því kemur fram að þetta verður jólafundur og eins og lög gera ráð fyrir verður að sjálfsögðu tekið fyrir jólabókaflóðið. Þar sem flóðið er yfirgripsmikið verður að afmarka valið og á að taka fyrir bækur sem sérstaklega eru skrifaðarfyrir konur. Sem dæmi um áhugaverða titla grfp ég niður í fundarboðið ... „ ... Jólabókaflóðið í ár hefur líka skolað að landi veiðarfærum sem við látum ekki grotna í fjömborðinu. Þar má nefna Reglurnar, margreyndar aðferðir við að vinna hjarta draumaprinsins. Nýtt líf í hjónabandið, það er óneitanlega hagkvæmt að veiða sama fiskinn aftur og aftur, Hvað vilja konurfá frá körlum, það er nauðsynlegt að vita hvað við viljum veiða. Þær eru ófáar bækumar sem koma ráðvilltri nútímakonunni til bjargar nú um jólin, við ætlum að fletta þessum bókum, hlæja og gráta yfir ímynd og örlögum kvenna." Af þessu má sjá að við erum ekkert að láta okkur leiðast fyrsta miðvikudag hvers mánaðar. Við hvetjum þær konur sem enn em tvístígandi að drífa sig á næsta fund. Því fleiri sem við emm því sterkari verðum við. Að lokum vil ég geta þess að í ársbyrjun stendur til að halda kvennaráðstefnu samvinnu við MFA. Þetta verður að öllum líkindum eins dags ráðstefna (laugardagur) þar sem ýmsum flötum verður velt upp, t.d. varðandi konur, jafnrétti, vinnuna, streitu o.fl. Meira um það síðar. Konur í FBM, merkið stax við og takið frá fyrsta miðvikudagskvöld í mánuði hverjum. Fundirnir eru haldnir (nema annað sé tekið fram í fundarboði) í félagsheimilinu okkar á Hverfisgötunni og standa frá kl. 20.00-22.00. Verið með og takið þátt í kraftmiklu og skemmtilegu starfi Kvennaráðsins. Athugið að til að gerast félagi þarf aðeins að mæta á fund. Fyrsti miðvikudagur f hverjum mánuði MARGRÉT FRIÐRIKSDÓTTIR PRENTARINN ■ 2 1

x

Prentarinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.